Fréttablaðið - 18.05.2013, Síða 98
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
Þegar í Róm...Horfði á
Eyþór Inga syngja sér líf á
breiðtjaldi á Hamborgarafa-
brikkunni ásamt tveggja
ára dóttur minni. Á meðan
Eyþór söng neyddist hún til þess að færa
sig úr útgáfunni „Ég vil ís, ég vil ís. Pabbi
gefðu mér nú ís“ yfir í orginalinn. Hollensku
hjónin á næsta borði horfðu í forundran
á þegar Íslendingar lögðu frá sér kassalaga
borgarana og störðu á dalvíska handflakar-
ann og kunnu ekki við annað en að klappa
með þegar Eyþór lagði frá kreppti hnefann
í lokin. „Þetta var flott hjá okkur,“ sagði
barnið. Ég held að hún hafi ekki talið þetta
„okkur“ vera íslensku þjóðina. Meira hana
og bakröddina hennar á breiðtjaldinu.
Helgi Seljan
Jibbí. Fæ vinnu í Malmöbæ aðeins
lengur. Love you all.
Pétur Örn (annar höfunda Ég á líf )
Ég hef eiginlega mestar
áhyggjur af enska laginu
í Evrovision, vinur minn
samdi það, þarf eiginlega
að komast áfram.
Egill Helgason
Glæsilegt Eurokvöld!
Til hamingju Eyþór
Ingi og Pétur Örn,
atriðið var stórkostlegt
og aldrei spurning
um að Ísland kæmist áfram. Virkilega
spennt fyrir laugardeginum! (og nenn-
iði að skila kveðju frá mér til Drakúla
og gamla bassakrúttsins)
Unnur Eggertsdóttir
Áfram íslenska!
Svavar Halldórsson
Vá, hvað ég var stolt af
því að vera Íslendingur
í kvöld. Þvílík frammi-
staða, Eyþór Ingi.
Elin Hirst
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja efla þann styrk sem býr innra
með okkur öllum. Á námskeiðinu er tvinnað saman gjörhygli og
samkennd, byggt er á þekkingu á því hvernig hugurinn hefur þróast
og hvernig hann starfar. Þetta er ný meðferðarleið sem þegar hefur
verið sýnt fram á að geti hjálpað okkur við að fást við streitu,
sjálfsgagnrýni og erfiðar tilfinningar eins og sektarkennd, skömm,
reiði, kvíða og depurð.
Innifalið: Ljúffengur og hollur matur, skipulögð dagskrá, hugleiðsla
og jóga, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og líkamsrækt. Einnig
nudd og val um ýmsar meðferðir.
Verð á mann 119.900 kr.
Námskeiðið verður haldið dagana 18.-25. júní.
Compassionate mind training
„Ég er enn þá þeirrar skoðunar að Eyþór
Ingi hefði aldrei átt að fara í Eurovision.
Hann er besti söngvari sem ég hef heyrt í á
Íslandi og mér finnst Eurovision ekki vera
réttur vettvangur fyrir hann,“ segir Bubbi
Morthens.
Eyþór Ingi kom fyrst fyrir augu lands-
manna þegar hann tók þátt í raun-
veruleikaþáttunum Bandinu
hans Bubba árið 2008 og vann.
Margir muna eftir því í einum
þættinum þegar Bubbi bað
Eyþór Inga vinsamlegast
um að gera sér þann greiða
að fara aldrei í Eurovision.
Eyþór hefur látið hafa eftir
sér í viðtölum síðan að á
þeim tímapunkti þótti honum
tilhugsunin um að hann
myndi nokkurn tíman taka þátt
í keppninni vera hlægileg. - trs
„Eyþór hefði ekki átt
að fara í Eurovision“
Bubbi Morthens hefur ekki skipt um skoðun.
Þá er loksins komið að
Eurovision-hátíðinni sjálfri.
Stærsti dagur ársins að
mínu mati – að jólum, pásk-
um og afmælisdeginum
meðtöldum.
