Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 53
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Faðir hennar lá undir það síðasta á Kristnesspítala í Eyjafirði og bjó Vagna Sólveig á þeim tíma á Akur- eyri. „Pabbi hafði fengið heilablóð- fall og var hættur að geta tjáð sig. Eigi að síður heimsótti ég hann á hverjum degi. Daginn sem hann dó gerði ég það hins vegar ekki, leið eitthvað undarlega og lét nægja að hringja frameftir. Þá var allt í lagi með pabba. Um kvöldið fór ég allt í einu að finna lyktina af pabba inni í stofu og varð strax órótt. Hringdi fram í Kristnes og þá var hann nýdáinn.“ Daginn eftir átti Vagna Sólveig afmæli og var að baka pönnukökur handa börnunum sínum af því tilefni um morguninn. Þá heyrði hún ein- hvern fara á klósettið, leit upp og sá föður sinn, eins og hvern annan ljóslifandi mann. „Ég fraus og horfði opinmynnt á eftir honum. Trúði ekki mínum eigin augum. Þegar ég hafði náð áttum fór ég fram á klósett – en þar var enginn. Ég get ekki skilið þetta á annan veg en þann að pabbi hafi þarna verið að láta mig vita að það sé líf eftir þetta líf. Hann stóð sumsé við orð sín,“ segir hún. Geri það bara í næsta lífi! Síðar missti Vagna Sólveig eig- inmann sinn, Snorra Bergsson. Hann lá á sjúkrahúsi í Reykjavík en hún var heima á Þingeyri. Eina nóttina vaknaði hún við það að Snorri kallaði á hana. Kvaðst vera að reyna að opna svefnherberg- isgluggann fyrir kettinum en gat það ekki vegna þess að glugginn var frosinn fastur. Þegar Vagna Sólveig fór fram úr var Snorri ekki við gluggann, aðeins kötturinn. „Um morguninn hringdu þeir í mig að sunnan og sögðu mér að Snorri væri dáinn. Það er varla tilviljun að þeir skuli hafa vitjað mín báðir rétt eftir að þeir dóu, pabbi og Snorri.“ Vagna Sólveig segir þessa vitn- eskju, um líf eftir dauðann, hafa létt af sér ákveðinni pressu. „Ef ég nenni ekki að gera eitthvað í þessu lífi, geri ég það bara í því næsta,“ segir hún hlæjandi. Að öllu gríni slepptu kveðst Vagna Sólveig ekki vita hvað bíður okkar fyrir handan enda kærir hún sig ekkert endilega um það. „En það er eitthvað, svo mikið er víst. Fólk er bara að flytja þegar það deyr. Við þurfum að fara að horfa öðrum augum á dauðann, það er al- gjör óþarfi að óttast hann. Alltént geri ég það ekki. Sumir segja að það sé vegna þess að ég er orðin gömul. Þetta tvennt fer þó alls ekki alltaf saman, fjölmargt gamalt fólk er logandi hrætt við dauðann.“ Þrátt fyrir þennan núning við aðra heima hefur Vagna Sólveig aldrei kært sig um að fara á miðils- fund. Sér ekki ástæðu til að raska ró hinna látnu. Einhverju sinni fór mágur hennar, bróðir Snorra heit- ins, á miðilsfund og kom Snorri þar fram. Velti því meðal annars fyrir sér hvers vegna Vagna Sólveig væri að íhuga að flytja burt frá Þingeyri. „Þetta þótti mér skrýtið, hvernig gat Snorri vitað það? Ég fór ekki að velta þessu fyrir mér fyrr en eft- ir að hann var dáinn.“ Eiginmaðurinn á sveimi Næstu daga áttu sér stað und- arlegir atburðir. Það var eins og Snorri reyndi stöðugt að smeygja sér upp í rúmið til Vögnu Sólveigar á nóttunni. Hún sá hann ekki en fann fyrir návist hans. „Ég botnaði hvorki upp né niður í þessu. Hringdi í Sólveigu dóttur mína, sem býr hérna fyrir vestan, og sagði henni að ég hefði ekki flóafrið fyrir föður hennar. Hann væri alltaf að reyna að komast upp í rúm til mín. Sólveig sagði mér að vera ekki með þessa vitleysu en hringdi samt í sál- arrannsóknarfélagið fyrir mig. Til öryggis. Þar var henni tjáð að gengi miðill ekki nægilega vel frá eftir sig á fundi ættu sálir hinna látnu til að sleppa út, ef svo má að orði komast. Haft var samband við miðilinn sem gekk í málið. Eftir það hef ég ekki orðið vör við hann Snorra minn.