Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 38
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
hefur haldið með í þrjá ára-
tugi.
„Áður fyrr lögðust
heilu helgarnar undir
pirring og vonbrigði
ef City tapaði,“
segir Gulli sem tók
þá ákvörðun fyrir
nokkrum árum að
hætta að svekkja sig
á þessu. Hann myndi
fagna ef liðið ynni en
„ef þeir tapa þá tapa
þeir bara“.
„Ég ætla ekki að láta
það bitna á fjölskyldu
minni, vinum eða öðru
fólki í kringum mig ef
fótboltaliðið mitt tapar.“
Því er þó fjarri að áhugi
hans á íþróttinni fögru
sé minni fyrir vikið.
„Ég og þú, fótbolta-
menn og fjölmiðla-
menn, við lifum fyrir
fótboltann. Við hugs-
um um hann, tölum
um hann, horfum
á hann og spilum
hann. Ég sé ekki
eftir neinu á fótbolta-
ferlinum og það gerði
mig að því sem ég er
í dag. Ég er ánægður
með mig í dag.“
eigi stóran þátt í hvernig hann hafi
þróast sem markvörður. Hann segist
vel hafa vitað að Kristján væri aðal-
markvörður KR en lítið spáð í því.
„Ég var hrokafullur á þessum tíma
og taldi að ekkert myndi stoppa mig,“
segir Gulli. Um mitt sumar fékk Gulli
tækifærið sem hann nýtti heldur betur.
Hann hélt markinu hreinu í 641 mínútu
og KR var hársbreidd frá því að landa
Íslandsmeistaratitlinum.
Frammistaða Gulla í markinu
spurðist út og fór hann til Wimbledon
á reynslu. Þá greindu fjölmiðlar frá
því að Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, hefði auga-
stað á Gulla.
„Mér fannst þetta svakafínt og tal-
aði um þetta um allan bæ. Þetta var
skemmtilegt og mikið hrós,“ segir
Gulli. „En það hafa verið hæðir og
lægðir í þessu,“ segir Gulli sem var
kominn á bekkinn sumarið 1999 þegar
KR vann langþráðan Íslandsmeist-
aratitil og vann einnig bikarinn. „Það
fannst mér mjög erfitt og ákvað að
reyna fyrir mér annars staðar.“ Svo fór
að Gulli samdi við Keflavík og lék með
liðinu næstu tvö tímabil.
Konan sem bjargaði Gulla
Þótt gengið á knattspyrnuvellinum
suður með sjó hafi verið með ágætum
var einkalífið hjá markverðinum í
molum. Hann segist hafa verið að
blekkja sjálfan sig þegar hann flutti
suður. Hann hafi verið kærulaus, við-
horf sitt hafi ekki verið rétt og hann
hafi ekki borið ábyrgð á neinu.
„Mér fannst bara tímaspursmál þar
til ég færi út í atvinnumennsku og
yrði milljónamæringur,“ segir Gulli.
Athyglin sumarið 1998 hafi stigið
honum til höfuðs og hann hafi verið
kominn í mjög slæm mál fjárhagslega
séð. Hann spilaði sína fyrstu landsleiki
á þessum tíma, kynntist vinum fyrir
lífstíð í Keflavík en leið ekki vel. Hann
sagði skilið við Keflavík haustið 2001
og hélt í heimahagana í HK.
„Ég var ekki á góðum stað þegar ég
hætti í Keflavík og ég og þáverandi
eigin kona mín skildum,“ segir Gulli.
Í kjölfarið fór hann að reikna dæmið
upp á nýtt. Hann fór að vinna hjá HK
ásamt því að spila með félaginu og
kynntist núverandi eiginkonu sinni,
Hildi Einars dóttur, sumarið 2002. Um
annan tímapunktinn var að ræða.
„Eftir að við kynntumst fór ég að
hugsa hlutina upp á nýtt,“ segir Gulli
og er greinlegt að Hildur, sem spilaði
um tíma sem framherji með Breiða-
bliki, hefur verið mikill áhrifavaldur
í lífi Gunnleifs.
„Hún er mín helsta fyrirmynd í líf-
inu,“ segir Gulli. „Hildur er mun yngri
en ég en algjörlega mín stærsta og
besta fyrirmynd,“ segir Gulli en tíu ára
aldursmunur er á þeim.
Þau gengu í það heilaga árið 2009 og
eiga saman þrjú börn sem fæddust með
tveggja ára millibili árin 2006, 2008 og
2010. Auk þess á Gulli dóttur úr fyrra
sambandi sem fædd er árið 2001.
