Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2001, Qupperneq 61

Læknablaðið - 15.03.2001, Qupperneq 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 5 Faraldsfræði í dag Kerfisbundin skekkja María Heimisdóttir Netfang: mariah@decode.is Kerfisbundin skekkja (kerfisskekkja, bias) er önnur meginorsök sýndarsambands (spurious association) áhættuþáttar eða áreitis annars vegar og sjúkdóms eða annarrar útkomu hins vegar. Slíka skekkju má skilgreina sem kerfisbundna villu í niðurstöðum er varða samband áhættuþáttar og útkomu. Það að villan er kerfisbundin (ekki slembin (random)) er lykilatriði hér; átt er við að skekkjan í niðurstöðunum hefur ákveðna stefnu (minnkar til dæmis eða eykur hlutfallslega áhættu) sem stundum er þekkt. Kerfisbundin skekkja skerðir innra sannleiksgildi (internal validity) niðurstaðna; skekktar niðurstöður endurspegla ekki raunverulegt samband áhættu- þáttar og útkomu í rannsóknarúrtakinu (study sample). Ytra sannleiksgildi eða alhæfni (internal validity, generalizability) byggist meðal annars á innra sannleiksgildi. Af því leiðir að skekktar niður- stöður eiga heldur ekki við um það þýði sem úrtakið byggðist á og sem rannsóknin átti í raun að beinast að (population at risk). Til eru fjölmargar tegundir kerfisskekkju sem oftast eru flokkaðar eftir meginorsök. Fyrir áhuga- sama má benda á grein eftir Sackett, þar sem taldir eru upp nokkrir tugir mismunandi tegunda (1). Slíkrar nákvæmni er yfirleitt ekki þörf; oftast er nóg að flokka kerfisskekkju í tvo meginhópa eftir því hvort hún á rætur sínar að rekja til vals einstaklinga til þátttöku í rannsókn (selection bias, valskekkja) eða til aðferða sem notaðar eru til að safna upp- lýsingum um einstaklingana (information bias, upp- lýsingaskekkja). Til að hindra valskekkju þarf að tryggja að notaðar séu sömu aðferðir við að velja einstaklinga í hópana sem bera á saman, þannig að þeir verði sem líkastir, nema að því er varðar þau atriði sem verið er að kanna. Þannig er til dæmis varhugavert að byggja sjúklingasamanburðarrannsókn (case-control) á sjúklingum á sjúkrahúsi (cases) annars vegar, en hraustum sjálfboðaliðum (controls) hins vegar. Slíkir hópar eru ósambærilegir á ýmsan hátt og því er ekki raunhæft að ætla að samanburður þessara hópa gefi sanna mynd af sambandi áreitisins og sjúkdómsins. Auk aðferða sem notaðar eru við að safna ein- staklingum til þátttöku þarf að huga að því að brottfall úr rannsókn getur orðið mismunandi meðal hópanna og valdið kerfisskekkju. Því er mikilvægt að báðir (eða allir) hópamir sem bera á saman hafi sambærileg samskipti við rannsóknaraðila og njóti svipaðs eftirlits. Á sama hátt verður að ganga úr skugga um að upplýsingaöflun fari fram á sambærilegan hátt meðal rannsóknarhópanna til að draga úr líkum á upplýsingaskekkju. Upplýsingaskekkja verður til þegar aðferðir við öflun upplýsinga eru háðar eða tengdar áreitinu eða sjúkdómnum sem verið er að rannsaka. Þannig geta spyrlar valdið upplýsinga- skekkju með því að leggja spurningarnar á annan hátt fyrir þá sem veikir eru en hina heilbrigðu. Þeir sem lesa úr upplýsingunum geta túlkað þær á mis- munandi vegu eftir því hvort um sjúkling eða saman- burðareinstakling er að ræða. Upplýsingaskekkja getur einnig sprottið frá einstaklingunum sem taka þátt í rannsókninni (recall eða reporting bias). Þannig er vel þekkt að þeir sem hafa tiltekinn sjúk- dóm velta gjarnan fyrir sér hugsanlegum orsökum hans og rifja upp ýmsa atburði og áreiti sem þeir hafa orðið fyrir. Þetta getur haft áhrif á hvernig viðkom- andi skýrir frá atburðum eða þáttum sem tengst geta sjúkdómnum. Sambærileg hvatning til að íhuga þau atriði sem snert geta tilurð sjúkdómsins er auðvitað ekki til staðar meðal þeirra sem ekki hafa sjúk- dóminn. Kerfisbundin skekkja er afleiðing ófullkominnar aðferðafræði við hönnun og framkvæmd rannsóknar. Hægt er að takmarka mjög líkur á slíkri skekkju með því að nota það rannsóknarform (íhlutandi rann- sóknir með slembiákvörðun um meðferð, ferilrann- sókn, sjúklingasamanburðarrannsókn og svo framvegis) sem ákjósanlegast er með tilliti til vísinda- spurningarinnar, og vanda sérlega til upplýsinga- söfnunar og vals á einstaklingum til þátttöku. Hvaða rannsóknarform er heppilegast ræðst af ýmsum þáttum og verður fjallað um það síðar á þessum vettvangi. Ef rannsókn hefur, þrátt fyrir allt, farið fram með þeim hætti að líkur eru á kerfisbundinni skekkju, er mjög erfitt að bæta úr þeim vanda. Til að túlka og nýta slíkar niðurstöður á sem skynsam- legastan hátt er mikilvægt að reyna að gera sér grein fyrir umfangi og stefnu skekkjunnar. Oft er hægt að átta sig á hvort skekkjan er líkleg til að auka eða draga úr áætluðu sambandi áreitis og sjúkdóms og í sumum tilfellum er unnt að meta, að minnsta kosti gróflega, stærð skekkjunnar. Forvarnir við hönnun og framkvæmd rannsóknar, eins og lýst er að ofan, eru því það sem gildir á þessu sviði þar sem meðferð er af skornum skammti. Læknablaðið 2001/87 253
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.