Fréttablaðið - 18.05.2013, Side 42
KYNNING − AUGLÝSINGÚtskrift LAUGARDAGUR 18. MAÍ 20134
Líf Elísu Dagmarar Andrésdóttur tók miklum breytingum þegar hún settist aftur á skólabekk eftir
margra ára fjarveru. Hún útskrifað-
ist úr náms- og starfsendurhæfingu
Hringsjár fyrr í vikunni auk þess sem
hún lauk námsbrautinni Skrifstofu-
braut 1 frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi. „Ég lenti í ýmsum áföllum fyrir
nokkrum árum og var greind með
áfallastreituröskun í kjölfarið. Um árið
2009 fór ég að vinna í sjálfri mér og fór
fyrst í endurhæfingu hjá Janus endur-
hæfingu. Þar frétti ég af náminu hjá
Hringsjá og ákvað að sækja um.“
Námið hóf hún síðasta haust en
hafði áður sótt tvö námskeið fyrr um
vorið. „Í heildina er þetta þriggja anna
nám þar sem farið er vítt og breitt yfir
mörg ólík fög eins og stærðfræði, ís-
lensku, félagsfræði og bókfærslu. Þetta
var virkilega mikil áskorun fyrir mig og
í raun vissi ég ekkert hvað ég var að fara
út í. Ég féll á samræmdu prófunum í 10.
bekk en tók þau upp síðar í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. Á þeim tíma
hafði ég engan áhuga á frekara námi
enda átti ég alltaf erfitt með nám sem
barn. Seinna kom í ljós að ég var með
athyglisbrest sem auðvitað hefur háð
mér mikið í námi þegar ég var yngri
þótt hann geri það ekki með sama
hætti í dag.“
Sjálf segist hún hafa verið sannfærð
um að hún gæti ekki lært stærðfræði en
annað hafi komið á daginn. „Mér gekk
mjög vel í stærðfræði sem kom mér
skemmtilega á óvart. Sama má segja
um mörg önnur fög. Námið hefur bara
gengið mjög vel og miklu betur en ég
átti von á. Það fór svo sannarlega fram
úr öllum væntingum mínum. Ég brill-
eraði til dæmis í bókfærslu en ég átti
aldrei von á að ég myndi hafa gaman
af slíkum fögum. Svona kemur lífið
manni sífellt á óvart.“
Góður andi og frábærir kennarar
Elísa gefur kennurum skólans og starfs-
mönnum bestu einkunn. „Þetta er
yndis legt fólk. Ég held að ég hafi aldrei
komið inn á stað með jafngóðu and-
rúmslofti áður. Ég hefði aldrei trúað því
fyrir fram. Allt starf kennara einkenn-
ist augljóslega af gleði og ánægju yfir
kennslunni.“ Hópurinn sem hóf námið
taldi 22 manns en sextán útskrifuðust
í vikunni. „Andinn var mjög góður í
hópnum og við náðum strax mjög vel
saman þótt við kæmum úr ólíkum
áttum og værum á ólíkum aldri.“
Næsta haust ætlar Elísa að halda
áfram í Menntaskólanum í Kópavogi
og klára Skrifstofubraut 2 sem hún
lýkur vorið 2014. „Síðan er stefnan sett
á að ljúka prófi til viðurkennds bókara
en það er starfsvettvangur sem ég hrífst
mikið af. Um jólin 2014 ætti ég því að
vera búin að klára skólagöngu mína, að
minnsta kosti í bili.“
Fjölskylda Elísu hefur staðið vel
við bakið á henni á meðan skólaganga
hennar hefur staðið yfir. „Þau hafa
hvatt mig til dáða og stutt mig í náminu.
Maðurinn minn hefur sérstaklega staðið
eins og klettur mér við hlið.“
Svona kemur lífið sífellt á óvart
Fjöldi nemenda útskrifaðist úr náms- og starfsendurhæfingu Hringsjár í vikunni. Námið er ætlað fólki sem vill komast út á
vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Námið er persónulegt og hentar fólki með ólíkan bakgrunn.
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður Hringsjár, og Elísa Dagmar Andrésdóttir. MYND/GVA
Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk
sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir
hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla.
Þar er boðið upp á einstaklingsmiðað nám í
heimilislegu og notalegu umhverfi með góðri
stoðþjónustu. Áhersla er lögð á að hver og einn
fái tækifæri til að blómstra og fái aðstoð við hæfi.
Markmiðið er að gera nemendur færa um að
takast á við nám í almennum framhaldsskólum
og/eða fjölbreytt störf á almennum vinnumark-
aði.
Samkvæmt árangursmælingu sem gerð var
árið 2012 eru 79% útskrifaðra nemenda í námi
eða starfi að hluta til eða fullu.
Hægt er að sækja um nám eða námskeið hjá
Hringsjá í Hátúni 10 d, 105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar má finna á www.hringsja.is.
HRINGSJÁ
Námskeiðin eru sniðin fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa, veikinda, félagslegra erfiðleika eða
annarra áfalla. Námskeiðin geta líka hentað þeim sem hafa litla grunnmenntun eða hafa átt erfitt með að tileinka sér hefðbundið nám.
Auk námskeiða býður Hringsjá líka fullt nám í 3 annir.
Frekari upplýsingar og skráning hjá Hringsjá í síma 510-9380 eða á hringsja.is.
Bókhald og
Excel
Grunnur í bókfærslu og
Excel fyrir þá sem vilja
vinna við bókhald eða
færa eigið.
Stærðfræði
fyrir
byrjendur
Beitt er nýjum
aðferðum til að skapa
áhuga og jákvætt við
horf til stærðfræði.
ÚFF -
Úr frestun í
framkvæmd
Farið yfir ástæður frest-
unar, einkenni og afleið-
ingar. Fyrir þá sem vilja
hætta að fresta og fara að
ná árangri í lífinu.
Enska fyrir
byrjendur
Beitt er nýjum aðferðum
fyrir þá sem hafa átt erfitt
með að læra ensku / önnur
tungumál.
Sjálfstyrking
Styrkir nemendur í að
tjá sig, sýna öruggari
framkomu og almennt
vera til!
Í Fókus -
Að ná fram
því besta
með ADHD
Eykur skilning á ADHD
(athyglisbresti / ofvirkni)
og hvernig hægt er að ná
betri tökum á ADHD.
Fjármál á
mannamáli
Fjármál einstaklinga á
mannamáli! Eykur
skilning á fjármálum, bæði
eigin og almennt.
Tölvubókhald
Dýpkar þekkingu á
bókhaldi almennt og
kynnir tölvufært
bókhald.
TÁT –
Tök á
tilverunni
Bjargráð og færni í að
takast betur á við daglegt
líf og hindranir sem upp
koma.
Minnis-
tækni
Kennd er tækni til þess að
efla og bæta minnið.
Hentar þeim sem eiga við
gleymsku eða skert minni
að stríða.
Tölvugrunnur
Tölvunotkun fyrir
byrjendur. Unnið á
eigin hraða með
aðstoð.
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing býður úrval af öðruvísi og spennandi
námskeiðum sem hafa hjálpað mörgum að komast aftur eða í fyrsta sinn af stað til
meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri valkosta í námi eða starfi.