Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014 Ég er fædd 21. nóvember 1971 og hefði ekkiviljað fæðast svo mikið sem degi fyrr.Þegar ég sé hvað börn í dag hafa það al- mennt gott og hvað margt hefur breyst til hins betra frá því ég man fyrst eftir mér þá ósjálfrátt fer ég að kenna í brjósti um kynslóðirnar á und- an mér, og jafnvel mína kynslóð líka. Aumingja fólkið sem er ekki nema 5 árum eldra en ég og rétt missti af því að kynnast tölvum á skóla- göngu sinni. Ef það hefur ekki síðar farið að vinna með tölvur hefur ekki verið hlaupið að því fyrir það að tileinka sér tölvutæknina og alla þá möguleika sem hún hefur upp á að bjóða. Sjálf hef ég alveg gefið upp á bátinn að skilja alla þá möguleika sem í boði eru fyrir flutning á sjón- varpsefni inn í viðtækið mitt. Yngra fólk en ég hljómar eins og það átti sig á muninum á ADSL, rafmagnslínum og einhverju þráðlausu fyrirbæri í þessu sambandi. Mikið er það heppið að alast upp á þessum tímum tækni og vísinda. Það hafa ekki bara orðið framfarir í vísindum. Ruglið er einnig á undanhaldi þótt vissulega sé enn nóg af því. Af hverju máttu símasnúrur ekki vera lengri en hálfur metri þegar ég var að alast upp? Hví var yfirleitt einhver á móti lagningu síma um landið? Og múgsefjunin, hefur ekki eitthvað dregið úr henni? Eftir Millet-úlpuæðið á 9. áratugnum hef ég að minnsta kosti ekki orð- ið vör við sambærilegt hópefli meðal unglinga. Auðvitað eru alls kyns tískufyrirbrigði í gangi en unga fólkið virðist vera miklu sjálfstæðara í hugsun og fasi en Millet-úlpukynslóðin mín. Reykingar og áfengisneysla unglinga er dæmi um ósið sem nánast hefur lagst af. Unglingar í dag eru upp til hópa betur upplýstir og skyn- samari en áður. Og úlpuúrvalið mun meira. Allt afleiðing framfara í vísindum og tækni. Samt eru margir sem ekki bara sjá fortíðina í rósrauðum bjarma heldur leggja sig einnig í líma við að finna nýja tímanum allt til foráttu. Þeir eru svo háværir að manni hættir til að gleyma því að þeir hafa aldrei haft rétt fyrir sér. Rafmagnið hefur til að mynda verið undirstaða hagsældar mannkyns. Samt hafa þeir horn í síðu háspennustöðva og rafmagnsmastra, telja þau tákn um loftslagsbreytingar af mannavöldum. Hvað vill þetta fólk? Draga úr notkun rafmagns? Sér það ekki hvílíka farsæld rafallinn hefur fært okkur? Til að kunna að meta það sem við höfum í dag er gagnlegt að líta til baka. Það gerir einmitt Matt Ridley í bók sem nýlega kom út á íslensku, Heimur batnandi fer. Í bókinni er framförum eins og rafmagninu og skordýraeitri lýst á skemmtilegan hátt og það sett í samhengi við hagsæld og málflutning bölsýnismannanna. Nei, ég hefði ekki viljað fæðast degi fyrr. Lífið er á uppleið * Það er erfitt að finnasvæði í heiminum þar sem fólk hefur það verr í dag en árið 1955, segir Matt Ridley. Hvað lífsskil- yrði varðar er fátt sem ekki hefur batnað með tímanum. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Sigríður Ásthildur Andersen sigga@sigriduranersen.is Í vikunni var lagt fram frumvarp um nöfn þar sem meðal annars er lagt til að allir megi taka upp ættar- nöfn. Sjónvarps- maðurinn Egill Helgason var ef- ins um hvort hann ætti að taka upp nýtt nafn. „Næsta ættarnafn við mig er nafn ömmu minnar sem var frá Noregi. Hún var Eldvik. Egill Eldvík – jamm. Ég er ekki viss,“ sagði Egill í færslu á Facebook. Börkur Gunnarsson, leikstjóri og varaborgar- fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, skrifaði um fyrsta borgar- stjórnarfundinn sinn á Facebook. Hann var ekki par sáttur við kaffið og kexið. „Í dag sit ég fyrsta borg- arstjórnarfundinn minn. Fyrir þau sem eru að velta fyrir sér frama í borgarpólitík get ég sagt frá því að kaffið hérna er lapþunnt og kexið sem boðið er upp á er gamalt. Ég held ég sé kominn með baráttumál fyrir næstu kosningar: „Betra kex í borgarstjórn, betra kaffi, betri borg!