Læknablaðið - 15.03.2001, Síða 21
FRÆÐIGREINAR / GÓÐKYNJA STÆKKUN HVEKKS
Þróun á meðferð og kostnaði góðkynja
stækkunar hvekks á Islandi
Sigmar Jack1,
Guðmundur
Geirsson2
‘Læknadeild HÍ,
2þvagfæraskurðdeild
Landspítala Fossvogi.
Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Guðmundur Geirsson,
þvagfæraskurðdeild
Landspítala Fossvogi, 108
Reykjavík. Sími: 525 1000;
netfang: gg@landspitali.is
Lykilorð: góðkynja stœkkun
hvekks, kostnaður,
lyfjameðferð, brottnám hvekks
um þvagrás.
Ágrip
Inngangur: Á síðasta ártaugi hefur brott-
námsaðgerðum á hvekk um þvagrás (transurethral
resection of the prostate, TURP) fækkað verulega, á
sama tíma og meðferð með lyfjum af gerð oq-
viðtækjablokkara og 5-a redúktasablokkara, hefur
aukist mikið við meðferð góðkynja hvekksstækkunar
(benign prostatic hyperplasia, BPH).
Markmið rannsóknarinnar var að taka saman
tíðnitölur og meta kostnað varðandi ofangreindar
breytingar á meðferð við góðkynja hvekksstækkun.
Einnig var athugað hvort ábendingar fyrir brottnámi
á hvekk um þvagrás hefðu breyst á undanförnum
árum.
Efniviður og aðferðir: Upplýsingar um fjölda
sjúklinga, sem fóru í brottnámsaðgerð á hvekk um
þvagrás, voru fengnar frá sjúkrahúsunum ásamt
Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði og upp-
lýsingar um lyfjanotkun frá Tryggingastofnun ríkisins.
Kostnaðartölur aðgerða voru fengnar frá Noregi.
Sjúkraskrár frá Landakotsspítala og Borgarspítala á
tímabilinu 1988-1989 og Sjúkrahúsi Reykjavíkur
1998-1999 voru yfirfarnar og ábendingar fyrir
aðgerðum á hvoru tímabili fyrir sig bornar saman.
Niðurstöður: Fjöldi aðgerða náði hámarki árið
1992 þegar þær voru rúmlega 560 talsins en síðan
hefur þeim fækkað árlega og voru liðlega 270 árið
1999 en það er um það bil helmings fækkun á átta
árum. Fjöldi þeirra einstaklinga sem fær einhvers
konar meðferð hefur margfaldast eftir tilkomu
lyfjameðferðar og heildarkostnaður meðferðar vegna
góðkynja hvekksstækkunar hefur nánast tvöfaldast
frá 1984. Ekki var sýnt fram á marktæka breytingu
ábendinga fyrir brottnámsaðgerðum á hvekk um
þvagrás á tímabilunum tveimur.
Umræða: I kjölfar mikilla breytinga á meðferð við
góðkynja hvekksstækkun, þar sem fjöldi þeirra
einstaklinga sem fær meðferð hefur aukist mikið,
hefur heildarkostnaður nánast tvöfaldast frá 1984
þrátt fyrir að brottnámsaðgerðum á hvekk um þvag-
rás hafi fækkað. Mikil aukning lyfjameðferðar hefur
því haft í för með sér þá kostnaðaraukningu sem sést
hefur undanfarin ár.
Inngangur
Góðkynja hvekksstækkun (benign prostatic
hyperplasia, BPH) er langalgengasta greining meðal
karlmanna, sem eiga við vandamál að stríða tengd
hvekk. Samkvæmt tölfræðiupplýsingum úr stórri
ENGLISH SliMMARY
Jack S, Geirsson G
Changes in treatment and cost of benign prostatic
hyperplasia in lceland
Læknablaðið 2001;87:213-8
Objective: During the last eight years there has been a
dramatic change in the treatment of patients with benign
prostatic hyperplasia (BPH) in lceland. The number of
transurethral resection of the prostate (TURP) has
decreased while at the same time there has been a
growing tendency to treat patients with a-| -blockers and
finasteride. The purpose of this study was to obtain
statistical information regarding these changes and to
estimate alterations in the cost of the BPH treatment.
Possible changes in indications forTURP were also looked
at.
Material and methods: Information on the number of
patients who underwent surgery since 1984 was gathered
from lcelandic hospitals. Information on the use and cost
of medical treatment was obtained from the lcelandic
Social Security. Medical records of 587 men who
underwent surgery in the years 1988-1989 and 1998-1999
were reviewed.
Results: Since 1992 the number of TURP operations per
year has dropped from its peak of about 560 to around
270 in 1999. This is more than a 50% reduction in eight
years. The number of patients being treated for BPH has
multiplied since the introduction of drugs and the total cost
of BPH treatment has doubled since 1984. There was a
trend but not a significant change in indications forTURP
when the two periods were compared.
Conclusions: Increasing number of lcelandic men with
BPH are now recieving treatment although the number of
TURP operations has decreased. The total cost of
treatment has doubled since 1984, mainly attributed to the
advent of medical treatment.
Key words: benign prostatic hyperplasia, cost, drug
therapy, transurethral resection of prostate.
Correspondence: Guðmundur Geirsson. E-mail:
gg@landspitali.is
Læknablaðið 2001/87 213