Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014
Græjur og tækni
Vinsældir snjall-armbanda munu dvína á næstunni, segja
markaðsfræðingar, og neytendur munu frekar beina sjónum
að fjölhæfari snjallúrum og annars konar snjallklæðnaði. Ralph
Lauren frumsýndi til að mynda nýjan „snjallbol“ á síðasta opna
bandaríska mótinu í tennis. Bolurinn getur mælt hjartslátt og
svitamyndun og tengst við snjallsíma í gegnum Bluetooth.
Snjallklæðnaður taki við keflinu
E
itt af því sem prýðir veggi höf-
uðstöðva Google í Kaliforníu er fjöldi
mynda af tölvunarfræðingnum
Chade-Meng Tan, sem jafnan er
kallaður Meng, með þekktum einstaklingum.
Hann hóf að safna myndum af sér með
stjörnum þegar Al Gore, fyrrverandi varafor-
seti, og Jimmy Carter, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, heimsóttu Google. Síðan þá
hefur hann látið mynda sig með nokkrum
Bandaríkjaforsetum og þekktum Hollywood-
stjörnum. Myndirnar af Meng með fræga
fólkinu hafa farið víða um netheima og sagt
er að margar stórstjörnum biðji beinlínis um
að fá mynd af sér með honum, „hressa
gaurnum“ hjá Google. Segja má að hann sé
sannkallaður boðberi hamingju innan fyr-
irtækisins því síðustu ár hefur hann haft það
eina starf að halda námskeið fyrir starfsfólk
til að leiðbeina því um hvernig best sé að
finna hamingjuna. Hvorki meira né minna.
Meng er sjálfur á því að með aukinni ham-
ingju sé hægt að stuðla að heimsfriði.
Starfsmaður númer 107
Meng hóf störf hjá Google árið 2000 og er
starfsmaður fyrirtækisins númer 107 og
starfaði fyrstu átta árin við sjálfa leitarvélina
og útfærslu hennar fyrir farsíma. Nú eru
starfsmenn Google orðnir
um 50 þúsund talsins, þann-
ig að fyrirtækið hefur held-
ur betur vaxið frá því Meng
hóf þar störf. Jafnvel mætti
tala um heimsyfirráð fyr-
irtækisins – í netheimum að
minnsta kosti. Meng hefur
þó meiri áhuga á heimsfriði
en heimsyfirráðum. Innri
friður fólks sé ávísun á
heimsfrið, og hann vill byrja
á tæknigeiranum, nánar til-
tekið starfsfólki Google.
Hægt að kenna hamingju
með vísindalegri nálgun
Meng þróaði námskeið fyrir starfsfólk tækni-
risans þar sem hann beinlínis leiðbeinir fólki
skref fyrir skref í átt að aukinni hamingju.
Uppúr námskeiðunum varð til bókin Search
Inside Yourself sem kom út í Bandaríkjunum
árið 2012 og hefur nú komið út í íslenskri
þýðingu undir heitinu Núvitund – leitaðu inn
á við. Í bókinni lýsir Meng því hvernig hann
fetaði sig áfram með vísindalegum aðferðum
og komst að þeirri niðurstöðu að hamingja
einstaklingsins skipti mestu máli fyrir vinnu-
framlag hans og árangur í starfi.
Meng er afar upptekinn af þeirri stað-
reynd að hann sjálfur er tölvunarfræðingur
og vanur að hugsa hlutina eftir ákveðnum
kerfum og vill hafa vísindalegan grunn undir
flest það sem hann setur fram. Þess vegna
fannst honum nauðsynlegt þegar hann fór að
starfa við það að efla starfsfólk Google og
stuðla að auknum árangri þess í störfum sín-
um að allt það sem hann legði til væri stutt
vísindalegum rökum.
Eitt af því sem hafði mikil áhrif á þennan
óvenjulega starfskraft tæknirisans var met-
sölubók Daniels Goleman; Tilfinningagreind.
Meng telur að tilfinningagreind sé mik-
ilvæg, ekki síst fyrir fólk í tæknigeiranum.
Tilfinningagreind geti hjálpað til við að
verða framúrskarandi í starfi. Daniel Go-
leman, höfundur bókarinnar Tilfinn-
ingagreind og góður vinur Mengs, lýsir
Meng þannig í formála bókarinnar að hann
sé þeim eiginleikum gæddur að geta látið
öllum líða vel í kringum sig. Það er einmitt
eitt af því sem Meng vill leitast við að
kenna öðrum gegnum námskeiðin og bóka-
útgáfu.
Meng er sannfærður um að mikilvægasti
þáttur tilfinningagreindar sé hæfileikinn til
að skapa skilyrði fyrir hamingju. Þann hæfi-
leika sé hægt að öðlast með þjálfun.
Þjálfunin í hamingjuhæfileikanum byggist
svo aftur á djúpri innsýn í eigin huga og til-
finningar sem hægt sé að ná fram með því
að læra um núvitund og stunda hugleiðslu.
