Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Page 35
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Skoska þjóðin er í sárum eftir að japanskur ein-
möltungur var á dögunum valinn besta viskí í
heimi. Viskígúrúinn Jim Murray gefur Yamazaki
einmöltungnum Sherry Cask 2013 97,5 af 100
mögulegum í Viskíbiblíunni fyrir árið 2015 og
fylgir einkunnagjöfinni eftir með orðunum: „Nær
ótrúleg snilld.“
Til að bíta höfuðið af skömminni kemst ekkert
skoskt viskí á topp fimm að þessu sinni en annað
eins hefur ekki gerst í tólf ára sögu Viskíbiblíunn-
ar. Japanskt viskí hefur heldur ekki í annan tíma
orðið hlutskarpast.
Valið var úr hvorki fleiri né færri en 4.500 teg-
undum að þessu sinni og Murray, sem fer fyrir
dómnefndinni, segir niðurstöðuna þarfa áminn-
ingu fyrir Skota og eimingarhús þeirra en enginn
einmöltungur þaðan komist nálægt sigurveg-
aranum þetta árið.
Viskíunnendur gætu þurft að hafa hröð hand-
tök en einungis átján þúsund flöskur af sig-
urviskíinu voru framleiddar.
Þurfa að finna í sér auðmýktina
Sjálfur bragðaði Murray hér um bil eitt þúsund
tegundir og segir meðalmennsku hafa einkennt
skoska framlagið. Skorar hann á viskíframleið-
endur þar um slóðir að finna í sér auðmýktina og
átta sig á því að einhverju er ábótavant hjá þeim.
Hafi skömm Skota ekki verið næg fyrir áttu
erkiféndur þeirra, Englendingar, viskí ársins í Evr-
ópu, Chapter 14 Not Peated frá English Whisky
Company. Viskí beint „af kúnni“, ef svo má að orði komast. Hvað ætli hafi farið úrskeiðis hjá Skotunum?
AFP
Japanskt viskí hlutskarpast
Því hefur verið spáð að innan fárra
ára standi súkkulaðiframleiðsla í
heiminum ekki undir eftirspurn
sælkeranna.
Súkkulaðigerðarkonan Chantal
Coady hjá súkkulaðiframleiðand-
anum Rococo kann ráð við þessu.
„Minna er meira,“ segir hún. „Fáið
ykkur einn gómsætan mola í stað
þess að fylla kviðinn af einhverju
rusli. Framleiðslan á eftir að
minnka. Njótið þess að borða
súkkulaðið og gefið ykkur lengri
tíma.“
Bara að þetta væri svona einfalt!
Þú ert það sem þú borðar. Það á
greinilega við um King Kong líka.
AFP
Minna
er meira
Steikin er komin á borðið fyrir
framan þig. En á hverju byrjar þú?
Ræðstu beint á kjötið? Eða með-
lætið? Eða blandarðu öllu á disk-
inum saman?
„Ég byrja alltaf á kartöflunum,“
segir breski stjörnukokkurinn Mar-
cus Wareing við dagblaðið The
Guardian, sem leitaði til hans með
þetta alræmda vandamál. „Síðan
sný ég mér að öðru meðlæti og
loks kjötinu,“ bætir Wareing við en
viðurkennir að þessi siður gæti haft
með það að gera að hann er sonur
kartöflu- og grænmetiskaupmanns.
En herra Wareing, hvað ef engar
kartöflur eru á diskinum?
Morgunblaðið/Golli
Byrjar á
kartöflunum
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
Jólahangikjöt
Henta fyrir minni sem stærri hópa.
Norðlenskt hangikjöt ásamt
eftirrétt.
Jólahangikjöt: Norðlenskt jólahangikjöt hentar vel í
hádegi.
Heitt og kalt Hangikjöt uppsett á föt með grænum baunum
gulrótum, soðnum kartöflum, jafningi, heimalöguðu
rauðkáli, laufabrauði, smjöri, flatkökum og baunasalati.
Eftiréttir: Desert diskur tveir réttir. Frönsk Súkkulaðitertu-
sneið með jarðaberjum, Ris - Allemande á kirsuberjahlaupi.
Jólahlaðborð 1
Er tilvalið fyrir smærri sem
stærri hópa.
Fiskréttir: Graflax á salati með dillsósu og brauði. Tvær
tegundir af síldarréttum (Jólasíld og karrýsíld) með eplum,
rúgbrauði og smjöri.
Kjötréttir: Kalt norðlenskt hangikjöt með grænmeti,
kartöflum, jafningi, heimalöguðu rauðkáli og laufabrauði.
Heitt: Hunangsgljáðar kalkúnabringur með ávöxtum og
smjöri. Purusteik (grísarifjasteik) og steiktum lambavöðvum,
með steiktum kartöflum, heimalöguðu rauðkáli, brauð-
fyllingu, eplarauðrófusalati, rótargrænmeti hússins og
rjómasósu.
Eftirréttir: Desert diskur tveir réttir. Frönsk Súkkulaðitertu-
sneið með jarðaberjum, Ris - Allemande á kirsuberjahlaupi.
Jólahlaðborð 2
Er tilvalið fyrir smærri sem
stærri hópa.
Fiskréttir: Graflax á salati með dillsósu og brauði.
Humarsalat með sjávarfangi. tvær tegundir af síldarréttum
(Jólasíld, karrýsíld) með eplum, rúgbrauði og smjöri.
Kjötréttir: Kalt norðlenskt hangikjöt með grænmeti,
kartöflum, jafningi, heimalöguðu rauðkáli og laufabrauði.
Jólapaté með púrtvínshlaupi og rifsberjasósu.
Heitt: Hunangs- og appelsínugljáðar kalkúnabringur.
Purusteik (grísarifjasteik).
Meðlæti: Steiktar kartöflur, brauðfylling með heimalöguðu
rauðkáli, rótargrænmeti hússins, Jólasalat og rjómasósa.
Nú fer að líða að jólum þá er gott að
panta tímanlega jólahlaðborðin.
Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera stundina fallega
með góðum veitingum og persónulegri og góðri þjónustu. Öll
þjónusta er innifalin í verði veitinga.
www.veislulist.is
Þú getur
lesið allt um
jólahlaðborð okkar á
Pantanir fyrir veislur þurfa
að berast tímalega.
..tímanlega!
Panta
ðu
Verð frá
kr. 5.544,-
5.800.-
Verð frá
fyrir stærri hópa*Jólahlaðborð 1
5.100.-
Verð frá
fyrir stærri hópa*Jólahlaðborð 2
3.650.-
Verð fr
á
Jólahan
gikjöt &
Ris a la
mande