Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Side 59
Ný skáldsaga Hátíð merkingarleysunnar
eftir Milan Kundera er komin út í íslenskri
þýðingu Friðriks Rafnssonar, en þar gerir
höfundurinn grín að alvörunni sem einkennir
samtímann. Kundera sendi síðast frá sér skáld-
sögu fyrir 14 árum eða árið 2000 þegar hann
sendi frá sér Fáfræðina.
Milan og Vera Kundera hafa komið nokkrum
sinnum til Íslands og hafa mikið dálæti á landinu.
Ísland og íslensk menning koma fyrir í sex þeirra fimmtán bóka
sem Kundera hefur skrifað, sumt af því löngu áður en hann kom
hingað til lands fyrst. Hér eru nokkur dæmi: í Kveðjuvalsinum
(skáldsögu frá 1973) er minnst á laxveiðar á Íslandi, í Bókinni
um hlátur og gleymsku (skáldsögu frá 1979) er minnst á ein-
vígi Fischers og Spasskís í Reykjavík, í Svikunum við erfðaskrárnar (ritgerðasafni
frá 1993) eru vangaveltur út frá orðunum „fjölskylda“ og „fjölskyldubönd“ í tengslum
við grein um tónskáldið Janacek, og þar er líka sagt frá gönguferð með íslenskum vini
höfundar, Elvari D. um gamla kirkjugarðinn í Reykjavík, í Fáfræðinni (skáldsögu frá
2000) er meðal annars fjallað um orðin „söknuður“, „heimþrá“ og beinamál Jónasar
koma þar meðal annars við sögu, í Tjöldunum (ritgerðasafn frá 2005) er fjallað nokk-
uð um Íslendingasögurnar og gildi þeirra í heimsbókmenntunum og í Kynnum (rit-
gerðasafni frá 2009) er kafli um skáldsöguna Svaninn eftir Guðberg Bergsson. Kun-
dera skrifaði formála að bók um Kristján Davíðsson listmálara sem Listasafn Íslands
gaf út í tilefni af yfirlitssýningu á níræðisafmæli listamannsins (2008) og verk eftir Krist-
ján hafa verið notaðar á bækur Kundera, meðal annars hérlendis og í Frakklandi. Allar
skáldsögur Kundera eru nú til á íslensku og öll ritgerðarsöfnin utan eitt.
Ný skáldsaga eftir hinn
snjalla Kundera er komin út.
MILAN KUNDERA OG ÍSLAND
Milan Kundera
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Snjór í myrkri er ný skáldsaga
eftir Sigurjón Magnússon. Tón-
listarkonan Lilla hvarf kvöld
nokkurt eftir stuttan en glæsi-
legan feril og fannst nokkrum
mánuðum síðar myrt á hrotta-
fenginn hátt. Lítt þekktur rit-
höfundur fær það verkefni að
skrifa ævisögu hennar. Hann
ætlar ekki að kanna afdrif
hennar nánar, enda hefur hann
skamman tíma til að ljúka verk-
inu. Kvöld eitt verður á vegi
hans ung kona sem býr yfir
óþægilegri vitneskju.
Sigurjón hefur sent frá sér
nokkrar skáldsögur og síðasta
skáldsaga hans Endimörk
heimsins var tilnefnd til Ís-
lensku bókmenntaverð-
launanna.
Örlög
tónlistarkonu
Nú um helgina verður Bókamessa í Bókmenntaborg
haldin í fjórða sinn í Ráðhúsinu. Útgefendur munu
kynna nýútkomnar bækur og boðið verður upp á
fjölbreytta dagskrá alla helgina. Upplestrar, sögu-
stundir, ljúffengt smakk og fjölbreyttar uppákomur.
Aðgangur er ókeypis og opið verður frá kl. 12:00-
17:00 báða dagana.
BÓKAMESSA Í RÁÐHÚSINU
Steinunn Sigurðardóttir hlaut á
dögunum verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar og er vel að
þeim komin, enda afar flinkur
stílisti. Gæðakonur er ný skáld-
saga eftir Steinunni. Eldfjalla-
fræðingurinn María Hólm
kynnist hinni dularfullu Donnu
sem hefur afar róttækar hug-
myndir um hlutverk kynjanna.
