Læknablaðið - 15.12.2003, Síða 3
FRÆÐIGREINAR
Læknablaðið
THE ÍCELANDIC MEDICALIOURNAL
923 Ritstjórnargreinar:
Nýtt blóðstorkumyndandi lyf við óstöðvandi blæðingum?
Páll Torfi Önundarson
927 Fjármögnunar- og framleiðslumælikvarðar sjúkrahúsa
Jóhannes M. Gunnarsson
929 Læknadagar - fyrir hverja?
Arnór Víkingsson
933 Geitunga- og býflugnaofnæmi - nýr vágestur á íslandi?
Unnur Steina Björnsdóttir, Erling Ólafsson, Davíð Gíslason,
Sigurveig f*. Sigurðardóttir
Hérlendis eru skordýr sem bæði stinga (geitungar) og bíta (mýflugur).
Sjúkdómseinkenni eftir skordýrabit geta verið allt frá staðbundnum
óþægindum til lífshættulegs ofnæmislosts. Hér eru tínd til helstu skordýr
sem geta valdið þessu. Leggja ber áherslu á að greina dýrin rétt. Sértæk
afnæming fyrir geitungum eða býflugum getur komið í veg fyrir
ofnæmislost í yfir 95% tilfella ef sjúklingur verður fyrir biti eða stungu
á nýjan leik.
12. tbl. 89. árg. Desember 2003
Aðsetur
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfasími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu
www. laeknabladid. is
Ritstjórn
Emil L. Sigurðsson
Hannes Petersen
Jóhannes Björnsson
Karl Andersen
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
943 Vöðvaspennutruflun. Yfírlitsgrein
Hilmir Asgeirsson, Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
Vöðvaspennutruflun á sér ýmsar orsakir og einkennin eru fjölþætt, þau
eru tímabundinn eða viðvarandi vöðvasamdráttur sem veldur ýmist
síendurteknum hreyfingum eða vindingi á líkamshlutum. Sjúkdómsheitið
á bæði við flokk taugasjúkdóma og hreyfitruflanir af ákveðinni gerð. Fáar
faraldsfræðilegar athuganir hafa verið gerðar á fyrirbærinu og margt enn
á huldu um upphaf og meðferð.
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Blaðamennska/umbrot
Þröstur Haraldsson
throstur@lis.is
Upplag
1.600
949 Aðskilinn lungnahluti (pulmonary sequestration) - sjúkratilfelli
Tómas Guðbjartsson, Erik Gyllsted, Per Jönsson
Aðskilinn lungnahluti er sjaldgæfur meðfæddur galli þar sem hluti lungna
er sambandslaus við lungnaberkjur og lungnablóðrás. Sjúklingur getur
verið einkennalaus og greinist stundum fyrir tilviljun, en oftast veldur lausi
hlutinn sýkingum í lungum. Hér er rakin sjúkrasaga 17 ára stúlku og
opinni skurðgerð sem hún fór í þar sem aðskildi lungnahlutinn var
fjarlægður.
955 Ung kona með mæði og hypoxemíu - sjúkratilfelli
Sigríður Björnsdóttir, Olafur Baldursson
Lýst er sjúkratilfelli þar sem 23 ára kona var að lokum greind með lungna-
háþrýsting sem engin skýring fékkst á. Farið er yfir helstu einkenni og
bata- og meðferðarleiðir, en eina raunverulega lækningin felst í lungna-
ígræðslu. Einnig eru nú til lyf, bósentan og síldenafíl, sem lækka meðal-
lungnaslagæðaþrýsting en raunar eru langtímaáhrif enn óljós.
959 Lungnaslagæðaháþrýstingur - sjúkratilfelli
Gunnar Guðmundsson, Gizur Gottskálksson, Þórarinn Gíslason
Kynnt eru tvö sjúkratilfelli af lungnaháþrýstingi sem er sjaldgæfur og
illvígur sjúkdómur. Undanfarin ár hefur þekking aukist á meingerð og
gangi sjúkdómsins, betri flokkun verið gerð og ný lyf komið á markað sem
bæta lífsgæði og lífslíkur sjúklinganna. Nýju lyfin eru öflug, hafa minni
hjáverkanir og er auðveldara að gefa en áður en sá böggull fylgir skamm-
rifi að þau eru feiknalega dýr.
Áskrift
6.840,- m.vsk.
Lausasala
700,- m.vsk.
© Læknablaöið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
Prentsmiðjan Gutenberg hf.,
Síðumúla 16-18,
108 Reykjavík
Pökkun
Póstdreifing ehf.,
Dugguvogi 10,
104 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið 2003/89 919