“ Það er ekki bara líf eftir dauðann, Vagna Sólveig hefur skýra vísbend- ingu um að endurholdgun sé einnig til. Þannig er mál með vexti að eitt fimm barna hennar, Knútur Krist- inn Snorrason, lést aðeins eins og hálfs árs gamall, árið 1975, úr heila- himnubólgu. Hann hafði legið fár- sjúkur í tvo sólarhringa á spítala á Þingeyri áður en tekin var ákvörðun um að senda hann með flugvél til Reykjavíkur. Hvorugt foreldranna komst með enda einungis rými fyrir flugmanninn, lækninn og barnið í vélinni. Knútur litli lifði flugið af en lést á Reykjavíkurflugvelli áður en hann komst á spítala. Rúmum tveimur áratugum síðar, 1996, ól Sólveig, dóttir Vögnu Sól- veigar, son á afmælisdegi Knúts heitins, 7. mars. Hlaut hann nafnið Birgir Knútur Birgisson, alltaf kall- aður Knútur. Amma, ég á þessa úlpu! „Það er svo merkilegt að þegar ég horfi í augun á þessum dóttursyni mínum finnst mér ég vera að horfa í augun á honum Knúti mínum,“ seg- ir Vagna Sólveig sem velti því ekki frekar fyrir sér fyrr en dag einn þegar Knútur yngri var líklega fimm ára. Hann var þá í heimsókn hjá henni með móður sinni og hvarf stundarkorn. Kom svo aftur með úlpu sem hann hafði fundið í svefn- herbergi ömmu sinnar. „Hvað ertu að gera með þessa úlpu, Knútur minn?“ spurði Vagna Sólveig. „Ég á hana,“ svaraði barnið. „Nei, nei, ég á hana,“ sagði amm- an. „Nei, amma. Ég átti þessa úlpu þegar ég var pínulítill og núna lang- ar mig að gefa mömmu hana handa barninu sem hún er með í mag- anum.“ Vögnu Sólveigu féll allur ketill í eld enda hafði hún aldrei sýnt dótt- ursyni sínum téða úlpu sem sonur hennar hafði verið í þegar hann dó. „Hvað rak litla Knút fram í svefn- herbergi?“ spyr hún undrandi. Seinna lánaði Vagna Sólveig Knúti yngri hatt og staf Snorra afa síns fyrir skólaskemmtun. Teknar voru af honum tvær ljósmyndir á skemmtuninni. Á annarri er hann dökkhærður, eins og hann er í raun og veru, en á hinni rauðhærður, eins og Knútur eldri hafði verið. Ég er bara ég sjálf Vagna Sólveig er ekki í nokkrum vafa. „Knútur yngri er Knútur minn endurfæddur. Annað getur ekki ver- ið. Enda fer hann á tyllidögum og leggur blóm eða kveikir á kerti á „leiðinu sínu“. Hann áttar sig alveg á þessu líka.“ Vagna Sólveig gerir sér fulla grein fyrir því að einhverjum muni þykja frásögn hennar í þessu viðtali með ólíkindum og jafnvel rengja hana. Þá muni hún örugglega fá einhvers staðar skömm í hattinn fyrir að viðra þessi mál opinberlega. Hún kærir sig kollótta um þau við- brögð. „Mér er alveg sama hvað öðrum finnst. Ég er bara ég sjálf og segi frá því sem mér sýnist. Ég hef upplifað þetta allt. Og trúi því öllu.“ Alþingishúsið er af einhverjum ástæðum „sýkt“, að sögn Vögnu Sólveigar, og flytja þarf þingið annað eigi það að hafa vinnufrið. Morgunblaðið/Ómar * Það er erfitt aðlýsa þessu meðorðum. Maður finnur fyrir návist af ein- hverju tagi – að mað- ur er ekki einn. Samt sér maður engan og getur ekki tekið á neinum. Það er eins og maður sé að troða einhverjum um tær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.