Innri friður er því nokkurs konar und-
anfari heimsfriðar, og allt þetta má fá með
því að horfa upp frá tölvuskjánum um
stund, hætta að gúggla og leita inn á við.
Á NAFNSPJALDINU HANS HJÁ GO-
OGLE STENDUR „JOLLY GOOD FEL-
LOW“ Í STAÐ STARFSHEITIS.
CHADE-MENG TAN ER ENGIN
VENJULEGUR TÖLVUNARFRÆÐ-
INGUR. HANN STARFAÐI Í MÖRG
ÁR VIÐ HÖNNUN LEITARVÉLAR EN
KENNIR NÚ FÓLKI AÐ LEITA INN Á
VIÐ OG FINNA HAMINGJUNA.
ÞANNIG TELUR HANN AÐ ALLIR –
LÍKA TÖLVUNÖRDAR EINS OG
HANN – GETI NÁÐ MEIRI ÁRANGRI.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Hressi gaurinn hjá Google
* Bók Mengs er beintengdásýnd Google, en heiti hennar er í
litum fyrirtækisins. Allur hagnaður
af bókinni fer til góðgerðarmála og
Meng gefur einnig öll laun sín þeim
sem þurfa meira á þeim að halda.
Sjálfur er hann ekki á flæðiskeri
staddur en hann hagnaðist ógurlega
á því þegar Google fór á markað,
enda starfsmaður númer 107. Hann
hefur þrisvar lagt inn beiðni til
fyrirtækisins um að laun hans verði
lækkuð niður í einn dollara á ári,
en því hefur jafnan verið hafnað.
Meng með Barack Obama. Eftir að Meng hafði náð myndum af sér með Al Gore og Jimmy Carter í höfuðstöðvum Google fór boltinn að rúlla og nú
prýða veggina hundruð mynda af Meng með frægum einstaklinum, t.d. Natalie Portman.
STARFSMAÐUR #107 LÆTUR TIL SÍN TAKA Í HEIMI SJÁLFSHJÁLPARBÓKA
Til að finna draumaprinsinn á netinu
er hætt við að kyssa þurfi marga
froska. Nýtt stefnumóta-smáforrit
leitast þó við að snúa þessari þróun
við. The Grade gefur notendum sín-
um einkunn í samræmi við vinsældir
þeirra, þ.e. hversu oft fólk smellir á
síður þeirra, gæði skilaboða (með til-
liti til málfræði og smekklegheita)
og hversu virkir þeir eru. Þeir sem
fá F í einkunn eru gerðir brottrækir
og allir notendur sem fá C eða minna
fá í hendur leiðbeiningar um hvernig
þeir geta bætt aðferðir sínar og
nálgun.
Forsvarsmenn The Grade halda
því fram að forritið sé hið fyrsta
sinnar tegundar sem bannar not-
endur sem ekki standa undir vænt-
ingum á vígvelli stefnumótamenn-
ingarinnar. Þeir segja ennfremur að
„nákvæmar markaðsrannsóknir“
bendi til þess að konur sem styðjast
við stefnumótaforrit séu „óánægðar
með lítið úrval af hágæðapipar-
sveinum og hversu algengt sé að
þær fái árásargjörn og óviðeigandi
skilaboð“.
APPIÐ
Rotnum eplum
fleygt
Nýja appinu er ætlað að kenna karl-
mönnum mannasiði.
„Ný hljómplata sem heldur upprunalegum hljóð-
gæðum til eilífðar og hljómgæði sem enginn fram-
leiðandi venjulegra plötuspilara hefur látið sig
dreyma um að ná.“ Það dró til tíðinda laugardag-
inn 5. mars 1983 þegar hin stórmerkilega upp-
finning „lazerplötuspilarinn“ – síðar þekkt sem
geislaspilari – var kynnt í Evrópu, m.a. í Heim-
ilistækjum, Sætúni 8. Tilkoma lazerplötuspilarans
var auglýst sem svo mikil bylting, tæknin allt að
því yfirnáttúrleg, og að það væri sem um innrás
frá öðrum hnetti væri að ræða. Ekki er vitað ná-
kvæmlega hvenær orðinu lazerplötuspilari var
skipt út fyrir hið mun svo þjálla orð geislaspilari,
en leit á netinu gefur til kynna að aðeins hafi ver-
ið stuðst við lazerplötuspilarann um skamma
hríð. Geislaspilari var tækninýjung sem fáir veðj-
uðu á. Markaðsfræðingar töldu fólk vera orðið
langþreytt á tækninýjungum auk þess að gæða-
munurinn væri ekki það mikill að líklegustu kaup-
endurnir létu freistast.
GAMLA GRÆJAN
Lazerplötu-
spilarinn
Lazerplötuspilarinn var auglýst sem „innrás í mars“.