Fréttablaðið - 01.08.2013, Page 60

Fréttablaðið - 01.08.2013, Page 60
1. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48 Ein stærsta ferðahelgi ársins nálgast óðfl uga. Fréttablaðið tók púlsinn á þremur einstaklingum sem ætla að lyft a sér upp um verslunarmannahelgina. Ein tekur stefnuna vestur, önnur til Eyja og sá þriðji ætlar að trítla niður Bergstaðastrætið á Faktorý. ALLTAF FJÖR UM VERSLUNARMANNAHELGI Steinþór Helgi Arnsteinsson umboðsmaður Anný Rut Hauksdóttir starfsmaður í heildverslun Sunna Ben myndlistarmaður 1 Ég fer á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. 2 Já, alveg nokkrum sinnum. 3 Við erum stór hópur sem hefur farið í nokkur ár í röð núna. Það kemur ekkert annað til greina hjá okkur en þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum, enda með fallegri stöðum á landinu. 4 Með vinkonuhópnum. 5 Lopapeysa er algjört must. Converse-skór, dúnvesti, gönguskór, regnkápa ef skyldi rigna, en ég vona að veðurspáin verði góð við okkur. Svo má ekki gleyma partíhattinum, hann er líka nauðsynlegur. 6 Sálin og Stuðmenn standa upp úr hjá mér enda langt síðan þeir voru að spila á þjóðhátíð. Nú verður Ingó Veður- guð með brekkusönginn sem er skemmtilegt. Hápunktur ferðarinnar er oft þegar þjóðhátíðarlagið er spilað. ÍBV og FH að einnig að spila í Pepsi-deildinni svo ég læt það ekki fram hjá mér fara. 7 Eftirminnilegasta þjóðhátíðin mín var árið 2002. Það var alveg klikkað veður, en ég skemmti mér alltaf konunglega þrátt fyrir vont veður. Þjóðhátíðin í fyrra 2012 var einnig algjör snilld. Gott veður og frábært fólk sem var með mér. 8 Veistu, ég held að ég eigi enga hræðilega verslunarmannahelgi. Þetta er alltaf svo skemmtilegt. 1 Ég fer í raun ekki langt, trítla bara niður Bergstaða- strætið og yfir á Faktorý, þar sem Innipúkinn fer fram. 2 J á, margoft. Þeir sem eitthvað þekkja til miðbæjarins vita að þetta er ein besta helgi ársins til að eyða þar, og þá er hvergi betra að vera en á Innipúkanum. 3 Því Innipúkinn er svo yndislega frábær. Svo er ég líka reyndar einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í ár. 4 K ærustunni, stjúpsyninum, mömmu og bara öllum þessum helstu. 5 Nike Free Run-strigaskór, til að hoppa og skoppa. Hlýrabolur því maður svitnar svo mikið við að dansa inni á Faktorý. Sólarvörn því besta veðrið verður í miðbænum og denim-flík/ur. Það verður að vera eitthvað denim! 6 G eiri Sæm auðvitað! Og síðan allir hinir, erfitt að gera upp á milli. Síðan verður gaman að kíkja á Rykkrokk uppi í Breiðholti. Ég ætla líka að hefja helgina á Lunch Beat í hádeginu á föstudaginn. Ég hlakka síðan til að slaka vel á á sunnudeginum á Kexi, þar sem við verðum með dagskrá á torginu fyrir utan hjá þeim. 7 Hef átt margar góðar helgar með móður minni. Við fórum til dæmis á Halló Akureyri á sínum tíma, ásamt öðru góðu fólki. Ég var þá á fermingaraldri – og vildi taka þátt í einhverju uppbyggilegu, fór í klettaklifur en endaði á slysó með gat á hausnum. Síðan þá hef ég farið meira í grundvallaratriðin eins og bjórdrykkju og að dilla krullunum við góða tóna. 8 Ég man sem betur fer ekki eftir neinni. Samt fór á ég á Eldborgarhátíðina og hef farið á Þjóðhátíð. Maður á ekki að gera neitt hræðilegt um verslunarmanna helgina, bara hafa gaman. 