Fréttablaðið - 01.08.2013, Síða 62

Fréttablaðið - 01.08.2013, Síða 62
1. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50 BAKÞANKAR Dóra DNA EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ AKUREYRI KEFLAVÍK ROGER EBERT CHICAGO SUN-TIMES DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS ONLY GOD FORGIVES 6, 8, 10 STRUMPARNIR 2 3.50, 6 3D STRUMPARNIR 2 3.50 2D GROWN UPS 2 6, 8 R.I.P.D. 8, 10 3D SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50 2D THE HEAT 10.10 -Empire 5% SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS STRUMPARNIR 3D Í SL. TAL KL. 3.20 - 5.40 - 8 STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 STRUMPARNIR 3D Ó ENS. TAL TEXT. KL. 5.40 - 10.20 WOLVERINE 3D KL. 8 - 10.40 WOLVERINE 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 GROWN UPS 2 KL. 8 - 10.20 Í Á ÓSKR MSLA H SK LINN 3DÍ SL. TAL KL. 3.20 - 5.40 SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 RIPD 3D KL. 10.30 THE HEAT KL. 8 STRUMPARNIR 2D/3D ÍSL. TAL KL. 5.40 ONLY GOD FORGIVES KL. 8 - 10.10 WOLVERINE 3D KL. 8 - 10.40 GROWN UPS 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 RIPD 2D KL. 8 THE HEAT KL. 5.30 THIS IS THE END KL. 10.10 STRUMPARNIR 3D KL. 6 ONLY GOD FORGIVES KL. 8 - 10 WOLVERINE 3D KL. 10 GROWN UPS 2 KL. 6 - 8 -T.V. BÍÓVEFURINN/VIKAN -T.V., S&H - BÍÓVEFURINN Allir réttir sem teljast sérstaklega íslenskir eru bragðvondir og ólystugir. Fyrir utan auðvitað pönnuköku- og rúg- brauðsbakstur eigum við okkur enga sér- staka sögu eða hefð í matargerð – í það minnsta ekkert sem við getum verið stolt af. Þó var hér ræktaður aspas fyrir meira en 100 árum og parmesan fluttur inn á sama tíma, en eitthvað brást í millitíðinni. Þorrablótsófögnuðurinn er 70 ára gamalt útspil hótel- og veitingahúsaeigenda – ekki aldagömul hefð. Nóg eigum við af frábæru hráefni, en þegar kemur að því að klambra því saman þá er þú veist, framlag Íslands til „nordic-cuisine,“ flatkaka með hangikjöti. ÞESS vegna eigum við ekki neins konar skyndibita held- ur. Á Stjörnutorgi er ekki hægt að fá lambakjötsflís. Á hringveginum fást misþurr- ir og óaðlaðandi hamborg- arar með misdjúpsteiktum frönskum. 80% allra nýrra veitingastaða í Reykjavík eru einhvers konar „diner“- grín og uppfullir af banda- rískum íþróttaminjagripum – helst úr íþróttum sem varla hafa verið stundaðar á Íslandi. „Kominn tími á alvöru ameríska „diner burger“-stemningu,“ hugsar annar hver tækifærissinni og meinar auðvitað „virkilega falska og óhugnanlega“ þegar hann segir „alvöru“. VIÐ þurftum útlenska tækifærissinna til að sjá að íslenska lambakjötið væri kjörið hrá- efni í kebab. Það er ekki einn helvítis veit- ingastaður sem býður upp á einhvers konar sjávarfangsskyndibita á viðráðanlegu verði – fisk-taco til dæmis – samt erum við fisk- veiðiþjóð. HÉR er ekki hægt að fá japanskt udon neins staðar, maður þarf að fara alla leið á Flúðir til að fá afrískan mat og 90% prósent af öllum mat sem þykist vera mexíkóskur eru í raun frá Texas. Við þurfum að hætta að vísa innflytjendum úr landi og grátbiðja þá um að vera hérna í staðinn. Bara gegn því að þeir geti hrært eina sósu eða eldað eitthvað annað en steingrátt