Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 76
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Út að leika
Teikningar og texti Bragi Halldórsson
44
„Hvað er nú þetta eiginlega?“ spurði Róbert. „Lísaloppa,“
sagði Kata. „Þú veist allt, er það ekki, getur þú sagt okkur
hvað þessi ólífa er að gera þarna með þessum eldspýtum?“
„Þetta er eldspýtnaþraut,“ sagði Lísaloppa. Konráð horfði
hissa á þrautina. Ekki gat hann séð hvað ólífa kæmi
eldspýtnaþraut við. „Sjáið þið til,“ sagði Lísaloppa.
„Eldspýturnar eru glas á fæti og ólífan er ofan í því. Getið
þið fært tvær eldspýtur svo ólífan sé ekki lengur inni í
glasinu.“ Þau horfðu öll þegjandi á þrautina góða stund.
„Þetta er ómögulegt,“ sagði Kata loksins. „Nei, nei,“ sagði
Lísaloppa. „Ég held að ég sé meira að segja búin að fatta
lausnina.“ „Það var svo sem auðvitað,“ sagði Kata
ólundarlega. “Jæja, leysum þetta,“ sagði hún ákveðin.
„Allir saman nú, við getum leyst þetta líka.“
Getur þú leyst þessa eldspýtnaþraut?
Fallin spýta
Einn leikmaður „er’ann“. Hann þarf að telja upp í 50 áður en hann
má hefja leit að hinum þátttakendunum, sem fela sig fyrir honum.
Síðan hefst leitin. Ef sá sem leitar finnur einhvern sem hefur falið
sig hleypur sá fyrrnefndi að spýtunni, sem stillt hafði verið upp við
vegg, fellir hana og segir: „fallin spýta fyrir … 1, 2 og 3“ og nefnir nafn
þess sem fannst. Þá verður sá sem fannst úr leik. Ef sá sem fannst er
á undan að komast að spýtunni og fella hana sleppur hann í borg og
er hólpinn það sem eftir lifir leiksins. Sá sem spýtan er fyrst felld fyrir
leitar í næsta leik.
Hvað heitir þú og hvað ertu
gömul? Ylfa Marín. Sansai, það
þýðir þriggja ára á japönsku.
Iðunn Heiður er eins árs, hún er
systir mín.
Hvar átt þú heima? Ég á heima
í borg sem heitir Nishinomiya, í
Japan.
Hvað heitir leikskólinn þinn?
Nigawa youchien. Kennar-
inn minn heitir Mai. Hún er
skemmtileg.
Hvað gerir þú á leikskólanum?
Leik mér með vinum mínum.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera á daginn? Elda og
teikna og syngja í karókí með
mömmu og pabba.
Ertu búin að læra einhverja
japönsku? Já. Okasan (mamma),
Otosan (pabbi), kawaii (sætt) og
fullt, fullt meira.
Hvernig segir maður „góðan
daginn“ á japönsku? Ohayou
gozaimasu. „Ohæjó gosæmas“.
Finnst krökkunum ekkert erfitt
að segja nafnið þitt? Nei.
Hvað heita bestu vinir þínir
í skólanum? Vinkonur mínar
heita Saiyuri, Miku og Kanako.
Vinur minn heitir Junsei. Ég á
líka vinkonur sem heita Mary og
Sakura, þær eru ekki í leikskól-
anum mínum.
Ohayou gozaimasu!
Ylfa Marín Nökkvadóttir fl utti með foreldrum sínum og litlu systur sinni til
Japan í lok ágúst í fyrra. Þar byrjaði hún í nýjum leikskóla og hefur nú eignast
marga japanska vini.
Í LEIKSKÓLA ER GAMAN Ylfa Marín á marga vini í leikskólanum.
YLFA MARÍN NÖKKVADÓTTIR Það skemmtilegasta sem hún gerir er að teikna og syngja í karíókí með mömmu og pabba.
Japan er eyjaklasi í Kyrrahafinu í Austur-
Asíu. Höfuðborgin heitir Tókýó og í landinu
er töluð japanska. Íbúar landsins eru næst-
um 128 milljónir, eða um fjögur hundruð
sinnum fleiri en Íslendingar. Þjóðarfáninn
er hvítur með rauðum hring, en hringurinn
táknar sólina.
Japanskar teiknimyndir eru afar vinsælar
um allan heim, til dæmis svokallaðar
manga-teiknimyndir, en þær eru til bæði í formi bóka og sjónvarpsþátta.
Þar eru persónurnar gjarnan með stór augu og tilfinningar ýktar.
Bardagaíþróttir eru margar vinsælar í Japan, til dæmis karate, júdó,
kendó og aikidó.
Meðalaldur íbúa Japans er sá hæsti í heimi, eða rúmlega 82 ár. Elsti
maður heims er japanskur og hann er hvorki meira né minna en 116 ára!
Vissir þú þetta um Japan?
Hollí hú
Þátttakendur standa hlið við hlið nema einn sem stendur andspænis
hópnum og heldur hann á litlum bolta. Hann hugsar sér karlmanns- eða kven-
mannsnafn, til dæmis Agnar. Síðan kastar hann boltanum til þess sem er lengst
til vinstri í röðinni og kallar: „A karlmannsnafn!“ Á þá sá eða sú, sem fékk boltann,
að reyna að geta einu sinni upp á nafninu, sem byrjar á A, og kasta um leið til baka.
Sé nafnið rangt er boltanum kastað til næsta þátttakanda í röðinni. Sé getið upp á réttu nafni fær stjórn-
andinn boltann aftur, kastar honum í jörðina, kallar „hollí“ og hleypur sem lengst frá boltanum áður
en sá sem gat upp á nafninu grípur hann og kallar „hú!“ Á stjórnandinn þá að nema staðar og mynda
„körfu“ með báðum handleggjum.
Sá sem gat upp á nafninu fær að taka þrjú stór skref og þrjú „hænuskref“ í áttina að stjórnandanum
og reyna að hitta með boltanum ofan í „körfuna“. Takist það verður hann næsti stjórnandi en takist það
ekki fær sá sem er næstur í röðinni að spreyta sig.
Heimild: Umboðsmaður barna/krakkaleikir
Leikir