Fréttablaðið - 01.08.2013, Qupperneq 60
1. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
Ein stærsta ferðahelgi ársins nálgast óðfl uga. Fréttablaðið tók púlsinn á þremur einstaklingum sem
ætla að lyft a sér upp um verslunarmannahelgina. Ein tekur stefnuna vestur, önnur til Eyja og sá þriðji
ætlar að trítla niður Bergstaðastrætið á Faktorý.
ALLTAF FJÖR UM
VERSLUNARMANNAHELGI
Steinþór Helgi
Arnsteinsson
umboðsmaður
Anný Rut Hauksdóttir
starfsmaður í heildverslun
Sunna Ben
myndlistarmaður
1 Ég fer á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
2 Já, alveg nokkrum sinnum.
3 Við erum stór hópur sem hefur farið í nokkur ár í röð núna. Það
kemur ekkert annað til greina hjá okkur en þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum, enda með fallegri stöðum á landinu.
4 Með vinkonuhópnum.
5 Lopapeysa er algjört must. Converse-skór, dúnvesti,
gönguskór, regnkápa ef skyldi rigna, en ég vona að
veðurspáin verði góð við okkur. Svo má ekki gleyma
partíhattinum, hann er líka nauðsynlegur.
6 Sálin og Stuðmenn standa upp úr hjá mér enda langt
síðan þeir voru að spila á þjóðhátíð. Nú verður Ingó Veður-
guð með brekkusönginn sem er skemmtilegt. Hápunktur
ferðarinnar er oft þegar þjóðhátíðarlagið er spilað. ÍBV og
FH að einnig að spila í Pepsi-deildinni svo ég læt það ekki
fram hjá mér fara.
7 Eftirminnilegasta þjóðhátíðin mín var árið 2002. Það var
alveg klikkað veður, en ég skemmti mér alltaf konunglega þrátt fyrir
vont veður. Þjóðhátíðin í fyrra 2012 var einnig algjör snilld. Gott
veður og frábært fólk sem var með mér.
8 Veistu, ég held að ég eigi enga hræðilega verslunarmannahelgi.
Þetta er alltaf svo skemmtilegt.
1 Ég fer í raun ekki langt, trítla bara niður Bergstaða-
strætið og yfir á Faktorý, þar sem Innipúkinn fer fram.
2 J á, margoft. Þeir sem eitthvað þekkja til miðbæjarins
vita að þetta er ein besta helgi ársins til að eyða þar, og
þá er hvergi betra að vera en á Innipúkanum.
3 Því Innipúkinn er svo yndislega frábær. Svo er ég líka
reyndar einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í ár.
4 K ærustunni, stjúpsyninum, mömmu og bara öllum
þessum helstu.
5 Nike Free Run-strigaskór, til að hoppa og skoppa.
Hlýrabolur því maður svitnar svo mikið við að
dansa inni á Faktorý. Sólarvörn því besta veðrið
verður í miðbænum og denim-flík/ur. Það verður
að vera eitthvað denim!
6 G eiri Sæm auðvitað! Og síðan allir hinir,
erfitt að gera upp á milli. Síðan verður
gaman að kíkja á Rykkrokk uppi í Breiðholti.
Ég ætla líka að hefja helgina á Lunch Beat í
hádeginu á föstudaginn. Ég hlakka síðan til
að slaka vel á á sunnudeginum á Kexi, þar sem
við verðum með dagskrá á torginu fyrir utan hjá þeim.
7 Hef átt margar góðar helgar með móður minni.
Við fórum til dæmis á Halló Akureyri á sínum tíma,
ásamt öðru góðu fólki. Ég var þá á fermingaraldri
– og vildi taka þátt í einhverju uppbyggilegu, fór í
klettaklifur en endaði á slysó með gat á hausnum.
Síðan þá hef ég farið meira í grundvallaratriðin
eins og bjórdrykkju og að dilla krullunum við góða
tóna.