lambalæri, sýnt okkur eitthvað annað en gamlan tennisspaða eða hafnaboltakylfu – og auðvitað það óíslensk- asta – haldið verðinu í lægri kantinum. Innfl ytjendur óskast Tónlistarmógúllinn Símon Cowell er að verða pabbi ef marka má fréttaflutning erlendra miðla. Barnsmóðir Simons ku vera kona að nafni Lauren Silverman en hún er komin um 10 vikur á leið. Einn er hængur þó á. Lauren, sem er 36 ára, er enn gift fasteignajöfrinum Andrew Silverman, góðkunningja Simons. Samband Lauren og Andrews á þó að hafa verið lokið þegar Simon og Andrea byrjuðu í ástarsam- bandi fyrir um ári. Andrea mun vera yfir sig ást- fangin af Simon og lýst því yfir að hana langi til að ganga í hjóna- band með honum sem fyrst. Simon hefur áður talað um það opinberlega að barneignir heilli hann ekki. Í viðtali árið 2009 sagði Simon. „Það er ákveðin rútina sem fylgir börnum. Þú verður að vakna á ákveðnum tíma og þú verður að hlusta þegar þig langar bara að sitja úti í horni að hugsa.“ Simon var þó á öðru máli á þessu ári þegar hann viðurkenndi að hann útilokaði ekki neitt í þeim efnum. „Ef ég vissi að ég gæti verið einni konu trúr kæmu barn- eignir til greina,“ sagði hann og bætti við að hann myndi helst vilja eignast litla stelpu. - hó Simon Cowell að verða pabbi Tónlistarmógúllinn á von á barni með gift ri konu. PABBI Hinn 53 ára gamli leikari er að verða faðir. MYND/GETTY Stjörnurnar í Hollywood eru undir mikilli pressu þegar kemur að útliti og eru oftar en ekki fyrst- ar til þess að prófa nýjar leiðir til þess að grenna sig. Gwyneth Palt- row segir frá sinni reynslu í við- tali við dagblaðið Telegraph. „Ég fór eitt sinn á svakalegan safakúr og í kjölfarið sá ég ofsjónir í tíu daga. Varið ykkur, safahreinsanir geta skemmt efnaskipti líkamans og valdið þyngdaraukningu í fram- tíðinni.“ Paltrow talaði einnig um það að mikilvægt væri að horfa ekki á kílóin sem maður missir, það væri betra að notast við mál- bandið. „Það er eitthvað klikkað í því að vigta sjálfan sig. Maður verður ótrúlega viðkvæmur og fyllist skömm og sektarkennd. Vigtin hefur sálræn áhrif,“ sagði leikkonan. Trúir ekki á safakúra Gwyneth Paltrow prófaði eitt sinn að fara á safakúr en segist hafa séð ofsjónir í tíu daga í kjölfarið. SÁ OFSJÓNIR Gwyneth Paltrow hefur eflaust prófað margar leiðir til þess að viðhalda líkamsvexti sínum. GETTY/NORDICPHOTOS Svo virðist sem leikkonan Krist- en Stewart hafi fengið sig full- sadda af ágangi papparazzanna. Leikkonan missti stjórn á skapi sínu á dögunum þegar hún reyndi að komast óséð úr íbúð yfir í bíl sem beið eftir henni. Faldi hún sig undir teppi en í myndbands- upptöku, sem nú er búið að fjar- lægja af internetinu, mátti heyra Kristen blóta ljósmyndaranum, sem virðist hafa sagt eitthvað til að ögra henni. Kristen segir honum meðal annars að fara til fjandans og þegar ljósmyndarinn spurði hvers vegna hún væri að blóta honum sagði hún að hann ætti ekki skilið að anda að sér sama lofti og hún. - hó Missti sig á ljósmyndara ERFITT Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera kvikmyndastjarna eins og Kristen Stewart hefur fengið að kynnast. MYND/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.