Fréttablaðið - 01.08.2013, Síða 20
1. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20
● Hraði netþjóna
fyrir hvern USD
sem notkun þeirra
kostar lækkar
um helming á 18
mánuðum
● Það er þrefalt
dýrara að eiga
netþjón en að leigja
þjónustu netþjóna í
gegnum skýið
● Notendur tölvupóst-
þjóna í gegnum ský,
til dæmis Gmail,
Yahoo og Hotmail,
eru 2 milljarðar
talsins
● 80% stofnana í
Bandaríkjunum
annaðhvort nota
netþjónabú eða
hyggjast gera það
● 1.700 milljarðar
USD eru sá hluti
landsframleiðslu
heimsins sem
tengist internetinu
beint
● Á hverju ári verja
fyrirtæki heims
3.000 milljörðum
USD í upplýsinga-
tækni
Skýringar tákna: Hraði framfara Dæmi um hópa, vörur eða auðlindir sem gætu orðið fyrir áhrifum
Framfarir í olíu- og gasvinnslu
Nýjar aðferðir við olíu- og gasleit sem og nýjar aðferðir
til að vinna olíu og gas sem gera það hagkvæmara að
vinna olíu og gas á óhefðbundnum stöðum.
● Nýtni í bandarískri
gasvinnslu
þrefaldaðist milli
2007 og 2011
● Nýtni í bandarískri
olíuvinnslu
tvöfaldaðist milli
2007 og 2011
● Á hverju ári er unnið
gas að jafngildi 22
milljarða tunna af
olíu
● Á hverju ári eri
unnar 30 milljarðar
tunna af hráolíu
● Tekjur vegna sölu
á gasi eru 800
milljarðar USD á ári
● Tekjur vegna sölu
á hráolíu eru 3.400
milljarðar USD á ári
Háþróuð vélmenni
Sífellt fjölhæfari vélmenni sem geta ýmist verið búin öfl-
ugum skynjurum, þróaðri gervigreind eða miklum hreyfan-
leika notuð til að vinna sífellt flóknari störf eða til að
auðvelda störf manna.
● Nýlegt og fj ölhæft
framleiðsluvél-
menni sem nefnist
Baxter og var þróað
af sprotafyrirtækinu
Rethink Robotics er
75% til 85% ódýr-
ara en hefðbundnir
framleiðsluþjarkar
● Selt magn fram-
leiðsluþjarka jókst
um 170% milli
2009 og 2011
● 320 milljónir
manna vinna við
framleiðslustörf
● 250 milljón stórar
skurðaðgerðir eru
framkvæmdar á
hverju ári
● Kostnaður við fram-
leiðslustörf er 6.000
milljarðar USD á ári
● Kostnaður við
stórar skurðaðgerðir
er 2.000 til 3.000
milljarðar USD á ári
Næsta kynslóð erfðamengjafræði
Hraðvirk og ódýr greining á erfðaefni einstaklinga,
ofurstór erfðagagnasöfn sem sífellt öflugri tölvur geta
unnið úr og aukin geta til að búa til sérhannað erfðaefni.
● Sá tími sem það
tekur að kortleggja
erfðamengi
helmingast á tíu
mánaða fresti fyrir
hvern USD
● Það svæði sem
erfðabreyttum
fræjum er sáð á
hundraðfaldaðist
frá 1996 til 2012
● Á hverju ári deyja
samanlagt 26
milljón mans úr
krabbameini, hjarta-
og æðasjúkdómum
og sykursýki 2
● 2,5 milljarðar
manna vinna við
landbúnað
● Kostnaður við heil-
brigðisþjónustu í
heiminum er 6.500
milljarðar USD á ári
● Samanlagt virði
árlegrar framleiðslu
hveitis , hrísgrjóna,
maís, soja og byggs
í heiminum er
1.100 milljarða
USD
Færanlegt internet
Sífellt ódýrari og öflugri færanlegar tölvur með sífellt
betri internettengingu
● Hraðasta ofurtölva
í heimi árið 1975
kostaðii 5 milljónir
USD. iPhone
4-síminn kostar 400
USD í dag og er jafn
öfl ugur.
● Sölumagn snjall-
síma og spjaldtölva
hefur sexfaldast frá
2007
● Enn eru 4,3 millj-
arðar manna ekki
tengdir internetinu
● 1 milljarður manns
vinnur við störf sem
færanlegt internet
gæti haft verulega
áhrif á
● 1.700 milljarðar
USD eru sá hluti
landsframleiðslu
heimsins sem
tengist internetinu
beint
● 25.000 milljarðar
USD er kostnaður
við þau störf sem
færanlegt internet
gæti haft veruleg
áhrif á
Tölvur taka yfir þekkingarstörf
Greind hugbúnaðarkerfi sem geta framkvæmt
einföld þekkingarstörf.
