Fréttablaðið - 21.02.2015, Qupperneq 106
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62
TREND
Spáð í
Óskars-
kjólana
Verða þessir
kjólar á rauða
dreglinum?
GIAMBATTISTA VALLI VALENTINO ZAC POSEN ZAC POSEN MARCHESA SPRING
„Stórfjölskyldan hér á landi kemur
alltaf saman á þessum tíma og fagn-
ar áramótunum með veislu,“ segir
Wenli Wang, vert á Fönix á Bílds-
höfða 12 í Reykjavík. „Þó er allt með
einfaldara sniði en úti í Kína. Þar
standa hátíðarhöldin yfir í fimmtán
daga og þeim fylgja ótal siðir og
hefðir.“ Wenli segir hátíðarhöldin
geta breyst örlítið eftir þema dýrs-
ins en í heild haldist þau á mjög
svipuðum nótum, alltaf sé mikið
fjör og gleði.
Nú er það ár geitarinnar sem er
runnið upp. Wenli segir það eiga að
tákna tíma stöðugleika, umhyggju
og friðar. „Í þeim boðskap sem
fylgir kínverska dýrahringum er
talið að börn sem fæðast á ári geit-
arinnar séu skapandi og góðhjörtuð
og líti alltaf eftir öðrum,“ útskýrir
hún.
Eitt af því sem Wenli segir ómiss-
andi í áramótaveislum er rétturinn
dumplings. „Við eldum marga mis-
munandi rétti en dumplings er það
sem einkennir hátíðahöldin,“ segir
hún. „Það er líka siður að allir í fjöl-
skyldunni búi það til saman.“ Wang
segir dumplings einn vinsælasta
réttinn á Fönix, enda sé hann alltaf
búinn til frá grunni, meira að segja
sé kjötið hakkað á staðnum.
Dumplings ómissandi
áramótaréttur
Nýtt ár er að hefj ast, samkvæmt kínverska tímatalinu. Meðal þeirra sem fagna
því hér á landi er Wang-fj ölskyldan sem rekur veitingastaðinn Fönix.
VERTINN Wenli Wang segir hefð fyrir dumplings á hlaðborðum í tilefni áramótanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÉTT HANDTÖK Wenli segir best að
forma hvern hálfmána í hendinni.
INNPÖKKUN Nauðsynlegt er að brjóta
hálfmánann vel saman.
DUMPLINGS Einn vinsælasti rétturinn á borðum
Fönix.
DUMPLINGS
Fyrir 25 dumplings
Deigið:
200 g hveiti
100 ml vatn
Fylling:
300 g svínahakk
¼ haus kínakál, smátt
saxað (u.þ.b. 200 g)
3 msk. létt sojasósa
1 tsk. grænmetiskraftur
1 msk. sesamolía
1 tsk. ferskt engifer
smátt saxað
1 msk. blaðlaukur smátt
saxað
50 ml vatn
Salt eftir smekk
Sesamfræ
Vorlaukur
Hrærið saman hveiti
og vatn og hnoðið vel.
Látið deigið standa
á heitum stað í 30
mínútur.
Blandið saman
svínahakki, vatni og
blaðlauk og hrærið
vel. Bætið sojasósu,
grænmetiskrafti,
sesamolíu, salti og
engifer vel saman við.
Dreifið hveiti á hreint
borð og hnoðið deigið
og skiptið því í 25
litla bolta. Notið lítið
kökukefli til að fletja
hvern deigbolta í litla
köku á hveitistráðu
borði.
Setjið matskeið af fyll-
ingu í hverja köku og
brjótið deigið saman til
að mynda hálfmána.
Hitið stóra pönnu
með nokkrum mat-
skeiðum af olíu. Raðið
dumplings varlega í
pönnuna og hellið 50
ml af vatni yfir. Setið
lok yfir pönnuna og
steikið á miðlungshita
í um 10 mínútur.
Raðið á disk og
stráið sesamfræjum
og söxuðum vorlauk
yfir. Berið fram með
sojasósu eða hrís-
grjónaediki.
LÍFIÐ
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
E
0
-9
D
5
0
1
3
E
0
-9
C
1
4
1
3
E
0
-9
A
D
8
1
3
E
0
-9
9
9
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K