Frá því að ég nýtti hálf
mánaðarlaunin í að kjósa
Eyþór Inga til sigurs í
Söngvakeppninni í febrúar
hef ég verið fullviss um að hann væri að fara að fljúga í gegnum
forkeppnina og ná á topp 10 í aðalkeppninni.
Brennd börn
Þegar kemur að Eurovision eru margir Íslendingar eins og
brennt barn. Þeir þurfa alltaf að búa sig undir það versta en
þegar vel gengur eru þeir ekki lengi að snúast í 180 gráður og
fyllast stolti. Svo er fólk eins og ég. Við sem höfum barist með
kjafti og klóm allan tímann og sagt að við komumst víst áfram.
Fólk eins og ég átti góðan dag í gær þar sem við fengum að benda
á ykkur hin og segja: Ég sagði ykkur það! Ég klæddist kjól og
hælum í gær til að halda upp á daginn.
Alvöru áhugaleysi
Síðustu vikum hef ég að mestu varið með fólki héðan og þaðan
úr Evrópu og eins og sönnum Eurovision-aðdáenda sæmir hef ég
verið dugleg að leyfa þeim að hlusta á íslenska lagið. Sérstaklega
hafði ég gaman af því þegar stúlka frá Rússlandi var enn raul-
andi lagið tveimur tímum eftir að hafa hlustað á það.
Það sem mér þótti samt merkilegast var fólkið sem hafði ekki
áhuga á keppninni. Hér á Íslandi eru ófáir sem vilja meina að
þeir falli í þann hóp. Samt sem áður er erfið leitin að þeim ein-
stakling sem ekki kann íslenska lagið (þið getið reynt að neita
því, en þið getið öll raulað með því) og götur bæjarins voru furðu-
tómar á fimmtudagskvöldið. Ég held að þær verði alveg auðar
í kvöld. Í útlöndum fann ég samt fólk sem virkilega hefur ekki
áhuga á keppninni. Úkraínsk vinkona mín vissi ekki einu sinni
hvort þau væru með í ár og margir Bretanna misstu hökuna í
gólfið af undrun þegar ég tilkynnti þeim að Bonnie Tyler væri
þeirra fulltrúi í ár. Einn þeirra trúði mér
ekki fyrr en hann hafði gúgglað það.
Freyðivínið klárt
Eyþór Ingi verður 19. atriðið á svið í kvöld.
Fræðin eru ekki sammála um hvort það
sé gott eða slæmt. Mitt mat er að þetta sé
kjörinn staður fyrir lag sem þetta. Ég er
þó ekki alveg jafn ánægð með að við skulum koma beint á
eftir danska laginu. Ég er samt viss um að hjartað eigi eftir að
springa úr stolti þegar Eyþór stígur á svið.
Ég hvet ykkur öll til að taka af ykkur grímuna, njóta hátíðar-
innar og leyfa gæsahúðinni að brjótast fram. Það er ekkert vit
í öðru. Ég verð með freyðivínið tilbúið til að skála fyrir mínum
manni, sama hvernig fer!
Aðalkeppni Eurovision er í dag
Ég sagði ykkur það!
„Fiðrildin gerðu vart við sig rétt áður
en ég steig á svið en þegar ég heyrði
fagnaðarlætin og fann fyrir stuðn-
ingnum fannst mér ég svo velkominn
að það var ekki annað hægt en að vera
afslappaður,“ sagði Eurovision-stjarn-
an Eyþór Ingi þegar Fréttablaðið náði
af honum tali í gær.
Eyþór heillaði Evrópu upp úr skón-
um í undankeppninni á fimmtudaginn
og fleytti íslenska framlaginu, Ég á líf,
áfram í úrslitin sem fara fram í kvöld.
