Læknablaðið - 15.06.2002, Side 27
FRÆÐIGREINAR / MMR-BÓLUSETNING
Áhrif Pentavac- og MMR-bólusetningar
á þarma ungbarna
Bjarni
Þjóðleifsson1
Katrín
Davíðsdóttir2
Úlfur Agnarsson3
Arndís Theodórs1
Aðalbjörg
Gunnarsdóttir1
Elva Möller2
Auður Jónsdóttir3
Guðmundur
Sigþórsson1
Matthías Kjeld1
Ingvar Bjarnason1
'Lyflæknisdeild Landspítala
Hringbraut, 2Miðstöð heilsu-
verndar bama, 3Heilbrigðis-
stofnun Suðumesja, Reykja-
nesbæ, 4GKT læknaskólanum,
London.
Fyrirspumir og bréfaskipti:
Bjami Þjóðleifsson,
Lyflæknisdeild Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Sími: 560-1000,
bjamit@landspitali.is
Lykilorð: þarmabólga, MMR-
bólusetning, Pentavac-
bólusetning, einhverfa.
Ágrip
Tilgangur: Að meta hvort MMR-bólusetning
(measles, mumps and rubella) valdi þarmabólgu hjá
íslenskum börnum. Rannsóknin var ekki hönnuð til
að svara spurningunni hvort MMR-bólusetning valdi
einhverfu.
Aðferðir: Rannsökuð voru 109/20 börn fyrir bólu-
setningu og tveim, fjórum og 12-18 vikum eftir bólu-
setningu með Pentavac- og MMR-bóluefnum. At-
hugað var hvort merki væri um þarmabólgu með því
að mæla kalprotectín í hægðasýni.
Niðurstöður: Hvorugt bóluefnið var tengt nokk-
urri marktækri breytingu á þéttni kalprotectíns í
hægðum og kom ekkert fram sem benti til þarma-
bólgu.
Alyktun: Þar sem þessi rannsókn hefur sýnt að
MMR-bólusetningin tengist ekki þarmabólgu þá
mælir það gegn tilgátunni um að MMR tengist ein-
hverfu í gegnum bólgu í þörmum.
Inngangur
Gagnsemi bólusetningar ungbarna við mislingum,
hettusótt og rauðum hundum (MMR) er hafið yfir
allan vafa en hér á landi hefur verið bólusett við þess-
um sjúkdómum með samsettu bóluefni (MMR) síð-
an 1989. Það er því mikil reynsla komin á þessa fram-
kvæmd og aukaverkanir eru fáar og flestar meinlaus-
ar. Náttúruleg sýking af þessum farsóttum veldur
hins vegar miklum veikindum og oft heilsutjóni og
jafnvel dauða. Sérstaklega eru mislingar skæðir.
A seinustu árum hafa komið fram tilgátur um að
MMR-bólusetning geti leitt til þarmabólgu með leka
á þörmum. Skaðleg efni komist þannig út í blóðið og
truflað þroska heilann á viðkvæmu stigi og það síðar
komið fram sem einhverfa.
Það er þekkt að börn með einhverfu hafa mörg
hver eitlabólgur í kviðarholi og ristilbólgur. Hefur
þetta ástand verið kallað einhverfuþarmabólga og
fylgja henni margvísleg einkenni frá meltingarfærum.
Rannsóknir á þessum sjúkdómi hafa allar verið
gerðar mörgum árum eftir bólusetningu með MMR
(1, 2). Orsök og meingerð einhverfuþarmabólgu er
hins vegar umdeild (3) og enn fremur er hlutverk
þarmanna óljóst í þróun sjúkdóma í taugakerfi sem
geta komið fram sem einhverfa eða þroskaraskanir
(4,5).
Ein tilgátan um meingerð einhverfu þarmabólgu
er þannig að bólusetning gegn mislingum, hettusótt
og rauðum hundum (MMR) veki ekki mótefnasvar
ENGLISH SUMMARY
Þjóðleifsson B, Davíðsdóttir K, Agnarsson Ú,
Theodórs A, Gunnarsdóttir A, Möller E, Jónsdóttir A,
Sigþórsson G, Kjeld M, Bjarnason I
Effect of Pentavac and MMR vaccination on the
intestine
Læknablaðið 2002; 88: 491-4
Objective: The safety of infant vaccination has been
questioned in recent years. In particular it has been
suggested that the measles, mumps and rubella (MMR)
vaccination leads to brain damage manifesting as autism
consequent to the development of an „enterocolitis" in the
immediate post-vaccination period.
Aim: To assess if MMR vaccination is associated with sub-
clinical intestinal inflammation which is central to the
autistic „enterocolitis“ theory. The study was not designed
to test directly the association of autism to MMR
vaccination.
Material and methods: We studied 109/20 infants, before
and two and four weeks after immunization with Pentavac
and MMR vaccines, for the presence of intestinal
inflammation (faecal calprotectin).
Results: Neither vaccination was associated with any
significant increase in faecal calprotectin concentrations.
Conclusions: The failure of the MMR vaccination to cause
an intestinal inflammatory response provides evidence
against the proposed gut-brain interaction that is central to
the autistic „enterocolitis11 hypothesis.
Keywords: Intestinal inflammation, MMR vaccination,
Pentavac vaccination, autism.
Correspondance: Bjarni Þjóðleifsson, bjarnit@landspitali.is
hjá ónæmiskerfinu (3). Vírusinn í mislingabóluefninu
nái að setjast að til langframa í eitlavef í þörmum og
leiði það til ónæmissvars sem komi fram í hnútum
eða stækkun á eitlum í þörmum og þarmabólgu.
Þarmabólga leiðir aftur til leka í þörmum sem leyfir
frásog á efnum sem eru skaðleg fyrir taugakerfið, sér-
staklega á viðkvæmum tíma fyrir þróun heilans í
kringum 18 mánuða aldur. Afleiðingin geti verið
seinkun eða truflun á þroska sem kemur fram í marg-
víslegum einkennum, meðal annars einhverfu (3).
Sumt í þessum tilgátum er ekki hægt að rannsaka
beint í börnum af augljósum ástæðum. Meginþáttur
tilgátunnar er hins vegar sá að þarmabólga komi
fram fljótlega eftir bólusetningu með MMR. Þetta er
hægt að rannsaka þar sem nú eru til nokkur næm og
Læknablaðið 2002/88 491