1 Ég er að fara á Mýraboltann á Ísafirði. 2 Eins og ég hef oft farið til Ísafjarðar, enda ættuð þaðan, þá hef ég samt aldrei farið þangað um verslunarmannahelgi áður, og hlakka til að prófa. 3 Það er nú aðallega vegna þess að María Rut vinkona mín byrjaði að smala saman nokkrum hressum stelpum í lið í mýrarboltann og þegar hún bauð mér ákvað ég að tékka á þessu, ég stóðst ekki mátið að verja helgi með svona hressu gengi. Svo finnst mér líka yndislegt á Ísafirði og þetta er fullkomið tækifæri til að heilsa upp á ættingja þar í bæ. 4 Ég fer með snillingunum Maríu Rut Kristins dóttur, Steingerði Sonju Þórisdóttur og Ólöfu. 5 Sko, ég er voða fegin að hafa ákveðið að fórna kúlinu til að vera í skátunum þegar ég var gelgja, ég er ágæt í að pakka og í að ferðast. Við erum ekki í tjaldi svo umstangið og undir- búningurinn helmingast að minnsta kosti en það er alltaf mikilvægt að vera með auka sokka og skó, nærföt, sundföt, hlý föt, lopapeysur og regnstakka. Veðrið á Íslandi er svo ófyrirsjáanlegt að ég tek frekar áhættuna á að vera með of mikið en of lítið. En hlýju fötin eru fremst í flokki, ég hef brennt mig á því að fara á LungA á Seyðisfyrði í leðurjakka, gollu og leggings, og það var alls ekki nóg. 6 Ég hlakka ógeðslega til að sjá mýrarboltann sjálfan, ég er ekki viss um að ég þori að taka þátt en kannski tekst mér að þamba í mig kjark. Svo hlakka ég til að sjá Retro Stefsson spila, það er alltaf ávísun á gleði og stuð. 7 Þetta er erfitt, ég hef átt margar skemmtilegar. En það stendur vissulega upp úr þegar ég var 16 ára og fór með öllum goth-vinahópnum mínum til Akureyrar á fyllirí. Þetta var í fyrsta sinn sem við höfðum ferðast saman og allir voru stífmálaðir og nákvæm- lega stílíseraðir allan tímann. Ég hef nokkrum sinnum farið til Akureyrar með mismunandi vinahópum og það hefur alltaf verið ótrúlega gaman. Svo var líka yndislegt í fyrra þegar við fjölskyldan héldum ættarmót uppi í sumarbústað og héldum brennu þar sem við brenndum allt gamla draslið sem enginn vildi nota lengur, það var fáránlega gaman. 8 Mér dettur engin hræðileg verslunarmannahelgi í hug, en það var frekar hræðilegt þegar ég var á leiðinni til Akur- eyrar með vinkonum mínum 2006 og ég fékk að hoppa út í móa að pissa, svo þegar ég var búin og ætlaði að girða upp um mig varð mér litið á lærið á mér þar sem á sat kónguló á stærð við hausinn á mér. Mér brá mikið og stökk af stað að reyna að hrista hana af með allt niðrum mig, kom svo inn í bíl og skalf af klígju á meðan vinkonurnar hlógu alla leið til Akureyrar. 1 Hvert ferðu um helgina? 2 Hefur þú farið þangað áður um verslunarmannahelgi? 3 Af hverju varð þessi staður fyrir valinu? 4 Með hverjum ferðu? 5 Hvað er algjörlega nauðsynlegt að hafa með sér á staðinn? 6 Hvað er nauðsynlegt að sjá eða gera á staðnum? 7 Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin þín? 8 Hvaða verslunarmannahelgi var hræðilegust?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.