Læknablaðið - 15.06.2002, Síða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Vangaveltur um framtíð
Læknablaðsins sem vísindarits
í marshefti Læknablaðsins
ritar Hannes Petersen læknir
athyglisverða ritstjórnar-
grein þar sem hann ræðir
stöðu Læknablaðsins sem vís-
indarits. Hann bendir rétti-
lega á að fræðigreinum hafi
ekki fjölgað í blaðinu í takt
við vaxandi vísindastarfsemi
Tómas innan læknisfræði á íslandi.
Guðbjartsson Að jafnaði birtast í blaðinu
fjórar vísindagreinar og hef-
ur sá fjöldi haldist óbreyttur hin síðari ár. Á sama
tíma hefur hlutfall annars efnis aukist.
Þar sem mér hefur lengi fundist skorta umræðu
um Læknablaðið fagna ég mjög frumkvæði Hann-
esar. Mörg þeirra atriða sem hann nefnir í grein
sinni hef ég hugleitt lengi og ég verð að viðurkenna
að ég hef haft nokkrar áhyggjur af framtíð blaðsins
sem vísindarits. Mér finnst Læknablaðið þó hafa
vaxið og eflst hin síðari ár og sem fréttablað og
skoðanavettvangur íslenskra lækna er hlutverk
þess ótvírætt. Hlutverk þess sem vísindarits er þó
mikilvægast. Öflugt læknablað er forsenda þess að
á íslandi sé hægt að birta rannsóknir í læknisfræði á
íslenskum efnivið, svo ekki sé minnst á hlutverk
blaðsins í kennslu heilbrigðisstétta og fræðslu við
almenning. Eg held að flestir geti verið sammála
mér í því að niðurstöður rannsókna sem gerðar eru
á Islandi, á íslenskum sjúklingum og af íslenskum
læknum, eigi heima í íslensku vísindariti sem er
lesið af íslenskum læknum og læknanemum.
Sú mikla gróska sem verið hefur í rannsóknum
á fslandi hin síðari ár hefur varla farið fram hjá
neinum. Þar vegur þungt tilkoma líftæknifyrirtækja
og rannsóknir tengdar erfðafræði. Rannsóknir
Hjartavemdar, Krabbameinsfélags íslands og Land-
spítala hafa einnig aukist og styrkjum til rannsókna
hefur fjölgað. Læknar á íslandi hafa aldrei verið
fleiri en nú og sífellt stærri hluti þeirra sem snúa
heim úr sérnámi hefur átt þess kost að stunda rann-
sóknir í sérgrein sinni á íslandi.
Þegar þetta er haft í huga ættu því fleiri fræði-
greinar að skila sér á síður Læknablaðsins en raun
ber vitni. En af hverju hefur Læknablaðið ekki not-
ið góðs af „vorinu" í íslensku vísindaumhverfi? Ég
held að skýringin sé fyrst og fremst sú að íslenskir
læknar telja Læknablaðið ekki nógu öflugan miðil
samanborið við erlend læknablöð. Þar skiptir
mestu sú staðreynd að Læknablaðið er ekki skráð í
alþjóðlegum gagnabönkum vísindatímarita, eins
og til dæmis Medline. Þetta er að mínu mati veru-
legur Akillesarhæll, ekki síst á tímum netvæðingar,
og takmarkar verulega útbreiðslu og aðgengi að
niðurstöðum blaðsins. Það er því skiljanlegt að ís-
lenskir læknar sæki á önnur mið til að fá niðurstöð-
ur sínar birtar. Þetta er óæskilegt því að eins og
áður sagði eiga margar þessara rannsókna betur
heima í Læknablaðinu en á síðum erlendra tíma-
rita.
En hvað er þá til ráða? Hannes nefnir í grein
sinni að íslenskir læknar ættu að vera duglegri við
að birta niðurstöður sínar í Læknablaðinu eftir að
þær hafi birst í öðrum læknablöðum. Sjálfur er ég
efins um að þetta sé lausnin og ósennilegt að slík
endurútgáfa, að minnsta kosti í stórum stíl, sé vel
séð af fulltrúum erlendu blaðanna, enda eiga þau
yfirleitt höfundarréttinn að greinunum ef niður-
stöður hafa fyrst birst í þeim.
I staðinn mætti spyrja hvað Læknablaðið getur
gert til að sporna við vísindalegri stöðnun? Mér
skilst að fulltrúar Læknablaðsins hafi í fjölda ára
gert árangurslausar tilraunir til að fá blaðið skráð á
Medline. Ástæðan ku vera hversu lítið málsvæði ís-
lenskunnar er. Ef fulltrúar Læknablaðsins telja að
enn sé von um að fá blaðið skráð á Medline eftir
„pólítískum leiðum“ finnst mér að ritstjórnin,
hugsanlega í samvinnu við Læknafélagið, ætti að
skipa sérstaka nefnd og ganga í málið hið fyrsta.
Nú er það staðreynd að Læknablaðið hefur á
síðustu árum birt ágrip, myndatexta og töflur á
ensku og segir það sína sögu um viðleitni blaðsins
og ætti því að létta róðurinn. Þó má búast við því að
þessi leið reynist torfærari en margur heldur. Og þá
vaknar eðlilega sú spurning hvort Læknablaðið
ætti hreinlega að stíga skrefið til fulls og birta allar
vísindagreinar á bæði ensku og íslensku. Ég tel
þessa hugmynd alls ekki svo fjarstæðukennda. Þeg-
ar til lengri tíma er litið myndi það festa Lækna-
blaðið í sessi sem vísindarit og styrkja stöðu þess í
samkeppni við önnur læknatímarit.
Margir kollega minna hnjóta eflaust um hug-
myndir sem þessar. Engu að síður tel ég umræðuna
tímabæra. Á íslandi eru fordæmi fyrir því að vís-
indarit séu að hluta til gefin út á ensku og er Jökull,
tímarit Jöklarannsóknarfélags íslands og Jarð-
fræðifélags íslands, ágætt dæmi um það. í því tíma-
riti eru vissar greinar birtar eingöngu á ensku en
annað efni blaðsins er á íslensku. Erlendis eru fjöl-
mörg svipuð dæmi, til dæmis eru finnsk og þýsk
Höfundur er sérfræöingur í hjarta- og lungnaskurðlækningum
og starfar við Brigham-Harvard sjúkrahúsið í Boston.
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi fvær gerðir
handrita til ritstjómar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8,201 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að
ræða. Greininni fylgi
yfirlýsing þess efnis að allir
höfundar séu samþykkir
Iokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar,
stofnanir, lykilorð á ensku
og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heintildir
Töflur og myndir skulu vera á
ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar inyndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti. Tölvugögn (data)
að baki gröfum fylgi með,
ekki er hægt að nýta myndir
úr PowerPoint eða af netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://lb.icemed.is/
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi
mánaðar nema annað sé
tekið fram.
Læknablaðið 2002/88 471