● Watson-tölva IBM
er hundrað sinnum
öfl ugari en Deep
Blue-tölva IBM sem
sigraði heims-
meistarann í skák
árið 1997
● Notendum greinds
hugbúnaðar* hefur
fj ölgað um rífl ega
500 milljónir á
fi mm árum
● Rífl ega 230 milljónir
manna vinna við
þekkingarstörf
● Notendur snjallsíma
eru 1,1 milljarður
talsins
● Kostnaður við
þekkingarstörf í
heiminum er rífl ega
9.000 milljarðar
USD
Skýjatækni
Háþróaðar tölvur sem keyra hugbúnað eru notaðar
eins og þjónusta í gegnum internetið.
VIÐSKIPTI Þeirri skoðun hefur
vaxið ásmegin meðal hagfræðinga
síðustu ár að hægst hafi nokkuð á
hraða tækniframfara. Hefur þessi
kenning verið sett fram til að
skýra hvers vegna framleiðni og
millistéttarlaun í þróuðum ríkjum
hafa vaxið mun hægar frá 1980 en
hundrað árin þar á undan.
Samkvæmt kenningunni er
stærsta framfaraskeiði mann-
kynssögunnar lokið þar sem mun
flóknara sé að stíga næstu fram-
faraskref en þau sem mannkynið
hefur stigið síðustu 200 árin.
Úr þessum jarðvegi sprettur ný
skýrsla McKinsey Global Institute
(MGI), rannsóknarstofnunar
alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækis-
ins MckKinsey, sem nefnist „Dis-
ruptive Technologies: Advances
that will transform life, business,
and the global economy.“
Í skýrslunni reynir stofnun-
in að bera kennsl á þær tækni-
framfarir sem líklegastar eru til
þess að breyta lífi, viðskiptum og
hagkerfum nútímans til ársins
2025. Kemst MGI að þeirri niður-
stöðu að andstætt kenningunni
sem reifuð var hér að ofan séu
ýmsar ástæður til bjartsýni um þá
möguleika sem felst í nýrri tækni
á næstu tólf árum. Telur MGI að
tækniframfarir næstu ára séu
klárlega þess megnugar að auka
framleiðni og bæta lífskjör um
allan heim.
Tækniframfarir sem
gjörbreyta lífi fólks
Í nýrri skýrslu rannsóknarstofnunarinnar McKinsey Global Institute er greint frá
tólf tækniframförum sem munu mögulega gjörbreyta lífi, viðskiptum, lífskjörum
og mannlífi í heiminum til ársins 2025.
TÓLF HELSTU TÆKNINÝJUNGARNAR
ÁÆTLUÐ HAGRÆN ÁHRIF TÆKNIFRAMFARA
ÁRIÐ 2025 Í MILLJÖRÐUM US DOLLARS
Færanlegt internet
Tölvur taka yfir þekkingarst.
Hlutir tengdir internetinu
Skýjatækni
Háþróuð vélmenni
Næsta kynslóð erfðamengjafr.
Næsta kynslóð orkugeymsla
Þrívíddarprentun
Háþróuð efni
Framfarir í olíu- og gasvinnslu
Endurnýjanleg orka
Bílar sem keyra sig sjálfir
0 3000 6000 9000 12000 15000
Neðri mörk
Efri mörk
(1.–5. ÁGÚST)
Dæmi: 10.000 kr. áfylling
gefur 600 Vildarpunkta.
-10KR.
ELD
SNE
YTIS
AFS
LÁT
TUR
MEÐ
ÓB-
LYKL
INUM
Til að safna Vildarpunktum Icelandair með ÓB-lyklinum
þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair korti eða
American Express vildarkorti. Einnig er hægt að safna
punktum með Sagakorti. Nánari upplýsingar um
vildarkerfi ÓB eru á ob.is/vildarkerfi
Í skýrslu MGI er kastljósinu
beint að tólf tækniframförum
sem stofnunin telur líklegastar til
þess að raska skipan hlutanna í
viðskiptum og mannlífi til ársins
2025, þær tækniframfarir sem
mikilvægast er fyrir fólk að vera
meðvitað um.
Stutta umfjöllun um hverja og
eina af þessum tólf tæknifram-
förum má sjá hér að ofan og hér
til hliðar en þær eiga það flestar
sameiginlegt að vera tengdar upp-
lýsingatækni.
MGI valdi þessar tólf tækni-
framfarir úr hópi hundrað sem
komu til greina eftir að hafa
farið í gegnum fjölda fræðirita,
viðskipta- og tæknitímarita og
opinber eignasöfn framtaks-
fjárfestingarsjóða (e. venture
capital funds) auk þess að taka
viðtöl við hundruð sérfræðinga á
ýmsum sviðum.
Eiga þessar tólf tækni framfarir
það sameiginlegt að uppfylla
fjögur skilyði; tækninni sem um
ræðir fleygir fram á mjög miklum
hraða, hún getur haft veruleg
áhrif á mörgum sviðum, hún
getur haft veruleg efnahagsleg
áhrif og að lokum geta þau efna-
hagslega áhrif verið raskandi, þ.e.
þau geta búið til nýja markaði eða
gjörbreytt öðrum þannig að eldri
tækni úreldist. - mþl