Fréttablaðið - 01.08.2013, Qupperneq 53
FIMMTUDAGUR 1. ágúst 2013 | MENNING | 41
Rihanna vann mál sem hún höfð-
aði gegn verslanakeðjunni Top-
shop í gær og voru henni dæmdar
um 600 milljónir króna í bætur.
Topshop hóf framleiðslu og sölu á
bolum með mynd af söng konunni
en hún var alls ekki sátt við
framtakið. Myndin sem prýddi
bolinn var tekin árið 2011 við
tökur myndbandsins við lagið We
Found Love. Rihönnu þótti mynd-
in ekki flott og töldu lögfræð-
ingar hennar að bolurinn hefði
haft slæm áhrif á orðstír hennar.
Söngkonan var ekki viðstödd rétt-
arhöldin í gær en hún er eflaust
sátt við niðurstöðuna, enda
þónokkrum milljónum ríkari.
Fær 600 mill-
jónir í bætur
EKKI SÁTT VIÐ BOLINN Rihanna var
allt annað en sátt við bolinn sem Top-
shop framleiddi. GETTY/NORDICPHOTOS
Á föstudaginn ætla íslensku
hljómsveitirnar Sigur Rós og
Retro Stefson að standa fyrir
kvöldi á skemmtistaðnum Har-
lem í Reykjavík. Kvöldið heitir
Retro Stefson blokkpartí en er
óhefðbundið að því leytinu til
að hljómsveitirnar munu senda
fulltrúa frá sér til að þeyta skíf-
um í stað hefðbundinna tónleika.
Sigur Rós kom fram með
svipað DJ-sett á skemmtistað í
Berlín á dögunum, við almennt
góðar undirtektir viðstaddra.
- ósk
Sigur Rós og Retro Stefson
Hljómsveitirnar standa fyrir blokkpartíi á Harlem.
Amanda Seyfried ætlar að
halda fyrir augun á föður sínum
þegar hann horfir á nektarsen-
urnar í nýjustu mynd hennar,
Lovelace. Hin 27 ára leikkona
fer með hlutverk klámstjörn-
unnar Lindu Lovelace í mynd-
inni en hin raunverulega Linda
lék í hinni umdeildu mynd Deep
Throat. Amanda er staðráðin
í því að horfa á myndina með
pabba sínum, Jack, svo hún geti
varað hann við þegar nektarsen-
urnar nálgast. „Ég ætla að sitja
með honum og koma í veg fyrir
að hann sjái brjóstin á mér. Hann
má ekki sjá mig nakta,“ sagði
leikkonan í viðtali hjá David
Letter man á þriðjudaginn.
Heldur fyrir
augun á pabba
HLJÓMSVEITIN SIGUR RÓS Er þekkt
fyrir að fara ótroðnar slóðir.
OF ÓÞÆGILEGT Amanda vill ekki að
faðir sinn horfi á nektarsenur hennar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Øyvind Aspen og Mercedes Mühlei-
sens starfrækja galleríið Tidens
Krav í Osló við góðan orðstír og
sýna verk sín hvort í sínu lagi á
Íslandi um helgina.
„Í Noregi eru Íslendingar með það
orðspor að þeir geri það sem þeim
dettur í hug – en á góðan hátt. Við
elskum það,“ segir Mercedes um
álit sitt á Íslendingum. „Þið borguð-
uð ekki Icesave-skuldina, eruð ekki í
ESB og eruð með uppistandara sem
borgarstjóra,“ segir Øyvind.
Sýningin An Object Lesson eftir
Mercedes verður opnuð í gallerí
Kunstschlager á laugardaginn.
Øyvind opnar einnig sýningu sama
dag sem ber nafnið HARD WORK
LARD WORK ART WORK í Gallerí
Dverg, en hann er einn þekktasti
unglistamaður Noregs um þessar
mundir. Mercedes Mühleisens fæst
við skúlptúra, innsetningar, vídjó
og gjörninga. Øyvind vinnur aðal-
lega með myndbandsmiðilinn, texta,
skúlptúr og gjörninga. - ósk
Setja upp tvær sýningar á Íslandi
Listaparið Øyvind Aspen og Mercedes Mühleisens setja upp tvær sýningar um
helgina. Þau segja Íslendinga frábæra því þeir geri það sem þeim dettur í hug.
MERCEDES MÜHLEISEN OG ØYVIND
ASPEN Parið er í óða önn að setja upp
sýningar í Kunstschlager-galleríinu og
Gallerí Dverg. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL