Læknablaðið - 15.06.2002, Síða 37
FRÆÐIGREINAR / SAMBAND SKÓLAGÖNGU OG LÍFSLÍKNA
Umræöa
I samantekt má segja að niðurstaða þessarar rann-
sóknar sé sú að í fyrsta lagi kemur fram afgerandi já-
kvætt samband milli lengdar skólagöngu og algengis
ástundunar líkamsæfinga. I öðru lagi kemur í ljós að
leiðrétting fyrir ástundun líkamsæfinga hefur grein-
anleg áhrif í þá átt að draga úr sambandinu milli
lengdar skólagöngu og dánartíðni. í þriðja lagi sést að
þrátt fyrir allar leiðréttingar stendur enn eftir skýrt
samband milli lengdar skólagöngu og dánartíðni.
Helsti styrkur þessarar rannsóknar er stærð henn-
ar, góð þátttaka og lengd eftirfylgdar (sjá þýði og að-
ferðir). Þessir eiginleikar gera það að verkum að nið-
urstöður verða að teljast yfirfæranlegar á almenning í
sömu aldurshópum á sama landssvæði.
Samband lengdar skólagöngu og ástundunar
líkamsæfinga:
Sambandið sem sýnt var fram á milli lengdar skóla-
göngu og ástundunar líkamsæfinga er í samræmi við
það sem við mátti búast og við niðurstöður erlendis
(8, 16-20). Þó virðist sambandið á milli þessara
breytna jafnvel sterkara í niðurstöðum Hjartavernd-
ar en annars staðar.
Hugsanlegar orsakir fyrir þessu sambandi geta
verið margvíslegar. í fýrsta lagi hefur ástundun lík-
amsæfinga löngum verið fléttuð inn í nám, að
minnsta kosti fyrri stig þess, og því líklegra að fólk
haldi því áfram síðar á lífsleiðinni. 1 öðru lagi má vera
að lengd skólagöngu og ástundun líkamsæfinga eigi
sér sameiginlegan orsakaþátt, það er aðstæður í upp-
vexti. í finnskri rannsókn hafa Lynch og fleiri sýnt
fram á að félagsleg staða foreldra tengist ástundun
líkamsæfinga (19).
I nýlegri könnun sem gerð var á úrtaki úr Hjarta-
verndarþýðinu kom í ljós að fólk með lengri skóla-
göngu að baki var mun líklegra til að vera í persónu-
legum tengslum við lækna eða hjúkrunarfræðinga
(21). Sterkari félagsleg tengsl þessa hóps við heil-
brigðisstéttir kann að ýta undir meðvitund um og
ástundun heilbrigðari lifnaðarhátta. í sömu könnun
kom einnig í ljós að enginn munur var á skólagöngu-
hópum varðandi það hversu mikilvægt fólk taldi að
stunda líkamlega hreyfingu reglulega. Þetta bendir til
þess að fleiri þættir en vitneskjan um hollustu líkams-
æfinga móti ástundun þeirra, svo sem ytri aðstæður
og þættir sem koma til fyrr á ævinni.
í töflu III er birt samband skólagöngu og ástund-
unar sunds og gönguferða. Þetta er gert til að sýna
fram á sambandið við almenna hreyfingu sem fólk er
líklegt til að stunda fram á efri ár ef til vill frekar en
knattleiki og aðrar keppnisíþróttir. Eins og sjá má á
töflunni er sambandið þarna að fullu sambærilegt við
niðurstöðu úr öðrum liðum.
Athyglisvert er að sambandið milli lengdar skóla-
göngu og ástundunar lfkamshreyfingar helst fram
eftir ævinni, sérstaklega meðal karla. Þannig má segja
að samkvæmt okkar niðurstöðum séu þeir sem hafa
stundað langskólanám líklegri til að byrja að iðka
líkamsæfingar reglulega og það hegðunarmynstur
haldi sér svo út ævina, í það minnsta svo langt sem
niðurstöður okkar ná. Sambærilegar niðurstöður má
sjá í rannsókn Bennetts frá Ástralíu (16). Þetta hefur
mikla þýðingu þar sem áframhaldandi ástundun
líkamsæfinga út ævina er lykilatriði í því að viðhalda
jákvæðum áhrifum hennar (22-24). Sambandið milli
lengdar skólagöngu og ástundunar líkamshreyfingar
helst ekki eins vel fram eftir ævinni hjá konum en það
ber að gæta að því að langskólagengnar konur voru
frekar fáar í þeim árgöngum sem kannaðir voru og
mun færri en karlar.
Samband skólagöngu og dánartíðni:
Ljóst er að almenna tilhneigingin var að leiðrétting
fyrir ástundun líkamsæfinga hafði áhrif í þá átt að
draga úr sambandinu sem er milli skólagöngu og lífs-
líkna. Áhugavert er að leiðréttingin fyrir líkamsæf-
ingum hafði í mörgum hópum sambærileg áhrif og
leiðrétting fyrir öðrum þekktum áhættuþáttum til
samans. Því má reikna með að ástundun líkamsæf-
inga leiki síst minna hlutverk sem orsakavaldur í mun
á dánartíðni eftir skólagöngu en aðrir áhættuþættir,
svo sem blóðþrýstingur, reykingar og blóðfitusam-
setning. I rannsókn Schrijvers og fleiri sem gerð var á
hollenskum almenningi er reynt að greina mismun-
andi vægi ýmissa áhættuþátta í að útskýra skóla-
göngu tengdan mun á dánartíðni. Þar kemur í ljós að
ástundun líkamsæfinga er, ásamt atvinnustöðu (em-
ployment status) og tekjum, einn af þeim þáttum sem
skýra hvað stærstan hlut af þessum mun (8) og styðja
okkar niðurstöður þessa staðhæfingu.
Ástundun líkamsæfinga hefur jákvæð áhrif á ýmsa
áhættuþætti fyrir hjarta- og æða sjúksjúkdóma, svo
sem sykursýki, þyngdarstuðul (BMI), blóðþrýsting
og blóðfitu (22,23,25,26). Þrátt fyrir það hverfa áhrif
líkamsæfinganna ekki við að reikna þessa áhættu-
þætti með. Því má gera ráð fyrir að þær stuðli að
bættri heilsu og betri Iífshorfum eftir fleiri leiðum
sem ef til vill er erfitt að mæla eða festa fingur á.
Ofneysla áfengis hefur sýnt sig standa í neikvæðu
sambandi við lengd skólagöngu (8,19) og hefur í för
með sér aukna dánaráhættu (8). Þar sem ekki var
unnt að leiðrétta fyrir ofneyslu áfengis í þessari rann-
sókn er ekki útilokað að hún haldist í hendur við
skort á líkamsæfingum og skýri hluta af samspili
ástundunar líkamsæfinga og dánaráhættu.
Ljóst er að ekki hefur tekist að skýra til fulls þann
skólagöngutengda mun á lífslíkum sem sýndur hefur
verið í Hóprannsókn Hjartaverndar. Ekki hefur tek-
ist að taka inn í greininguna þann þátt sem hefur haft
hvað mest að segja þessu tilliti í erlendum rannsókn-
um, en það er efnahagslegar aðstæður fólks (8,20). í
Hóprannsókn Hjartaverndar var safnað upplýsing-
um um íbúðarstærð fólks en sú breyta sýndi ekki
Læknablaðið 2002/88 501