Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014 Heilsa og hreyfing L íkamsbygging Kókómjólkur-Klóa, kis- ans röndótta og geðþekka sem löngum hefur prýtt fernur drykkjarins vin- sæla, minnir í dag á ofurtónaðan og stæltan kropp Cristiano Ronaldo, fótbolta- stjörnu, fremur en eitthvað í líkingu við venjulegan heimiliskött. Hið sama er uppi á teningnum með upp- færða útgáfu af hinum fjörugu Teenage Mut- ant Ninja Turtles-skjaldbökum, sem nutu gíf- urlegra vinsælda snemma á 10. áratugnum. Þá komu þær fyrir sjónir eins og hraustlegir og lífsglaðir skjaldbökustrákar, en í nýrri mynd um þá líta þær hins vegar út eins og forsíðufyrirsætur vaxtarræktartímarita, með ofurþrútna og æðabera vöðva kreppta og í svip þeirra kristallast alvöruþrunginn töffara- skapur. Massaður fjármálaráðherra og módel hreysti Það er gömul saga og ný að markaðsöfl og af- þreyingariðnaður leitist við að sýna fólki það sem það þráir og ljóst er að hraustlegt útlit og líferni eru tískan í dag. Sama skótíska þrífst nú innan líkamsræktarstöðva sem utan þeirra. Fegurðarsamkeppnir heyra nú sög- unni til en í staðinn birtast fréttir af sigur- vegurum í keppnum í módel hreysti. Áður fyrr kepptu grunnskólanemar helst í upplestri og sviðslistum en í dag er sýnt frá Skóla- hreysti í sjónvarpi þar sem börn keppa í því að gera armbeygjur og upphífingar. Fjár- málaráðherra birti mynd af sér í ræktinni á dögunum þar sem hann sagðist hafa lyft 100 kílóum í bekkpressu. Líkamsræktin er ríkjandi lífsstíll. Skuggahliðin er útlitsdýrkun Á þessari þróun kunna að vera skuggahliðar. Í frétt Rúv á dögunum kom fram að íslenski tollurinn stöðvaði sífellt meira magn af ster- um. Þá kom fram að 14 ára drengir væru farnir að fikta við að taka inn stera til þess eins að öðlast tiltekið útlit. Sálfræðingurinn Sigrún Daníelsdóttir, formaður samtaka um líkamsvirðingu, segir að „útlitsdýrkun“ sé orð sem sífellt beri meira á í umræðu á Íslandi. „Útlitsfyrirmyndir kvenna og karla hafa orðið ýktari með árunum þar sem lögð er megináhersla á grannan vöxt hjá konum og vöðvastæltan líkama hjá körlum. Með tilkomu myndvinnslutækni hafa þessi útlitsviðmið síð- an endanlega færst út fyrir mörk raunveru- leikans þannig að í dag lítur enginn út eins og þær ímyndir sem við höfum fyrir aug- unum, ekki einu sinni fólkið sjálft á mynd- unum. Þetta skapar fáránlegar og óraunhæf- ar hugmyndir um hvað telst gott útlit sem enginn nær að uppfylla,“ segir Sigrún. Hún segir jafnframt að ríkjandi útlitsáherslur skili sér einnig inn í heim barna í gegnum leik- föng og barnaefni. Öfgar í fjölmiðlum Að mati Sigrúnar hefur iðnaðurinn í kringum megrunar- og líkamsþráhyggju stolið hugtak- inu heilbrigði og afbakað merkingu þess og fyrir vikið telji margir að útlitið skipti miklu máli varðandi það hvers virði þeir eru og hvaða virðingar þeir njóti frá öðrum. „Okkur er talin trú um að heilbrigði sé bundið við einhvern ákveðinn líkamsvöxt eða útlit og það skipti næstum ekki máli hvernig fólk komist þangað. Þetta höfum við séð end- urtekið í fjölmiðlum þar sem rætt er um öfgafullar aðferðir til að stjórna mataræði og þyngd, yfirþyrmandi hreyfingaplön, ofur- áherslu á líkamsvöxt, neyslu fæðubótarefna og jafnvel stera. Þessi umfjöllun er sett fram á mjög gagnrýnislausan, og jafnvel jákvæðan hátt, eins og þetta sé það sem heilbrigt líf snýst um. Þetta getur auðvitað truflað hug- myndir fólks um hvað heilbrigði snýst um. Þetta fallega hugtak snýst fyrst og fremst um jafnvægi í lífinu og andlega, líkamlega og félagslega vellíðan. Heilbrigði felst ekki í því að vera ofurseldur hugsunum um hitaein- ingar, fitu, kíló og vöðva.“ ÚTLITSFYRIRMYNDIR VERÐA SÍFELLT ÝKTARI Mittið mjókkar og vöðvarnir vaxa Í dag líta þeir félagar út eins og sannfærandi vaxtarræktartröll. SIGRÚN DANÍELSDÓTTIR SÁLFRÆÐINGUR OG FORMAÐUR SAMTAKA UM LÍKAMSVIRÐINGU SEGIR ÚTLITSFYRIRMYNDIR VERÐA SÍFELLT ÝKTARI MEÐ ÁRUNUM OG AÐ HUGTAKINU „HEILBRIGÐI“ HAFI Í RAUN VERIÐ STOLIÐ OG ÞAÐ AFBAKAÐ. Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is Árið 1990 litu þeir Leonardó og Rafael svona út. Kókómjólkurkisinn Klói hefur tekið djúpstæðum útlitsbreytingum frá því kókómjólk kom á markað árið 1973 og endurspeglar í dag líkamsvöxt Cristiano Ronaldo, fótboltastjörnu og undirfatafyrirsætu. Kostnaður vegna offitu á heimsvísu er nú orðinn jafnmikill og kostnaður vegna reyk- inga. Þetta segja niðurstöður nýrrar rannsóknar í Bretlandi. Þá er offita nú farin að valda samfélögum meiri kostnaði en bæði áfengissýki og gróðurhúsaáhrif. Um 2,1 milljarður manna, eða 30% jarðarbúa, er í yfirþyngd eða glímir við offitu. Offitan sífellt dýrari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.