Læknablaðið - 15.03.2001, Síða 12
Sertral
(sertralín)
Öruggt og árangursríkt lyf
við þunglyndi,
þráhyggju- og áráttusýki
Hver tafla inniheldur: Sertralín hýdróklóríö. samsvarandi sertralín 50 mg. Töflurnar innihalda laktósu Ábendlngar: Pungtyndi. Þráhyggju- og áráttusýki
(obsessive-compulsive disorder). Felmtursköst (ofsahræðsla (panic disorder)), með eða án víðáttufælni (agoraphobia). Skammtar og lyfjagjöf:
Skammtastærðir handa fullorðnum: Vifl þunglyndi og þráhyggju- og áráttusýki: Upphafsskammtur er 50 mg á dag. tekið í einum skammti. Ef þörf
krefur, má auka þennan skammt um 50 mg á dag. í þrepum á nokkrum vikum, í allt að 200 mg á dag. Sé þörf á langtímanotkun lyfsins er venjulegur
viðhaldsskammtur 50 mg á dag. Vifl felmtursköstum (ofsahræðslu) mefl efla án vífláttufælni: Upphafsskammtur er 25 mg á dag. Skammtur er aukinn
í 50 mg á dag eftir eina viku. Ef þörf krefur má auka þennan skammt um 50 mg á dag, í þrepum á nokkrum vikum. Hámarksskammtur sem mælt
er með er 200 mg á dag. Skammtastærðir handa öldruðum eru þær sömu og að framan er getið. Árangur meðferðar getur komið fram innan 7
daga, en oftast þarf 2-4 vikna meðferð áður en full verkun næst. Sertralín er að mestu leyti umbrotið í lifur. Minni eða færri skammta skal gefa af
lyfinu ef sjúklingur er með minnkaða lifrarstarfsemi. Lyfið er tekið einu sinni á dag, annað hvort að morgni eða að kvöldi. Töflurnar má taka ýmist
með eða án matar. Skammtastærflir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Samtímis notkun MAO-hemils. Sérstök varnaðarorfl
og varúðarreglur vifl notkun: Ekki skal gefa sjúklingum sertralín. sem notað hafa MAO-hemlandi lyf, fyrr en 2 vikum eftir að slíkri meðferð hefur
verið hætt Á sama hátt skal ekki gefa MAO-hemlandi lyf fyrr en 2 vikum eftir að sertralín meðferð hefur verið hætl Eins og hjá öðrum þunglyndislyfjum
hefur verið skráð örvun á maníu og hypómaníu hjá nokkrum sjúklingum. Rogaveiki getur hugsanlega versnað við notkun lyfsins og því skal gæta
varúðar við gjöf sertalíns hjá sjúklingum með ílogaveiki. Meðferð með sertralíni skal hætt ef sjúklingar fá krampaköst. Sertralín er að mestu leyti
umbrotið í lifur. Hjá sjúklingum með takmarkaða lifrarstarfsemi minnkar útskilnaðarhraði lyfsins, minni eða færri skammta skal þá gefa af lyfinu.
Vegna aukinnar hættu á sjálfsvígstilraunum samfara þunglyndi skal hafa nálð eftirfit með sjúklingum í upphafi meðferðar. Gæta ber varúðar við notkun
lyfslns hjá sjúklingum, sem eru með sykursýki og meðhöndlaðir með insúlíni eða sykursýkilyfjum af súlfónýlúreaflokkl. Mllliverkanlr vifl önnur lyf og
aflrar milliverkanir: Samtímls gjöf MAO-hemlandi lyfja getur valdið skyndilegum háþrýstingi og oförvunarástandi. Gæta ber varúðar við samtímis
gjöf sertralíns og annarra lyfja sem verka á miðtaugkerfið. Neysla áfengis er ekki ráðlögð meðan á sertralín meðferð stendur. Samtímis notkun
litíums getur aukið tíðni aukaverkana sertralíns, einkum ógleði, skjálfta og kvíða. Þar til frekari upplýsingar liggja fyrir ætti ekki að nota serótónín
virk lyf eins og tryptófan, súmatriptan eða fenflúramín samtímis sertralíni, vegna hugsanlegrar hættu á milliverkunum. Þar sem sertralín er bundið
plasmapróteinum, skal hafa í huga möguleikann á að sertralín milliverki við önnur próteinbundin lyf (td. warfarín og digitoxín). Samtímis gjöf sertralíns
og címetidíns getur valdið aukningu í blóðstyrk sertralíns. Meflganga og brjóstagjöf: Dýratilraunir benda ekki til að lyfið hafi áhrif á frjósemi eða
hafi fósturskemmandi áhrif, en mjög háir skammtar hafa leitt öl aukinnar dánartíðni nýfæddra dýra. Engar tilraunir hafa verið gerðar á barnshafandi
konum. Ber því að forðast notkun lyfsins á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk.