Hann átti greinilega stóran aðdáenda-
hóp í salnum því þakið ætlaði að rifna
af höllinni þegar hann steig á sviðið
og að flutningnum loknum tók ekk-
ert minna við. „Fyrir okkur er mest-
ur sigur að við höfum komist áfram
á íslenskunni,“ sagði Eyþór sem tók
sigurkvöldinu rólega. „Ég fór beint á
blaðamannafund og í alls konar við-
töl. Það saug upp það sem eftir var af
orkunni svo ég fór beint heim á hótel
eftir það. Þar beið fjölskyldan eftir
mér svo það var aðeins knúsast og svo
henti ég mér beint í bólið,“ sagði hann.
Það vakti mikla athygli hversu
duglegur Eurovision-hópurinn var á
Facebook á meðan á keppni stóð og
sagðist Eyþór nokkuð viss um að þeir
verði í beinni í kvöld líka. „Hvenær
er Pétur ekki duglegur á Facebook,“
sagði hann og hló. „Við tókum mynd af
okkur í kosningar-pásunni á fimmtu-
daginn og skelltum á Facebook. Á
örfáum mínútum fékk hún einhver
8.000 læk. Það var ómetanlegt að
finna stuðninginn svona beint í æð.
Við hvetjum fólk bara til að halda
áfram að fylgjast með okkur á like-
síðunni á Facebook,“ bætti hann við.
Eyþór sagðist ekki velta sér mikið
upp úr úrslitunum. „Fyrst og fremst er
bara ógeðslega gaman að fá þrjár mín-
útur í viðbót á sviðinu. Ég ætla að setja
allan fókus á að skila laginu vel,“ sagði
hann og skilaði góðri kveðju heim til
Íslands. tinnaros@frettabladid.is
Ómetanlegt að fi nna
fyrir stuðningnum
Eyþór Ingi söng sig inn í hjörtu Evrópubúa og keppir í úrslitum Eurovision í kvöld.
NÓG AÐ GERA Eyþór fór beint á blaðamannafundi eftir undankeppnina á fimmtudaginn.
Hann hefur haft í nógu að snúast síðustu tvær vikurnar. NORDICPHOTOS/GETTY
Eyþór varði góðum tíma í gær í æfingar á opnunaratriði kvöldsins. Þar verða
fánar allra keppnisþjóða notaðir og Abba-stjörnurnar Benny Andersson og Björn
Ulvaeus hafa skellt í nýtt lag til að nota í atriðið. „Þetta verður rosaflott, með
risakór og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir Eyþór.
➜ Tekur þátt í opnunaratriðinu
Eyþór hefur verið kallaður ýmsum nöfnum í fjölmiðlum og á samskiptamiðlum
á undanförnum dögum. Margir hafa líkt honum við guðinn Þór og aðrir við
álfinn Legolas úr Hringadróttinssögu. Mest áberandi hefur þó verið líkingin við
frelsarann sjálfan Jesú Krist. „Það eru alltaf allir að reyna að vera fyndnir og
finna sniðugar samlíkingar og það er bara partur af þessu og gaman að því,“
segir Eyþór. „Sú sem stjórnaði aðalblaðamannafundinum hérna í höllinni var
til dæmis rosalega upptekin af þessari Jesú-líkingu og spurði mig hvort ég væri
minn eigin guð. Ég svaraði henni um hæl og sagði að ég væri hennar guð. Hún
vissi ekki alveg hvernig hún ætti að taka því,“ bætir hann við og hlær.
➜ „Ég er þinn Guð“
tinnaros@frettabladid.is
TINNA
TÆKLAR
EUROVISION
ENN SÖMU
SKOÐUNAR
Bubbi bað
Eyþór um að
fara aldrei í
Eurovision.
Geir Ólafs er fínn með
sítt hár #egalif
Tobba Marinós
Djöfull ertu hest-
fallegur elsku Eyþór Ingi
Gunnlaugsson.... knús
Einar Ágúst
Skipti um skoðun.
Við komumst
áfram. Djöfull var
hann flottur!
Sóley Tómasdóttir