Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 6
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
ð
þ ð ð
ð
ð
Reykjavíkurborg ı 411 1111 ı www.reykjavik.is/eignir
Re
yk
ja
ví
ku
rb
o
rg
1
7.
m
aí
2
01
3
/
JH
J
með talsverða sérstöðu
Til sölu:
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Þekkt
pípulagningarfyrirtæki
Núverandi eigandi vill hætta vegna aldurs en er til í að starfa
tímabundið með nýjum eiganda.
Um er að ræða rótgróið fyrirtæki með fjölda fastra viðskipta-
vina og góða afkomu árum saman. Joma hefur góð sambönd
við erlenda framleiðendur og hefur flutt inn mikið
af þeim vörum sem fyrirtækið notar og selur.
Tilvalið tækifæri fyrir duglega pípara eða aðra iðnaðarmenn
sem treysta sér í eigin rekstur. Auðveld kaup.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Jens Ingólfsson í
síma 414 1200 og 820 8658, jens@kontakt.is
H
a
u
ku
r
0
5
.1
3
VIÐSKIPTI Nokkur fjöldi þeirra sem
gerðu tilboð í hluti í TM í hlutafjár-
útboði félagsins stóð að lokum ekki
við tilboð sitt. Um 2% af þeim hluta-
bréfum sem selja átti í útboðinu var
því skilað til Stoða sem seldu hluti
sína í útboðinu.
Viðskiptablaðið greindi frá þessu
á fimmtudag en um er að ræða
hlutabréf að verðmæti ríflega 90
milljóna króna sé miðað við útboðs-
gengið sem var 20,1 króna á hlut.
Eftirspurn eftir hlutabréfum
í TM var 357 milljarðar króna í
útboðinu en hlutaféð sem var til
sölu var 4,4 milljarða virði. Eftir-
spurn var því áttatíuföld en talið er
að fjöldi fjárfesta hafi sett inn tilboð
langt umfram greiðslugetu til að
bregðast við fyrirsjáanlegri skerð-
ingu á veittum hlutum.
FME hefur að þessum sökum
tekið verklag við hlutafjárútboð til
skoðunar en stofnunin telur að sú
hegðun að fjárfestir leggi inn hærra
tilboð en hann getur staðið við geti
talist vera markaðsmisnotkun í
skilningi laga. - mþl
Ekki var staðið við tilboð í um 2% þess hlutafjár sem seldur var í útboði TM:
90 milljónir fóru aftur til Stoða
EFTIRSÓTT BRÉF Þeir sem stóðu ekki
við tilboð sín sjá væntanlega eftir því
þar sem verð hluta í TM hafði í gær
hækkað um 27,6%. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKÓLAMÁL Hvalarannsóknarbauja,
álagsgreining fyrir loftfimleika,
sjálfvirkt iðnvélmenni í fullu
fjöri, teslaspóla sem spilar tónlist,
jeppakerra með krana og rafdrifið
gasgrill sem hægt er að færa með
fjarstýringu eftir hentisemi voru
meðal þess sem nemendur á tækni-
og verkfræðideild Háskólans í
Reykjavík kynntu á uppskeruhá-
tíð sem haldin var hátíðleg í gær.
„Þetta er í rauninni kynning
nemenda á verkefnum sem þeir
hafa verið að vinna í þriggja vikna
námskeiðum,“ segir Guðrún Sæv-
arsdóttir, forseti tækni- og verk-
fræðideildar Háskólans í Reykja-
vík. „Tilgangur námskeiðsins er
að nemendur fái hugmynd, útfæri
hana, hrindi henni í framkvæmd
og fylgi henni svo eftir. Þannig
eflum við áhuga nemenda á fræði-
lega efninu, eftir þessum prakt-
ísku leiðum. Með því að leyfa þeim
að prófa sjálfum. “
Guðrún var að vonum ánægð
með nemendur sína. „Krakkarnir
eru í skólanum næstum allan sól-
arhringinn á meðan á þessu nám-
skeiði stendur. Þetta er rosalega
skemmtilegt verkefni, fyrir kenn-
ara og nemendur, og afraksturinn
náttúrulega rosalega áhugaverður
og skemmtilegur.“ olof@frettabladid.is
Fjarstýrt gasgrill og
sjálfvirkt vélmenni
Nemendur í tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík kynntu í gær tæki og
tól sem þeir hafa verið að vinna að síðustu vikur. Þar mátti meðal annars sjá fjar-
stýrt gasgrill og jeppakerru með krana. Eflir áhugann, segir forseti deildarinnar.
EINBEITTUR Birgir Hallgrímsson sést hér með teslaspólu sem
spilar tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÆKNITRÖLL Sjálfstýrt vélmenni sem keyrir sjálft, forðast
hindranir og spilar tónlist. Nemendur fylgjast spenntir með.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SUMARUPPFINNING Gísli Freyr,
ábyrgðarmaður vélaverkstæðis HR,
grillar hér pylsur á rafdrifnu gasgrilli.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓLK Sara Nassim, kvikmyndagerðarkona á Íslandi,
komst nýlega inn í meistaranám í framleiðsludeild
American Film Institute í Los Angeles. „Það er náttúru-
lega frábært að komast þarna inn, og ég hlakka til að
byrja í ágúst,“ sagði Sara í samtali við Fréttablaðið.
American Film Institute er einn virtasti kvikmyndahá-
skóli í heimi og því ljóst að það er mikill heiður að hljóta
inngöngu. Á meðal útskrifaðra nemenda AFI eru Darren
Aronofsky og David Lynch. „Ég bjóst ekkert við því að
komast inn enda fáir teknir inn á hverju ári.“
Sara hefur verið iðin við kolann síðastliðin ár og hefur
komið að gerð fjölda kvikmynda, auglýsinga og sjónvarps-
þátta á Íslandi. Ljóst er að mikill missir verður að Söru í
stéttinni. „Ég hlakka til að fara í skóla og veit að ég mun
læra margt sem getur nýst mér í starfi. Kvikmyndagerð
er skemmtileg, en á köflum krefjandi vinna. Ég vil halda
áfram á sömu braut, en það verður ekkert verra að skipta
aðeins um umhverfi þótt ég muni sakna allra sem ég er
vön að vinna með hér heima,“ sagði Sara. „Ég vona bara
að íslensk kvikmyndagerð haldi áfram að þróast á þeim
hraða sem hún hefur verið að gera undanfarin ár. Hver
veit? Kannski kem ég heim og loksins verður búið að rétta
hlut kvenna í bransanum,“ sagði Sara kímin. - ósk
SARA NASSIM Hlakkar til haustsins þegar hún hefur
nám við AFI. MYND/ÚR EINKASAFNI
Íslensk kona kemst inn í hina virtu framleiðsludeild American Film Institute:
Vonar að hlutur kvenna aukist