8 Ég man sem betur fer ekki eftir neinni. Samt
fór á ég á Eldborgarhátíðina og hef farið
á Þjóðhátíð. Maður á ekki að gera neitt
hræðilegt um verslunarmanna helgina,
bara hafa gaman.
1 Ég er að fara á Mýraboltann á Ísafirði.
2 Eins og ég hef oft farið til Ísafjarðar, enda ættuð
þaðan, þá hef ég samt aldrei farið þangað um
verslunarmannahelgi áður, og hlakka til að prófa.
3 Það er nú aðallega vegna þess að María Rut
vinkona mín byrjaði að smala saman nokkrum
hressum stelpum í lið í mýrarboltann og þegar
hún bauð mér ákvað ég að tékka á þessu, ég
stóðst ekki mátið að verja helgi með svona
hressu gengi. Svo finnst mér líka yndislegt á
Ísafirði og þetta er fullkomið tækifæri til að
heilsa upp á ættingja þar í bæ.
4 Ég fer með snillingunum Maríu Rut
Kristins dóttur, Steingerði Sonju Þórisdóttur
og Ólöfu.
5 Sko, ég er voða fegin að hafa ákveðið að
fórna kúlinu til að vera í skátunum þegar ég
var gelgja, ég er ágæt í að pakka og í að ferðast.
Við erum ekki í tjaldi svo umstangið og undir-
búningurinn helmingast að minnsta kosti en það
er alltaf mikilvægt að vera með auka sokka og skó,
nærföt, sundföt, hlý föt, lopapeysur og regnstakka.
Veðrið á Íslandi er svo ófyrirsjáanlegt að ég tek frekar
áhættuna á að vera með of mikið en of lítið. En hlýju
fötin eru fremst í flokki, ég hef brennt mig á því að fara
á LungA á Seyðisfyrði í leðurjakka, gollu og leggings, og
það var alls ekki nóg.
6 Ég hlakka ógeðslega til að sjá mýrarboltann sjálfan,
ég er ekki viss um að ég þori að taka þátt en kannski
tekst mér að þamba í mig kjark. Svo hlakka ég til að sjá
Retro Stefsson spila, það er alltaf ávísun á gleði og stuð.
7 Þetta er erfitt, ég hef átt margar skemmtilegar. En
það stendur vissulega upp úr þegar ég var 16 ára og
fór með öllum goth-vinahópnum mínum til Akureyrar
á fyllirí. Þetta var í fyrsta sinn sem við höfðum
ferðast saman og allir voru stífmálaðir og nákvæm-
lega stílíseraðir allan tímann. Ég hef nokkrum sinnum
farið til Akureyrar með mismunandi vinahópum og það
hefur alltaf verið ótrúlega gaman. Svo var líka yndislegt
í fyrra þegar við fjölskyldan héldum ættarmót uppi í
sumarbústað og héldum brennu þar sem við brenndum
allt gamla draslið sem enginn vildi nota lengur, það var
fáránlega gaman.
8 Mér dettur engin hræðileg verslunarmannahelgi í hug,
en það var frekar hræðilegt þegar ég var á leiðinni til Akur-
eyrar með vinkonum mínum 2006 og ég fékk að hoppa
út í móa að pissa, svo þegar ég var búin og ætlaði að
girða upp um mig varð mér litið á lærið á mér þar
sem á sat kónguló á stærð við hausinn á mér. Mér
brá mikið og stökk af stað að reyna að hrista
hana af með allt niðrum mig, kom svo inn í
bíl og skalf af klígju á meðan vinkonurnar
hlógu alla leið til Akureyrar.
1 Hvert ferðu um helgina?
2 Hefur þú farið þangað áður um verslunarmannahelgi?
3 Af hverju varð þessi staður fyrir valinu?
4 Með hverjum ferðu?
5 Hvað er algjörlega nauðsynlegt að hafa með sér á staðinn?
6 Hvað er nauðsynlegt að sjá eða gera á staðnum?
7 Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin þín?
8 Hvaða verslunarmannahelgi var hræðilegust?