Á sökin á ríg Breiðabliks og HK
Gunnleifur stendur í dag á milli stang-
anna hjá Breiðabliki, erkifjendum HK-
inga. Það vakti eðlilega mikla athygli
þegar hann gekk í raðir Blika síðast-
liðið haust en hann segist umfram allt
halda með einu liði, fjölskyldu sinni.
Þriggja ára samningur var í boði og
ekki hafi verið erfitt að ganga í raðir
Blika.
„Ég á sennilega mesta sök á þessum
ríg HK og Breiðabliks,“ segir Gulli og
hlær. Hann segir sig og félaga sína
meðvitað hafa eflt ríginn á milli HK og
Breiðabliks þegar hann sneri aftur í HK
eftir árin tvö í Keflavík. „Við vildum
efla hjartað og sálina í HK. Auka félags-
kenndina og ná okkur þannig á flug,“
segir Gulli. Óhætt er að segja að HK
hafi farið á flug því fimm árum síðar
lék liðið í deild þeirra bestu í fyrsta
skipti. Þrátt fyrir áhuga annarra félaga
hélt Gulli tryggð við sitt félag. Í febrúar
2009 stóð Gulla til boða að spila með liði
FC Vaduz í svissnesku deildinni en liðið
er staðsett í Liechtenstein.
„Það var frábært í Liechtenstein,“
segir Gulli um hálfa árið sem hann
dvaldi í dvergríkinu ásamt fjölskyldu
sinni. Guðmundur Steinarsson, fyrr-
verandi liðsfélagi úr Keflavík, mælti
með honum og auk þess lék Skagamað-
urinn Stefán Þórðarson með liðinu.
„Við skelltum okkur á þýskunám-
skeið og vorum orðnir þokkalega
góðir,“ segir Gulli aðspurður hvern-
ig gengið hafi að tala þýskuna. Hann
spilaði þó minna en hann reiknaði með
og ber knattspyrnugoðsögninni þýsku,
Pierre Littbarski, ekki vel söguna.
„Hann var ekki starfi sínu vaxinn sem
þjálfari eins og hann var góður leik-
maður.“
Gulli spilaði síðustu leikina með HK
í 1. deildinni um sumarið og skömmu
síðar kom kallið frá FH. Hann varð
bikarmeistari með FH sumarið 2010 og
fyrirliði þegar liðið varð Íslandsmeist-
ari í fyrra. „Það var risastórt augnablik
fyrir mig. Að vera fyrirliði besta liðs
landsins og taka á móti titl-
inum sem við unnum með
þessum yfirburðum.“ Gulla
bauðst að vera áfram í eitt
ár hjá FH en var í leit að
lengri samningi sem
hann fékk hjá Breiða-
bliki.
Hætti að blóta
Foreldrar Gulla
létust vegna veik-
inda fyrir aldur fram
með mánaðarmillibili
árið 2007. „Það var síð-
asti tímapunkturinn enn
sem komið er,“ segir Gulli.
Þá hafi hann farið að velta
fyrir sér hvað skipti raun-
verulegu máli í lífinu. Hann hafi
farið að rækta sjálfan sig og tekið
nokkrar ákvarðanir um líf sitt.
„Ég reyni að vera almennilegur
við fólk, góð manneskja, blóta ekki
og vil láta gott af mér leiða úti í sam-
félaginu,“ segir Gulli. Hann er stöð-
ugt að minna sig á þessa hluti en telur
sig betri mann í dag. Það hjálpi honum
líka á knattspyrnuvellinum. Spurður
hvort ekki hafi verið erfitt að hætta að
blóta, í umhverfi knattspyrnumanna
sem láta ýmislegt flakka hvort sem er
á æfingum eða leikjum, segist hann
eiga auðvelt með að standa við ákvarð-
anir sínar. Hann tekur sem dæmi uppá-
haldslið sitt Manchester City sem hann
SÁ LANGÞRÁÐI Gulli með Íslandsmeistarabikarinn 2012 sem FH-ingar unnu með miklum yfirburðum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hildur er mun yngri en
ég en algjörlega mín
stærsta og besta fyrir-
mynd.
Ég ætla ekki að láta það
bitna á fjölskyldu minni, vinum
eða öðru fólki í kringum mig
ef liðið mitt tapar.
American Express
Valid Thru Member Since
American Express
Valid Thru Member Since
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
er útgefandi American Express® samkvæmt leyfi frá American Express