Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Síða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Síða 51
King Eider í Stykkishólmi. Bókin nefnist „Eiders, from the other side of Iceland“ og kemur út næsta sumar. Verður bókin m.a. seld í Æðarsetri Íslands í Stykkishólmi. Bruce komst í kynni við Gunnellu þegar hann keypti af henni málverk og þannig hefur hann kynnst fjölda íslenskra listamanna. Sjálfur segist hann eiga yfir 50 íslensk málverk, bæði eftir þekkta og óþekkta lista- menn, en þegar gengið er um húsið sést að þau eru enn fleiri. Hann segist þá ekki telja allra minnstu myndirnar eða ljósmyndirnar held- ur miðar við málverk sem myndu sóma sér á hvaða safni sem er. Draumur hans er að geta komið myndunum á safn í Bandaríkjunum að honum gengnum. Uppáhaldsverk hans er nefnilega Draumalandið, eftir Gunnellu, og það stærsta í safninu. Sjálfur hefur Bruce snúið sér að myndlist samfara ljósmyndun og ljóðagerð. Á hverjum degi málar hann með vatnslitum og sendir póstkort í tölvupósti til vina og vandamanna víða um heim. Á þeim lista er m.a. nánasta fjölskylda hans; sonur, tengdadóttir og tveir afadrengir, sem búa í Sviss. Vatns- litunum kynntist Bruce einmitt í gegnum eldra barnabarnið, þegar þeir settust niður og fóru að lita með vatnslitum. Síðan þá hefur hann verið að þróa sig áfram í myndlistinni og m.a. sótt námskeið og vinnustofur í Bandaríkjunum. „Ljósmyndun, skriftir og mynd- list. Fyrir mig er þetta allt sama ferðalagið. Þú ert að reyna að tjá tilfinningar og túlka umhverfið með þínum hætti. Þetta er það sem ég elska að gera. Ef ég get veitt ein- hverjum innblástur þá er það frá- bært,“ segir Bruce sem einnig setur vatnslitamyndir sínar inn á blogg- síðuna theartofbruce.blogspot.com. Þá er hann með ýmsan fróðleik inni á vefsíðunni brucemcmillan.com. Bruce hefur farið víða í skóla og söfn í Bandaríkjunum og flutt þar fyrirlestra um eigin verk og ann- arra. Þar ber Ísland oft á góma og hann er því duglegur að kynna land og þjóð. „Ég á Einari Gústafssyni í New York og Icelandair mikið að þakka fyrir að hafa haft tækifæri til að koma til Íslands og vinna þar. Að öðrum kosti hefðu þessar bækur ekki orðið til á Íslandi.“ Eldaði íslenskan fisk Bruce er gestrisinn og að viðtalinu loknu býður hann blaðamanni í mat. Gestgjafinn kann vel við sig í eld- húsinu og í ljós kemur að hann er listakokkur. Á boðstólum er íslensk- ur fiskur. En ekki hvað? Fersk þorskflök sem höfðu komið í flugi beint frá Íslandi til Boston um morguninn og voru komin í fiskbúð í Maine síðar um daginn. Ást Bruce McMillan á Íslandi er ósvikin og við kveðjum þennan lífsglaða listamann með þeim fáu orðum sem hann skil- ur á íslensku: „Takk fyrir, frábært, bless og sjáumst.“ Þúfa Ólafar Nordal og Esja í bakgrunni. Ein fjölmargra ljósmynda sem Bruce McMillan hefur tekið á ferðum sínum um Ísland, þessi var tekin snemma í sumar. Ljósmynd/Bruce McMillan Sannur Íslandsvinur, með einkabílnúmerið Iceland og gestir fá ákveðin skila- boð í innkeyrslunni. Morgunblaðið/Björn Jóhann 23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Bruce McMillan hefur sent frá sér 45 barnabækur með eigin ljósmyndum en einnig mynd- skreytingum eftir aðra, eins og Gunnellu Ólafsdóttur. Frá þeim hafa komið bækurnar The Pro- blem with Chickens, sem náði töluverðri útbreiðslu í Banda- ríkjunum, How the Ladies Stopped the Wind og Winter Games. Aðrar bækur frá Íslandi eru m.a. Going Fishing og My Horse of the North. Nights of the Pufflings er lík- lega ein vinsælasta bókin sem Bruce hefur gert og þar á eftir kemur Puffins Climb, Penguins Rhyme, sem er myndabók með stuttum ljóðum um lunda á Ís- landi og mörgæsir á suðurskaut- inu. Bókin Eating Fractions fór víða í skóla í Bandaríkjunum til kennslu í stærðfræði. Bruce hefur fengið fjölda við- urkenninga í Bandaríkjunum fyrir bækur sínar. Árið 2007 fékk hann t.d. heiðursverðlaun Ka- tahdin-verðlaunanna fyrir ævi- starf sitt og framlag til barna- bókmennta í Maine-ríki. Á bókasafninu í Shapleigh er Bruce gert hátt undir höfði og starfsmenn hafa heiðrað hann með sérstöku horni í safninu. Eru heimamenn greinilega stoltir af sínum manni. 45 BARNABÆKUR HAFA KOMIÐ ÚT Bruce McMillan er með eigið horn á bókasafninu í Shapleigh í Maine. Morgunblaðið/Björn Jóhann Heiðraður á safninu Nights of the Pufflings, Pysjunætur, er ein vinsælasta bókin frá Bruce.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.