Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Side 41
E
ftir tiltektir síðustu vikna var ég alveg
komin á þann stað í lífinu að nú yrðu fata-
breytingar hinn nýi svarti. Ég myndi al-
gerlega láta af fatakaupum í bili (vegna
plássleysis) og hin nýja ég væri nægjusemin
uppmáluð. Já, nú yrði sko sparað!
Á meðan á þessari tiltekt stóð sá ég mig fyr-
ir mér á Hrafnistu þar sem ég gengi ennþá í
gömlu kjólunum mínum og myndi dásama það við vin-
konur mínar yfir sérrístaupi hvað það hefði nú alltaf ver-
ið gott í henni Furstenberg.
En þegar ég var búin að fara yfir allt og setja til hlið-
ar það sem ekki var lengur í notkun hófst glundroð-
inn á ný … En tilhugsunin var ljúf á meðan hún
varði …
Eins mikið og mann langar að vera í ljósinu á þess-
um árstíma, vera nægjusamur og gleðjast yfir litlu þá
eru freistingar á hverju strái. Það eru meira að segja
komin eiguleg kerti í lágvöruverslanir sem maður
þarf nauðsynlega að eignast á meðan maður raðar
mandarínum í gula innkaupakörfu. Og ekki skánar
nú ástandið þegar konan kemst í tæri við allan tryll-
inginn sem er að finna í okkar annars dásamlegu versl-
unarmiðstöðvum. Og þótt maður ætli ekki neitt þá
stundum er bíllinn bara kominn á planið fyrir utan
Kringluna eða Smáralind og þá neyðist maður nátt-
úrlega til að fara einn hring … Ég meina, ekki getur
maður snúið við?
Á þessum árstíma kemur löngun í glimmer og glans-
efni, alveg sama hvort zenið er á sínum rétta stað eða
ekki. Og svo er alltaf fallegt að setja á sig vínrautt nagla-
lakk og klæða sig í rauðan kjól og kannski háhælaða
lakksó og setja í sig áberandi eyrnalokka og kannski
armband líka og jafnvel rauðan varalit.
Ég er örlítið að átta mig á því núna að líklega hefur
þessi árátta alltaf verið til staðar. Áður en
maður veit af er maður kominn í heilgalla úr
pallíettum og búinn að kaupa sér hatt eða
glimmerkórónu … alveg óvart.
Í fatatiltektinni ógurlegu fundust að
minnsta kosti tveir pallíettujakkar sem
keyptir höfðu verið í nóvember-maníu og
þar er líka hvítur smókingjakki, sem tvisvar
hefur verið farið í, og síðast en ekki síst sam-
festingurinn góði úr Madonnu-línunni úr
H&M.
Ég ákvað að pakka þessum æðislegu föt-
um ekki niður í kassa þótt fyrrnefndar flíkur
séu aldrei notaðar. Hvers vegna? Jú, vegna
þess að þessar flíkur minna mig á að ég get
stundum verið aðeins of hrifnæm þegar
kemur að fatakaupum. Með því að gefa fötin
væri ég að leyfa þessu ástandi að viðhaldast
en með því að horfast í augu við vandamálið,
á hverjum einasta morgni þegar ég klæði
mig, er veik von einhvers staðar í fjarska um
að þessu stjórnleysi fari að linna …
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Jólalínan úr Lindex.
Síðkjóll frá Ilse Jacobsen.
Nóvember-
geðveikin
Þessi rauði
fallegi kjóll
er úr Zöru.
martamaria@mbl.is
Glimmerbuxur
úr Lindex.
BELLAVISTA er eitt öflugasta fæðubótarefnið á
markaðnum fyrir sjónina. Náttúrulegir plöntukjarnar
ásamt vítamínum og steinefnum sem gegna
mikilvægu hlutverki í að viðhalda góðri og skarpri
sjón langt fram eftir aldri. Í BELLAVISTA er hátt
hlutfall af bláberjaþykkni og lúteini. BELLAVISTA er
á hagstæðu verði og er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Kynntu þér BELLAVISTA á www.gengurvel.is
Á H R I F A R Í K
LEIÐ TIL AÐ VIÐHALDA
GÓÐR I S J Ó N
Fæst í f lestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhi l lum stórmarkaðanna
Bragðgóðar jólagjafir.
Ekta íslenskt handgert konfekt.
Kemur í glæsilegum
jafapakkningum.
Vertu tímanlega fyrir jólin
pantaðu strax í dag.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
Sími 566 6145 | mosfellsbakari.is | mosfellsbakari@mosfellsbakari.is
MOSFELLSBAKARÍ
Handverksb
akarí
fyrir sælkera