Fréttablaðið - 01.08.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 01.08.2013, Blaðsíða 22
1. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 22 Aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur, sem kynnt var við lok vetrar árið 2011, til þess að bæta rekstur og starfsemi fyrir- tækisins hefur gengið vonum framar ef marka má greiningu Arion banka. Áætlunin ber nafnið Planið og er henni ætlað að hag- ræða í rekstri og starfsemi Orkuveitunnar t i l þess að m æt a fjá r - þörf félagsins. Fjárþörfin var metin 50 millj- arðar króna á árunum 2012 til 2016, en Orku- veitan varð fyrir verulegu höggi þegar krón- an veiktist eftir hrun þar sem nær allar skuldir félagsins voru gengistryggðar í erlendri mynt. Planið innheldur hagræðingar- og sparnaðaraðgerðir sem eiga að brúa fjárþörf fyrirtækisins að fullu til loka ársins 2016. Í dag er Planið búið að skila um 28 millj- örðum króna sem er tæplega 2,5 milljörðum króna umfram það sem áætlað var á þessum tíma- punkti. Hagræðingaraðgerðir félags- ins hafa verið umfangsmiklar á síðustu tveimur árum en fyrir- tækið hefur meðal annars fækk- að starfsmönnum um rúman þriðjung, hækkað gjaldskrá sína og selt eignir. „Við höfum lagst í djúpa greiningarvinnu á öllum þáttum starfsemi fyrirtækisins til þess að gera hana skilvirkari og betri,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, og bætir við að þjónusta fyrirtækisins hafi þó ekki versnað vegna hagræð- ingarinnar, heldur þvert á móti. „Það var mjög mikilvægt að skilgreina hvert raunverulegt hlutverk fyrirtækisins er,“ segir Bjarni og bendir á að Orku veitan sé fyrst og fremst þjónustu- fyrirtæki með veiturekstur. Hann segir að það hafi verið mikilvægt að einfalda reksturinn og sníða hann að því hlutverki. Rekstrarkostnaður fyrirtækis- ins hefur lækkað mjög hratt og tekjur þess vegna gjaldskrár- hækkunar hafa aukist um tæpa fjóra milljarða króna á síðustu tveimur árum, sem er um 800 milljónum króna umfram það sem áætlun gerði ráð fyrir. Fyrirtækið hefur einnig ráðist í sölu á eignum og seldi meðal ann- ars Perluna til Reykjavíkurborg- ar. „Sumar eignir fyrirtækis ins voru baggi á rekstrinum og sem dæmi var kostnaður við Perluna um 80 til 90 milljónir á ári. Orku- „Planið“ gengið vonum framar Aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur hefur skilað um 2,5 milljörðum króna umfram það sem markmið gerðu ráð fyrir. Fyrirtækið hefur fækkað starfsmönnum um rúmlega þriðjung á tveimur árum og aukið tekjur um tæpa fjóra milljarða króna með gjaldskrárhækkunum. REKSTRARKOSTNAÐUR LÆKKAÐUR Með „stóra planinu“, sem meirihlutinn sem tók við eftir síðustu borgarstjórnarkosningar réðst í hefur starfsmönnum Orkuveitunnar verið fækkað úr 607 manns í 390 og hefur fyrirtækið einnig fækkað bílum um 100. Á myndinni má sjá Dag B. Eggertsson, formann borgarráðs, Jón Gnarr borgarstjóra, Bjarna Bjarnason forstjóra og Heiðu Kristínu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Besta flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BJARNI BJARNASON veitunni blæddi því í gegnum margar þeirra eigna sem nú hafa verið seldar,“ segir Bjarni sem er alls hugar feginn að búið sé að stöðva þá blæðingu. Bjarni segir að gott gengi Plansins auki líkur á að fyrirtæk- inu takist að mæta fjárþörf næstu ára og komast á lygnan sjó. „Við þurftum verulega á þessari hag- ræðingu að halda til þess að geta mætt skuldbindingum okkar. Það lítur vel út og árangurinn hefur skilað sér, betur og meira en menn þorðu að vona.“ lovisa@frettabladid.is Orkuveitunni blæddi því í gegnum margar þeirra eigna sem nú hafa verið seldar. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar Tekjur Orkuveitunnar hafa aukist um fj óra milljarða á tveimur árum, 800 milljónum meira en ráð var fyrir gert. 800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.