Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2001, Síða 28

Læknablaðið - 15.03.2001, Síða 28
AUGMENTIN (GlaxoSmithKline 870191. (Amoxisillín og klavúnatsýra). Ábendingar: Sýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir lyfjablöndunni. Frábendingar: Ofnæmi fyrir beta-laktam lyfjum, t.d. penicillíni og cefalóspórínsamböndum. Mononucleosis. Saga um gulu eða skerta lifrarstarfsemi, sem tengist gjöf á Augmentin eda skyldum lyfjum. Aukaverkanir: Vid venjulega skömmtun lyfsins má búast við aukaverkunum hjá 5% sjúklinga. Aukaverkanir frá meltingarvegi svo sem linar hægðir, ógleði, uppköst og meltingartruflanir eru þó algengari ef hærri skammtar eru gefnir. Virðast þessar aukaverkanir algengari við gjöf þessa lyfs en við amoxicillíns eins sér. Algengar (>í%):Meltingarvegur: Linar hægðir. Húð: útbrot, kláði. Sjaldgæfar 10,1-1%): Blóð: Afturkræf hvitfrumnafæð, afturkræf blóðflagnafæð. Meltingarvegur: Úgleði, uppköst. Húð: Ofsakláði. Milliverkanir Próbenecíð seinkar útskilnaði amoxicillíns, en ekki útskilnaði klavúlansýru. Þvi er ekki mælt með samtímis gjöf próbenecíðs og Augmentin. Samtimis gjöf amoxicillíns og allópúrínóls getur aukið líkur á ofnæmisútbrotum í húð. Engar upplýsingar eru um samtimis gjöf Augmentin og allópúrinóls. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur Augmentin dregið úr virkni getnaðarvarnataflna. Varúð: Við skerta nýrnastarfsemi (kreatínínklerans < 30 ml/min.) þarf að minnka skammta fyrir 250 mg + 125 mg töflur og 500 mg + 125 mg töflur og ekki á að nota 875 mg + 125 mg töflur. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Vegna aspartaminnihalds mixtúrunnar skal gæta varúðar hjá sjúklingum með fenýlketonureu. Lenging á prótrombín tima hefur verið lýst í einstaka tilvikum hjá sjúklingum sem fá Augmentin. Þegar blóðþynningarlyf eru gefin samtímis skal viðeigandi eftirliti vera framfylgt. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er ein tafla 250 mg + 125 mg þrisvar sinnum á dag. Við alvarlegum efri loftvegasýkingum og lungnasýkingum ein tafla 500 mg + 125 mg þrisvar sinnum á dag eða ein tafla 875 mg + 125 mg tvisvar sinnum á dag. - Æskilegt er að gefa lyfid við upphaf máltiðar. Skammtastærðir handa börnum: Mixtúra 80/11,4 mg/ml (1 ml mixtúra = 80 mg amoxicillín): Dagsskammtur 25/3,6 mg/kg - 45/6,4 mg/kg. Athugið: Fullbúin mixtúra hefur 7 daga geymsluþol í ísskáp (2-8°C). Afgreiðslutilhögun R. Greiðslutilhögun 0. Pakkningar og hámarksverð: Mixtúruduft 80 mg +11,4 mg/ml: 70 ml verð kr. 2465,-. Töflur 875 mg +125 mg:12stk. (þynnupakkað) verð kr. 2546,-. (19012001) J

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.