Læknablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
stöðumanna með því að láta málsmeðferðarreglur
stjórnsýslulaga ekki ná til ákvarðana um starfslok
opinberra starfsmanna. Þetta er sýnu alvarlegra þeg-
ar haft er í huga að með setningu stjórnsýslulaga var
verið að gera lágmarkskröfur til stjórnsýslunnar, eins
og segir í skýringarriti Páls Hreinssonar prófessors
um stjómsýslulögin. Þar segir ennfremur að mark-
mið laganna sé að tryggja réttaröryggi borgaranna
gagnvart stjórnvöldum.
Það liggur því fyrir að með skerðingarfrumvarp-
inu eiga opinberir starfsmenn ekki einu sinni að
njóta lágmarkskrafna né heldur þarf að tryggja þeim
réttaröryggi í samskiptum við stjórnvöld þegar kem-
ur að uppsögn þeirra.
Skynsamleg vi&brögð
Eins og fyrr segir er því sjónarmiði haldið á loft að
verið sé að jafna aðstæður launþega á almennum
markaði og á opinberum markaði. Þetta er að sínu
leyti göfugt markmið og sanngjarnt og er höfuðrök-
semd leiðarahöfundar Morgunblaðsins sem segir
laugardaginn 15. nóvember: „Viðbrögð forsvars-
manna samtaka opinberra starfsmanna eru fyrirsjá-
anleg, en engu að síður óskynsamleg." Ég vil hins
vegar ítreka það að markaðsaðstæður í hvorum geira
samfélagsins um sig eru ólíkar. Annars vegar er mark-
aður þar sem samkeppnislögmál eru ríkjandi og hins
vegar markaður þar sem samkeppnislögmál eru víkj-
andi en þjónustuviðhorf eru allsráðandi án samkeppn-
issjónarmiða. I mörgum tilfellum eru tiltölulega fá
störf í boði fyrir mjög sérhæfða menntun og stundum
aðeins hjá einum vinnuveitanda undir hatti ríkisins.
Um leið eru starfsmennirnir ef til vill ofarlega í valda-
pýramídanum og beinlínis um almannahagsmuni að
ræða að þeir komi skoðunum sínum á framfæri, þyki
þeim einhverju áfátt á starfsvettvangi sínum. Eða
viljum við koma málum þannig að ungt sérhæft fólk
hugsi sig tvisvar um áður en það ákveður að taka sig
upp með fyrirhöfn og kostnaði til að flytja heim með
þeirri áhættu og múlbindingu sem því fylgir ef frum-
varp þetta verður að lögum?
Þegar saman fer skerðing á réttarvernd opinberra
starfsmanna, aukið vald forstöðumanna, sameining
stofnana og miðstýring er full ástæða fyrir opinbera
starfsmenn og almenning í landinu að óttast um tján-
ingarfrelsi og sjálfstæði háskólamanna.
í ljósi þess sem sagt hefur verið tel ég að viðbrögð
forystumanna opinberra starfsmanna hafi verið fyrir-
sjáanleg og skynsamleg.
Býr það ef til vill í framtíðinni að opinberir starfs-
menn hafi ekki það skjól fyrir ofríki sem þeir hafa
haft og að sjálfsögð mannréttindi þeirra verði í vitum
okkar sem ilmur liðinna daga?
Árshátíð
LR
verður haldin að Breiðvangi, Hótel íslandi
laugardaginn 24. janúar
Hljómsveit: Hljómar
Reyklaus
árshátíð
Nánar
auglýst síðar
Læknablaðið 2003/89 965