Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 17
FRÆÐIGREINAR / OFNÆMISLOST Geitunga- og býflugnaofnæmi — nýr vágestur á Islandi? Unnur Steina Björnsdóttir' SÉRFRÆÐINGUR f LYFLÆKNINGUM, OFNÆMIS- OG ÓNÆMISLÆKNINGUM Erling Ólafsson3 SKORDÝRAFRÆÐINGUR Davíð Gíslason1 SÉRFRÆÐINGUR í LYF- OG OFNÆMISLÆKNINGUM Sigurveig Þ. Sigurðardóttir2 SÉRFRÆÐINGUR í BARNA-, OFNÆM3S- OG ÓNÆMIS- LÆKNINGUM 'Göngudeild ofnæmis- og lungnasjúkdóma Landspítala Fossvogi, 2Rannsóknarstofnun Landspítala, ónæmisfræði- deild, Hringbraut, ’Náttúru- fræðistofnun íslands. Fyrirspumir og bréfaskipti: Unnur Steina Björnsdóttir, göngudeild ofnæmis- og lungnasjúkdóma Landspítala Fossvogi, sími 543 6040. usb@landspitali. is Lykilorð: ofnœmi vegna geitunga og býflugna, ofnœmislost, afnœming. Ágrip Lýst er fyrsta staðfesta ofnæminu fyrir æðvængjum hjá íslendingi. Hann var stunginn af geitungi og fékk lífshættulegt ofnæmislost, en skjót og rétt meðferð varð honum til bjargar. Hérlendis eru bæði skordýr sem stinga, til dæmis geitungar og býflugur, og skor- dýr sem bíta (mýflugur). Sjúkdómseinkenni eftir skordýrastungu/bit geta verið allt frá staðbundnum óþægindum til lífshættulegs ofnæmislosts. Sagt er frá helstu skordýrum sem valdið geta þessum einkenn- um. Mikilvægt er að greina skordýrin rétt. Fái sjúk- lingur sértæka afnæmingu fyrir geitungum eða bý- flugum er hægt að koma í veg fyrir ofnæmislost við endurstungu í yfir 95% tilfella. Inngangur Með sumrinu kemur tími aukinnar útivistar. Nýir vágestir í náttúru Islands geta gert útiveruna að háskadvöl! Hlýnandi veðrátta og aukin garðyrkja hafa gert fleiri skordýrum kleift að setjast hér að og fjölga sér. Þar á meðal eru ýmis skordýr af ættbálki æðvængna (hymenoptera), það er geitungar, humlur og býflugur. Ymis skordýr geta lagst á fólk. í megin- atriðum gera þau það í tvennum tilgangi, til að verja sig með eiturgaddi á afturenda (ofangreindar æð- vængjur) eða lil að sjúga blóð með þartilgerðum munnlimum. í báðum tilvikum geta skordýrin valdið ofnæmisviðbrögðum og jafnvel banvænu ofnæmis- losti. Fyrsti Islendingur með ofnæmi fyrir æðvængjum greindist veturinn 2002. Hann var stunginn af skor- dýri sem hann náði ekki að greina og fékk lífshættu- legt ofnæmislost, en skjót og rétt meðferð varð hon- um til bjargar. Húðpróf sýndi að um geitungaofnæmi var að ræða. Hann fær nú afnæmingu (venom im- munotherapy) og eru litlar líkur að hann fái endur- tekin viðbrögð þrátt fyrir stungu. Án meðferðar væri hann í bráðri lífshættu við nýja stungu. Vegna örrar fjölgunar þessara nýju landnema get- um við búist við að fleiri verði stungnir og þar með aukinni tíðni alvarlegra einkenna og jafnvel dauðs- falla. Mikilvægt er að þekkja einkennin. Stungur æðvængna eru ein algengasta orsök dauða vegna ofnæmislosts í heiminum (1, 2). Bráða- ofnæmi vegna geitunga eða býflugna er talið orsaka að minnsta kosti 50 dauðsföll á ári í Bandaríkjunum (3). Alvarleg en ekki banvæn viðbrögð sjást ár hvert hjá um 5-10 af hverjum 100.000 íbúum (3). Að fáum árum liðnum má búast við því að nokkrir íslendingar ENGLISH SUMMARY Björnsdóttir US, Ólafsson E, Gíslason D, Sigurðardóttir SÞ Insect hypersensitivity in lceland Læknablaðið 2003; 89: 933-40 In this article we review allergic reactions to stinging insects (hymenoptera) and biting insects (mosquitoes). We describe the first proven case of sensitization and ana- phylaxis to hymenoptera in an lcelander. Yellow jackets, honeybees, paper wasps and hornets cause most sting reactions. The vespidae species were first seen in lceland in 1973. Since that time, these insects have inhabited the island in ever increasing numbers. Symptoms range from local reactions to systemic anaphylaxis and even death. Accurate diagnosis is impor- tant as treatment with venom immunotherapy can prevent repeated reactions by at least 95%. Local reactions in children and adults and even widespread urticaria in children should not be treated with immunotherapy. Practical measures to avoid these insects and the charac- teristics of each species are discussed. Physicians and other health care workers must recognize the symptoms of insect sting allergy and know when to refer to an allergist for skin testing and possible immunotherapy. Key words: allergy, anaphytaxis to hymenoptera. Correspondence: Unnur Steina Björnsdóttir, usb@landspitali.is Ofnæmi fyrir geitungum • Stungur sem leiöa til kláöa, roða og sársauka á stungustaö eru óþægilegar en hættulausar • Stungur sem leiöa af sér einkenni fjarri stungu- stað, til dæmis dreifö útbrot, bjúg, andþyngsli, eöa yfirlið, geta veriö hættulegar. í þessum tilvik- um á aö gera sértækt húöpróf (á A3 á Landspítala Fossvogi) • Sé húðpróf jákvætt VERÐUR sjúklingurinn aö fá rétta meöferö sem er afnæming. Meöferöin tekur þrjú til fjögur ár, fyrst gefin vikulega, síöan á fjögurra vikna fresti. Hún veitir 95% vörn og getur því komiö f veg fyrir aö viökomandi fái lífshættuleg einkenni viö endurstungu. fái alvarleg einkenni eftir skordýrastungur ár hvert. í nýlegri grein í Náttúrufræðingnum var sagt frá ýmsu sem lýtur að stungum geitunga (4). Læknablaðið 2003/89 933
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.