Læknablaðið - 15.06.2002, Side 16
FRÆÐIGREINAR / RISTILKRABBAMEIN
spárgildi varðandi horfur sjúklinga með ristilkrabba-
mein. Rétt þykir að mæla með að við meinafræðilegt
mat á sýnum sjúklinga með ristilkrabbamein verði í
framtíðinni auk hefðbundinna meinafræðilegra þátta
tekin sérstök afstaða til eitilfrumuíferðar í umhverfi
æxlis, hliðarbrúnar vefjasýnis og vaxtarháttar æxlis-
jaðars.
Inngangur
Ristilkrabbamein er meðal algengustu krabbameina
vestrænna þjóða og er hlutfallslega algeng orsök
dauðsfalla hjá þeim sem greinast með illkynja æxli.
Undanfarna áratugi hefur nýgengi ristilkrabbameins
farið hækkandi meðal þeirra þjóða heims sem búa við
almenna velmegun og á það ekki síst við um Norð-
urlandaþjóðimar og þar á meðal Islendinga (1,2).
Vefjameinafræðilegar rannsóknir á ristilkrabba-
meini hjá heilli þjóð með athugunum á þeim breyt-
ingum sem orðið hafa á síðastliðnum áratugum hafa
ekki verið gerðar svo höfundum sé kunnugt. Því var
ráðist í að kanna faraldsfræði þessa krabbameins í
íslendingum á 35 ára tímabili, eða frá 1955 til 1989,
með það fyrir augum að kanna þær breytingar sem
kynnu að hafa orðið. Niðurstöður slíkrar rannsóknar
gætu haft alþjóðlegt gildi. Ákveðið var að hafa tíma-
bilið ekki lengra en til ársins 1989 til þess að unnt væri
að kanna minnst tíu ára lifun hjá öllum.
Vegna umfangs efnisins var ákveðið að skipta
rannsókninni í tvennt, annars vegar þar sem fjallað er
um meinafræði sjúkdómsins og hins vegar þar sem
fjallað er um lifun með tilliti til meinafræðilegra
þátta. Niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar hafa
þegar verið birtar (3). Til meinafræðilegra þátta í
þeirri grein heyrðu vefjafræðileg flokkun og gráða
(grade) samkvæmt reglum Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar (4), stigun æxlisvaxtar samkvæmt reglum
kenndum við Dukes og síðar endurbættum af Turn-
bull og félögum (5) og staðsetning æxlis innan ristils.
Markmið þessa verkefnis var að kanna forspár-
gildi ofangreindra og fleiri meinafræðilegra þátta á
lifun sjúklinga.
Efni og aöferðir
Upplýsingar um alla einstaklinga á íslandi sem
greindust með krabbamein í ristli á tímabilinu 1955-
1989 (35 ár) voru fengnar frá Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags íslands. Vefjasvör, krufninga-
skýrslur, smásjárgler og vefjakubbar voru fengin frá
Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði og meina-
fræðideild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (stofn-
uð 1981/1982). Vefjasvör og krufningaskýrslur voru
lesin og endurmetin. Öll smásjárgler frá öllum sýnum
einstaklinga greindum með ristilkrabbamein voru
yfirfarin og endurmetin út frá margvíslegum meina-
fræðilegum þáttum.
Auk meinafræðiþátta var athugað kyn, aldur sjúk-
lings við greiningu, greiningarár og staðsetning æxlis
innan ristils.
Eftirfarandi meinafræðilegu þættir æxlanna voru
athugaðir: stærð, stórsætt útlit (gross appearance,
macroscopic appearance), vefjagerð, gráða, sogæða-
og/eða blóðæðaíferð, hliðarskurðbrún, eitilfrumu-
íferð í umhverfi æxlis, hvort vöxtur héldist innan eða
væri kominn útfyrir garnarvegg, fjöldi eitla með
meinvörpum, útlit æxlisjaðars, hlutfall slímæxlisútlits,
Dukes-stigun og Jass-flokkur (sjá nánar hér að neð-
an).
Stærð æxlis var mæld í sentimetrum og miðað var
við stærsta uppgefið mál æxlis. Stórsætt útlit æxlis var
flokkað samkvæmt lýsingu og útliti í vefjasneiðum á
eftirfarandi hátt: a) sármyndandi (ulcerative) = sár
eða sármyndandi vöxtur, b) sepalaga (polypoid) =
bungandi vöxtur inn í ristilholrúm, c) hringvaxið
(annular) = vöxtur umhverfis ristilholrúmið, d) dreift
ífarandi vaxið (diffuse infiltrative) = óhindraður
vöxtur á mjög dreifðu svæði innan ristilveggjarins, e)
sármyndandi og hringlaga = blanda af hvoru tveggja,
f) sármyndandi og sepalaga = blanda af hvoru
tveggja, g) óvíst (undetermined) = ekki unnt að meta
útlitstegund samkvæmt ofangreindu.
Skilgreiningum á vefjagerðum, gráðu, Dukes-stig-
un og staðsetningarákvörðunum æxlis innan ristils
hafa áður verið gerð skil í fyrri grein (3, 5). Sérstak-
lega skal tekið fram að Dukes A æxli eru þau æxli
sem vaxin eru niður í slímhúðarbeð (submucosa), en
ekki útfyrir vöðvahjúp (muscularis propria) ristil-
veggjar.
Hér verður lýst frekar nokkrum fleiri meinafræði-
þáttum sem er nauðsynlegt til skilnings á niðurstöð-
um sem birtar eru í þessari grein.
Við skilgreindum sérstaklega stöðu æxlis varðandi
hliðarbrún sýnis, en æxli var talið vera við hliðarbrún
vefjasýnis ef það náði út á yfirborð sýnisins, hvort
sem það var þar sem skorið hafði verið í gegnum æxli
við brottnám eða að æxlið náði út á yfirborð lífhimnu
ristilveggjarins (serosa).
Hlutfall slímæxlisútlits (colloid component) í
hverju æxli var metið og æxlin flokkuð í fjóra flokka
(0,+,++,+++) eftir magni slímæxlisútlits. Ef slíkt hlut-
fall fór yfir 50% taldist æxlið vera slímkrabbamein
(mucinous adenocarcinoma).
Jass og Morson hafa skilgreint fjóra meinafræði-
lega þætti krabbameins í ristli og endaþarmi með
tilliti til lifunar (6). Þeir gáfu hverjum þætti stig og
reiknuðu síðan út heildarstigagjöf fyrir hvert æxli.
Flokkunarkerfi þeirra er byggt upp á eftirfarandi
hátt:
1) Útbreiðsla æxlis (einkunn 0 eða 1)
a) Vöxtur æxlis helst innan garnarveggjar = 0
b) Vöxtur æxlis nær út fyrir garnarvegg = 1
2) Meinvörp í eitlum (einkunn 0,1 eða 2)
a) Engin meinvörp = 0
480 Læknablaðið 2002/88