Læknablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREINAR / OFNÆMISLOST
sú sama og fullorðinna. Aðeins um 10% barna (undir
16 ára aldri) sem fengu útbreiddan ofsakláða við
stungu fengu ofnæmislost við næstu stungu (22).
Börn eiga því ekki að fá afnæmismeðferð. Annað
gildir um fullorðna þar sem yfirleitt er gefin afnæm-
ing þó að einkenni einskorðist við húðina (23).
4. Einkenni vegna eitrunar (toxic reactions)
Verði einstaklingur fyrir mörgum stungum í einu get-
ur það valdið eituráhrifum. Eitrið (venom) getur leitt
til blóðþrýstingsfalls og jafnvel dauða (24). Oft er erf-
itt að greina milli ofnæmislosts og eituráhrifa. Því
þarf að rannsaka þessa einstaklinga nánar með of-
næmisprófum.
5. Sermaveiki (serttm sickness)
Einkenni um sermaveiki eru ofsakláði, bjúgur, lið-
verkir, eitlastækkanir, hiti og almennur slappleiki.
Þau koma í ljós um viku eftir stunguna. Þessir ein-
staklingar eru í meiri hæltu en aðrir að fá ofnæmislost
við næstu stungu og ættu því að fá afnæmingu (25).
6. Ofnœmislost (mynd 7)
Alvarlegasta afleiðing stungu er ofnæmislost. Of-
næmislost er lífshættulegt og því þarf að meðhöndla
það án tafar (26, 27). Ofnæmislost er IgE-miðlað
ónæmissvar og verður þegar IgE á yfirborði mast-
frumna eða basafrumna þekkja ofnæmisvaldinn
(venom). Ræsing á frumum á sér stað með losun á
boðefnum (meðal annars histamíni, tryptasa, leuko-
triene-C4 og prostaglandíni-D2). Þetta leiðir til ofsa-
kláða og ofsabjúgs, æðavíkkunar og blóðþrýstings-
falls með örum hjartslætti. Bólguboðefnin valda
berkjusamdrætti og einkennum frá meltingarvegi
eins og ógleði, uppköstum, kviðverkjum og niðurgangi
(28). Einkenni frá öndunarfærum og hjarta- og æða-
kerfi geta leitt til dauða (26). Einkennin koma oftast
innan 15 mínútna frá stungunni.
Stunga hvar sem er á líkamanum getur leitt til of-
næmislosts. Hættulegastar eru þó stungur á höfði eða
hálsi (29). Tíðni ofnæmislosts eftir stungur er 0,4-3%
(3). Ofnæmislost er algengara undir tvítugu og um
helmingi algengara hjá karlmönnum en konum. Það
er sennilega vegna þess að karlmenn eru meira út-
settir. Um 17% þeirra sem fá lost hafa sögu um mikil
staðbundin viðbrögð við fyrri stungum og 30% hafa
sögu um annað bráðaofnæmi (30).
Hafi einstaklingur fengið ofnæmislost við stungu
eru um 60% líkur á að það endurtaki sig við endur-
stungu. Einnig það er algengara hjá fullorðnum en
börnum. Því alvarlegri sem einkennin voru þeim
mun líklegra er að þau endurtaki sig (31).
Meöferö
Sjúklingar með sögu um alvarleg einkenni við skor-
dýrastungum eiga að
1) forðast snertingu við þessi skordýr eins og hægt Mynd 7. Ofnœmislost eftir
er. stungu. Flugan sest á hand-
2) bera á sér adrenalín til inndælingar, til dæmis legg fórnarlambsins.
Epi-pen®, andhistamín og barkstera.
3) fara í meðferð með sértækri afnæmingu (ven-
om specific immunotherapy)
Forðast skordýrin sem um ræðir
Þetta er hægara sagt en gert. Geitungar ráðast sjaldn-
ast til atlögu nema þeir séu ónáðaðir í búinu. Frá því
eru þó undantekningar. Eyða skal búum sem finnast
nálægt heimilum. Mesta hættan stafar af geitungabú-
um síðsumars á lokastigi í þroskaferli búsins þegar
nýjar drottningar og karldýr verða til og þernurnar
finna aukna þörf til að verja búið. Stundum lenda
klippur garðeiganda við hauststörf í miðju búi. Einn-
ig er tími rifsberjatínslu varhugaverður þar sem bú
geta leynst í rifsberjarunnum. Oft er mestur þéttleiki
berjanna nálægt búunum því þar hefur fuglum verið
haldið í skefjum. Þegar hausta tekur eiga þernurnar
meiri tíma aflögu til að huga að eigin fæðuöflun og
sækja þá gjarnan í ýmsan mat; sætindi og sérstaklega
gosdrykki. Matarbiti úti í garði getur boðið hættunni
heim. Gosdósir eru sérstaklega varhugaverðar. Geit-
ungar fara gjarnan ofan í dósirnar og lenda síðan
uppi í munni neytandans við næsta sopa. Innan dyra
reynist vel að sprauta hárlakki á geitunga eða reyna
að bana þeim í einu höggi. Bent skal á að hafa þétt
net yfir vögnum barna sem sofa úti. Lélegt net yfir
barnavagni getur reynst verra en ekkert.
Þeim sem er hætta búin af völdum stungna skal
bent á að dökk eða skærlituð föt laða að skordýr og
því er skynsamlegt að vera í hvítum/ljósum fatnaði
(21). Ilmefni draga að sér skordýr og því er rétt að
sneiða hjá notkun snyrtivara. Ilmur og daunn af mat
draga einnig að skordýr. Fólk ætti ekki að ganga
berfætt úti við og það á að klæðast síðum buxum og
hafa hanska við störf í garðinum. Fólk með skordýra-
ofnæmi á að verja andlitið með neti við þær aðstæður
sem bjóða hættunni heim.
Læknablaðið 2003/89 937