““ Vigdís Gríms- dóttir notaði Facebook til að hrósa Gerði Krist- nýju fallega. „Drápa Gerðar Kristnýjar flaug hingað til mín norður á verald- arhjarann, eins og Strandirnar eru stundum kallaðar. Ótrúleg tilfinning að lesa þessa mögnuðu bók í kvöld- myrkrinu, ekki nema von að maður líti skelfdur um öxl og sjái stjörnur splundrast og undarlegustu tungl kvikna! Trúlega verð ég aldrei söm. Svona leikur skáldskapurinn við mann og á mann þegar best lætur.“ Verkfall tónlistarkennara hefur líklega ekki farið framhjá neinum og virðist vera torvelt að ná samn- ingum. Bragi Valdimar Skúlason stakk upp á mögulegri lausn á mál- inu og nokkuð skemmtileg hugmynd þar á ferð. „Hvers vegna siga tónlist- arkennarar ekki óæfðum fiðlunem- endum á samninganefndina? Hugsa að undirritaður samningur lægi fyrir á sirka korteri.“ AF NETINU Hringur ísbjörn vakti athygli gesta á Barnaspít- alanum í vikunni en hann hefur gengið til liðs við lækna í baráttu þeirra fyrir betri kjörum og betri spítala, hrópaði slagorð og bar mótmæla- spjöld. Þegar blaðamaður hafði samband við Hring varð hann mjög glaður því hann hafði vonast eftir því að þetta framtak hans myndi vekja athygli. Á öðru spjaldinu er skrifað „Upp með laun lækna“ og á hinu sem sést á meðfylgj- andi mynd stendur „Alla lækna heim“. Á því skilti er ennfremur tilvitnun í börnin á sjúkra- húsinu: „Læknar komið aftur á spítalann því það eru mörg börn sem þurfa á ykkur að halda þar“. Þetta er undirritað, „skólabörn Landspít- alans“. „Læknarnir og hjúkrunarfólkið leggja líf og sál og blóð og tár í allt sem þau gera. Mér finnst að þau eigi að fá almennilega borgað,“ segir Hringur um af hverju hann blandaði sér í bar- áttuna. Hann segist líka hafa séð svo marga „stressaða læknanema sem eru að læra yfir sig og elta sérfræðinga“. Honum finnst að þeir eigi að fá góð laun fyrir að vinna á spítalanum og þeir eigi allir að „koma heim“ eftir langa námið. Út með áhyggjur, inn með gleðina Óhætt er að segja að Hringur sé góðvinur spít- alans. Hann kemur í hverri viku í heimsókn á leikstofu Barnaspítalans, alltaf á miðvikudögum á veturna en á sumrin er hann uppi á jökli, því þá er alltof hlýtt fyrir hann í borginni. Hann vill meina að eldgosið í Holuhrauni sé honum að kenna því hann hoppaði svo mikið á jöklinum í sumar! Hringur lítur svolítið stórt á hlutverk sitt á spítalanum og það með réttu. Hann vill hreyfa aðeins við orkunni sem er þar inni. „Ég vil bara henda áhyggjunum út um gluggann og koma inn með gleðina, allavega í smástund,“ segir hann. Hann segist samt stundum vera leiður en hann er meira fyrir að reyna að gera það sem er skemmtilegt. Sunnudagsblaðið hefur frétt að hann sé mikill Eurovision-aðdáandi og að- spurður segist hann semja mikið af Eurovision- lögum. Laufblöð um allt gólf „Ég er oft að leika mér að því að gera það sem má ekki,“ segir hann grallaralega. Hann hefur gaman af því að færa heiminn ut- an spítalans inn. „Um daginn kom ég með gul og rauð og brún og græn laufblöð og sturtaði þeim út um allt gólf. Krökkunum fannst það mjög gaman og líka fullorðna fólkinu,“ segir Hringur og nefnir að Gróa og Sibba á leikstof- unni séu miklar vinkonur hans. Sibba, Sig- urbjörg Guttormsdóttir, staðfestir það. „Hann er mikill gleðigjafi hérna á Barnaspítalanum og kemur reglulega í heimsókn til okkar,“ segir hún ánægð með vin sinn.Hringur ísbjörn styður kjarabaráttu lækna. Hringur ísbjörn mótmælir á Barnaspítalanum Vettvangur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.