Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Page 27
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Minningar
í jólatagatali
Gerður Steinarsdóttir, iðnhönnuður, fatatæknir og
teiknari, hannaði og myndskreytti fallegt, fjölnota jóla-
dagatal.
Jóladagatalið samanstendur af 24 stökum öskjum
með hanka, númeruðum frá 1-24. Hver askja
er myndskreytt og mynda þær skemmtilega
frásögn af aðventunni og undirbúningi jólanna.
Dagatalið er úr pappa og er það tímalaust og
margnota og framleitt hér á landi.
„Hugmyndin er sú að hver og einn setji
það sem henti í öskjurnar, uppáhalds súkku-
laðið, smáhluti eða miða með fallegum orð-
um. Til dæmis er sniðugt að skrifa góðar
minningar á miða og setja eina minningu í hverja
öskju handa þeim sem manni þykir vænt um,“ segir
Gerður sem unnið hefur að mestu sjálfstætt síðustu
ár og fengist við myndskreytingar, ýmiss konar teikn-
ingar og fleiri verkefni. Gerður Steinarsdóttir iðnhönnuður.
Eftir 60 farsæl ár
hefur Sjöan eftir
Arne Jacobsen
aldrei verið vin-
sælli. Í tilefni af-
mælis þessarar
klassísku hönn-
unarvöru hefur
framleiðandi Sjö-
unnar, Fritz Han-
sen, hafið fram-
leiðslu á sérstakri afmælisútgáfu
stólsins sem kemur á markað
2015. Byggt á litunum sem Arne
Jacobsen hannaði upprunalega á
sjöuna árið 1968 hefur Fritz Han-
sen hannað tvær einstakar útgáfur
af sjöunni.
Dimmblá skel og dökkbláir fætur
ljá stólnum kröftugt yfirbragð og
segir Fritz Hansen þá útgáfu stóls-
ins örlítið karlmannlega.
Hin útgáfan er lökkuð fölbleik og
fæturnir úr 24 karata gulli.
Stólarnir passa vel saman þrátt
fyrir andstæður í litavali og ýta
undir sérkenni hvor annars.
Arne
Jacobsen
Sjöan. Dimmblá
skel með dökk-
bláum fótum.
Fölbleik sjöa með 24 karata gullfótum.
Sjöan
er sextug
Við tökum svefninn alvarlega.
Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni, góðu handverki,
stöðugum prófunum og vandlega völdum efnum. Þegar þú sefur í
DUX rúmi hvílir líkami þinn á meira en 85 ára rannsóknum og þróun.
duxiana.is
DUXIANA Reykjavik,
Ármúla 10 / Sími 5 68 99 50
Gæðiogþægindi síðan1926
D
U
X
an
d
D
U
XI
A
N
A
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
ow
ne
d
by
D
U
X
D
es
ig
n
A
B
20
12