Steinunn kemur víða við í þess-
ari nýju skáldsögu og ást, eró-
tík og íslensk náttúra koma við
sögu.
María og hin
dularfulla
Donna
Áhugaverðar
konur og
Reykjavík
NÝJAR BÆKUR
HELGA GUÐRÚN JOHNSON SKRIFAR UM KONUR
SEM ÁTTU DRAMATÍSKA ÆVI, STEINUNN SIGURÐ-
ARDÓTTIR SKRIFAR UM KONUR Í NÝRRI SKÁLD-
SÖGU OG LISTAKONA KEMUR VIÐ SÖGU Í
SKÁLDSÖGU SIGURJÓNS MAGNÚSSONAR. Í
MERKILEGRI BÓK ER SAGT FRÁ REYKJAVÍK SEM
EKKI VARÐ. BÓK UM GRAFNING ER KOMIN ÚT.
Saga þeirra, sagan mín er bók eftir
Helgu Guðrúnu Johnson, en þar
segir frá þremur kynslóðum
kvenna: Katrínu Thorsteinsson,
dóttur hennar Stellu Briem og
Katrínu Stellu Briem. Þetta er bók
um mikil og dramatísk örlög, en
bæði Katrín og Stella áttu óblíða
ævi, en Katrín Stella ákvað að skapa
sér sín eigin örlög. Góð og drama-
tísk bók.
Dramatískt líf
þriggja kvenna
Reykjavík sem ekki varð er bók sem fjöl-
margir munu hafa ánægju af að kynna sér.
Það er reyndar algengt þessa dagana að sjá
viðskiptavini bókabúða upptekna við að
glugga í hana. Anna Dröfn Ágústsdóttir
sagnfræðingur og Guðni Valberg arkitekt
rekja sögu bygginga í Reykjavík sem í upp-
hafi átti að reisa á öðrum stað eða í annarri
mynd en flestir þekkja. Áhugaverðar mynd-
ir prýða þessa mjög svo forvitnilegu bók.
Öðruvísi Reykjavík
*Maður á að hafa metnað til að veraærleg manneskja.Guðrún Eva Mínervudóttir BÓKSALA 12.-18. NÓV
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 DNAYrsa Sigurðardóttir
3 SkálmöldEinar Kárason
4 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason
5 Þín eigin þjóðsagaÆvar Þór Benediktsson
6 OrðbragðBragi Valdimar Skúlason/
Brynja Þorgeirsdóttir
7 ÁstarmeistarinnOddný Eir Ævarsdóttir
8 HallgerðurGuðni Ágústsson
9 TáningabókSigurður Pálsson
10 GæðakonurSteinunn Sigurðardóttir
Kiljur
1 Í innsta hringViveca Sten
2 AfdalabarnGuðrún frá Lundi
3 Pabbi er farinn á veiðarMary Higgins Clark
4 Lífið að leysaAlice Munro
5 LolitaVladimir Nabokow
6 Fangi himinsinsCarlos Ruiz Zafón
7 ArfurinnBorgar Jónsteinsson
8 MánasteinnSjón
9 Þegar dúfurnar hurfuSofi Oksanen
10 Fjársjóðsleit á ströndumLúkas Kárason
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Æfingin skapar meistarann.
Í bókinni Grafningur og Grímsnes – Byggðasaga
er fjallað um Grafning, sögu og mannlíf á árunum
1890-2012 og Grímsnes að hluta til. Hverri jörð
er lýst í knöppu máli og í ábúendatali er þráð-
urinn rakinn bæ frá bæ eftir hinni gömlu boðleið
og grein gerð fyrir ábúendum og niðjum þeirra.
Mikið ítarefni er í verkinu og tengist það með-
al annars staðfræði, atvinnuháttum, sögu og
sögnum, þjóðfræði og þjóðháttum. Fjöldi ljós-
mynda er í ritverkunu frá öllum þeim tíma sem
fjallað er um. Sigurður Kristinn Hermundarson
tók saman.
Saga og mannlíf
í Grafningi
Bókamessa verður í Ráðhúsinu
um helgina og mikið um dýrðir.