Læknablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KENNSLUBÓK í GEÐLÆKNISFRÆÐI
Ný kennslubók í geðlæknisfræði
Tómas Helgason
Ulnk Fiedrlk Mdlt. Nilt Retterttol oq Alv A. Oahl
Lærebok i
psykiatri
%
Forsíða bókarinnar
Lœrebok i psykiatri.
í ÁGÚST síðastliðnum var haldið hér í Reykjavík 27.
norræna geðlæknaþingið. Þátttaka var mikil og þing-
ið þótti takast mjög vel. Einn var þó ljóður á, allt
þinghaldið fór fram á ensku, raunar eins og næstsíð-
asta þing sem haldið var í Kaupmannahöfn árið 2000.
Vegna skyldleika, sameiginlegs menningararfs og
svipaðrar menntunar er norræn samvinna mikilvæg
fyrir Norðurlöndin öll og nauðsynlegt að við getum
rætt saman á norrænum tungum, sem eru flestum
tamari og auðveldari en enska. Sú enska sem menn
reyna að tala á svona fundum verður oftast það sem
kallað hefur verið „the bad language of science“, sem
notendur skilja varla sjálfir, hvað þá aðrir.
Tveimur vikum eftir að þinginu lauk barst mér í
hendur ný útgáfa af norskri kennslubók um geðlækn-
isfræði eftir Malt, Retterstöl og Dahl (1). Þessi bók
hefði eiginlega átt að vera skyldulesning fyrir alla
þátttakendur svo þess að færa umræðuna yfir á nor-
rænt mál og til að þeir væru með yfirlit um hvað væri
ferskast í fræðunum. Því miður gat það ekki orðið þar
eð bókin kom ekki út fyrr en rétt um svipað leyti og
þingið var haldið. Hún gefur mér hins vegar kærkom-
ið tækifæri til minna íslenska læknanema og lækna,
sérstaklega geðlækna og heimilislækna, á nauðsyn
þess að læra og lesa skanínavísk mál og nota þau í
samskiptum við kollega frá hinum Norðurlöndunum.
Bókin gerir nýjustu stefnum og straumum í geð-
læknisfræði nokkurn veginn jafnhátt undir höfði og
minnir þannig rækilega á nauðsyn þess að menn
kunni nokkuð fyrir sér í margs konar meðferðar-
tækni. Bókin skiptist í þrjá meginhluta, 1) sögu ásamt
fræðilegum bakgrunni, 2) klínískan hluta um ein-
staka sjúkdóma og raskanir og 3) almennan meðferð-
arhluta og umfjöllun um ýmis sérsvið geðlæknisfræð-
innar. í fyrsta hluta bókarinnar er almennur inngang-
ur og stuttur kafli um sögu sérgreinarinnar. Síðan er
fjallað ítarlega um þann grunn sem greinin stendur á
í vefrænu, geðrænu og félagslegu tilliti, sem læknar
verða að kunna nokkur skil á til þess að gera lesend-
um bókina og fræðin aðgengilegri. Fjallað er um gagn-
reynda geðlæknisfræði, viðtal, geðskoðanir, rann-
sóknaaðferðir og sérstaklega um taugalíffræðilegar
rannsóknir.
í hinum meira klíníska hluta bókarinnar er fjallað
um geðsjúkdóma bæði með hliðsjón af klassískum
evrópskum viðmiðum og í tengslum við nýtísku
greiningarkerfi, ICD 10 og DSM IV. Minnt er á að
klassísk skipting í nevrósur og psýkósur er enn gagn-
leg þrátt fyrir að greiningarkerfin noti ekki þessi hug-
tök beint. Astæða er til að benda heimilislæknum sér-
staklega á kaflana um lyndis- og kvíðaraskanir, en í
þeim eru greiningarskilmerkjum og meðferð gerð
mjög góð skil bæði í texta og með skemum. Sem
dæmi má nefna skema um forsendur þess að verjandi
sé að beita samtalsmeðferð eingöngu við þunglyndis-
raskanir. Sérstakir kaflar eru um aðlögunar- og
áfallaraskanir, átraskanir, sál-vefræn einkenni og
raskanir, og geðraskanir í tengslum við aðra sjúk-
dóma. Síðarnefndu tveir kaflarnir eru mjög gagnlegir
fyrir alla lækna sem vilja hafa heildrænt viðhorf til
greiningar og meðferðar sjúklinga sinna. Kaflarnir
fjalla um áhrif tilfinninga og geðshræringa á líkamleg
einkenni og hvernig líkamlegir sjúkdómar og raskan-
ir geta valdið geðrænum einkennum. Þeir eru þörf
áminning til allra sérfræðinga um að þeir eru fyrst og
fremst læknar sem þurfa að skoða einstaklinginn sem
heild og sem hluta af fjölskyldu eða starfshópi án þess
að einblína á einhverjar efnafræðilegar eða mólekúl-
bíólógískar rannsóknaniðurstöður. Afengis- og eitur-
lyfjamisnotkun eru gerð ítarleg skil og lögð áhersla á
að sjúklingar með slíkar raskanir hafa oftar en ekki
aðra geðsjúkdóma jafnframt. I þessum hluta bókar-
innar er að sjálfsögðu ítarlegur kafli um sjálfsvíg og
sjálfsvígstilraunir og forvarnir gegn þeim.
í þriðja hluta bókarinnar eru kaflar um mikilvæg
sérsvið, svo sem um geðraskanir þroskaheftra og
öldrunargeðlækningar.
Síðustu 150 síðurnar eru að mestu um meðferðar-
form sem notuð eru í geðlækningum sem að nokkru
er búið ijalla um áður í tengslum við einstaka sjúk-
dóma. Þarna er og stuttur kafli um réttargeðlækning-
ar, en í honum er rætt um ýmis siðfræðileg vandamál
sem nauðsynlegt er að allir læknar kunni skil á. Bók-
inni lýkur á kafla um bráðameðferð geðraskana utan
sjúkrahúsa og meðferð þar til sjúklingurinn kemst á
sjúkrahús, ef á þarf að halda.
I heild er bókin vel uppsett, mjög læsileg með til-
vitnunum í grunnheimildir og ábendingum um ítar-
efni, m.a. á netinu. Helsti galli bókarinnar er að hún
er yfir 900 blaðsíður, en erfitt er að gera stórri sér-
grein læknisfræðinnar skil í mikið styttra máli.
1. Malt UF. Retterstöl N, Dahl AA. Lærebok i psykiatri. Oslo:
Gyldendal akademisk; 2003. - ISBN 82-05-28070-3. - 942
blaðsíður. - Verð: 745 nkr.
I í
972 Læknablaðið 2003/89