þess vegna ættu konur með barn á brjósti ekki að nota lyfið. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Lyfið getur haft áhrif á viðbragðsflýtf og ber
að hafa það í huga við akstur og stjórnun véla. Sjúklingar sem aka bifreiðum eða stjórna öðrum vélknúnum tækjum skal ekki gefið sertralín samtímis
bensódíazepínafbrigðum eða öðrum róandl lyfjum. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði, u.þ.b. 20%. Algengar (>1%): Almennar:
Aukin svitamyndun. svimi, syfja, höfuðverkur, óróleiki, þyngdartap, lystarleysl (anorexia) Taugakerfi: Vöðvaskjálfti, truflun á sáðláti. Meltingarfæri:
Ógleði, munnþurrkur, niðurgangur, meltingaróþægindi. Sjaldgæfar (0,1-1%): Geflrænar: Kvíði. Mjðg sjaldgæfar (< 0,1): Efnaskipti: Lækkun natriums
í sermi (hyponatremi). Taugakerfi: Rugl, kynlífsóþægindi hjá konum, náladofi, dofi, ofsjónir, árásarhneigð, æsingur, óróleiki. Ofskömmtun: Einkenni
eins og lýst er varðandi aukaverkanir. Meflhöndlun: Einkennameðferð. Lyfhrif: Sertralín hindrar upptóku serótóníns (5-HT) á sértækan hátt í taugum,
sem leiðir til aukningar á áhrifum 5-HT. Lyfið hefur aðeins mjög væg áhrif á endurupptöku í taugar af noradrenalíni og dópamíni. í lækningalegum
skömmtum hemur sertralín endurupptöku serótóníns í blóðflögum. Sertralín hefur engin örvandi, róandi eða andkólínvirk áhrif og hefur ekki eitrunaráhrif
á hjarta í dýratilraunum. í rannsðknum á sjálfboðaliðum hafði sertralín hvorki róandi áhrif né áhrif á hughreyfilegt atferli. í samræmi við hina sértæku
hömlun á 5-HT upptöku eykur sertralín ekki katekólamínvirkni. Sertralín hefur ekkl sækni í múskarín (kólínvirka), serótónínvirka, dópamínvirka,
adrenvirka, histamínvirka, GABA eða benzódíazepín viðtaka. Ólíkt þríhringlaga geðdeyfðarlyfjum, hefur þyngdaraukning ekki sést eftir meðferð með
lyfinu. Ekki hefur komið í Ijós, að sjúklingar verði likamlega aða andlega háðir lyfinu. Lyfjahvörf: Sertralín hefur skammtaháð lyfjahvörf á skammtabilinu
50 - 200 mg á dag. Eftir 50 - 200 mg á dag í 14 daga sést hámarksblóðþéttni hjá mönnum 4,5 - 8,4 klst. eftir gjöf. Stöðugri blóðþéttni er náð
eftir daglega gjöf sertralíns í eina viku. Lyfið er nánast alit próteinbundið (um 98%). Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að lyfið hefur mjóg stórt
dreifingarrúmmál. Sertralín umbrotnar mikið í fyrstu umferö í lifur. Sertralín og aðalumbrotsefni þess,
N-desmetýlsertralín (sem virðist að mestu óvirkt) umbrotna að mestu leyti í líkamanum og umbrotsefnin skiljast út með saur og þvagi. Aðeins lítið
magn af sertralíni skilst óbreytt út með þvagi. Helmingunartími í útskilnaðarfasa er u.þ.b. 26 klsL. Lyfjahvörf lyfsins eru eins hjá eldri og yngri
sjúklingum. Inntaka sertralíns með mat hefur ekki marktæk áhrif á aðgengi lyfsins.
Útlit: Hvítar, filmuhúðaðar töflur, ílangar, kúptar (stærð: 10 x 5 mm). með deilistriki.
Pakkningar og verð (Lyfjaveröskrá 1. nóvember)
Sertral 50 mg. 28 stk 3.377 kr
Sertral 50 mg, 98 stk. 10.704 kr
Omega Farma
www.omega.is
GRAFÍSKA SM103AN EHF. - MÁIVERK EFTIR BILSON