Læknablaðið - 15.12.2003, Side 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝR LEIÐTOGI HEIMILISLÆKNA
Fagleg mál heimilislækna í brennidepli
Rætt við Elínborgu Bárðardóttur nýkjörinn formann Félags íslenskra heimilislækna
Um miðjan október var haldinn aðalfundur í Félagi
íslenskra heimilislækna. Þar urðu þau tíðindi að Þórir
B. Kolbeinsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir
fjögur ár á stóli formanns. í hans stað var kjörin Elín-
borg Bárðardóttir. Læknablaðið hitti að máli nýkjör-
inn formann stærsta sérgreinafélags íslenskra lækna
þar sem hún starfar í einni af nýjustu heilsugæslu-
______________ stöðvum höfuðborgarsvæðisins við
Efstaleili.
Elínborg var í framhaldsnámi í
Bandaríkjunum og kom heim árið
1997. Fyrstu þrjú árin starfaði hún á
ísafirði en frá 2000 hefur hún starf-
að í Efstaleitinu. Hún er ekki alveg
ný í félagsstörfunum því hún hefur
verið ritari stjórnar LR undanfarin
ár. Fyrsta spurningin var hvernig
stemmningin hefði verið á aðalfund-
inum.
„Það má segja að þetta hafi verið
skemmtilegasti aðalfundur félagsins
í mörg ár vegna þess að það var
nánast ekkert talað um kjaramál!
Við samþykktum ályktun lil að
fylgja eftir viljayfirlýsingu ráðherra
frá því í fyrra en eftir það hófust
líflegar umræður um fagið og fram-
tíðina. Þar er af ýmsu að taka og það
sem bar einna hæst var aukin áhersla sem lögð hefur
veriö á framhaldsnám heimilislækna hér á landi. Það
er að komast í mjög gott horf og það er ekki síst
kennslustjóra framhaldsnámsins, Ölmu Eir Svavars-
dóttur. að þakka. Hún hefur drifið í því að bæta
skipulag kennslunnar, námsstöðunum hefur fjölgað
upp í níu og áhugi læknanema og unglækna á þessu
námi aukist.“
Elínborg Bárðardóttir
formaður FÍH í anddyri
heilsugœslustöðvarinnar
í Efstaleiti.
Elínborg rœðir við forvera
sinn, Póri B. Kolbeinsson,
á bryggjunni á Hofsósi en
jiar voru þau í tengslum við
aðalfund LÍ í lok ágúst.
Þröstur
Haraldsson
966 Læknablaðið 2003/89
Framhaldsnám og gæðamál
Daginn eftir að viðtalið var tekið var Elínborg að fara
á fund uppi í Borgarfirði þar sem allir þeir sem koma
nærri kennslu og áhuga hafa á kennslumálum í heim-
ilislæknisfræði ætluðu að hittast en þeir eru dreifðir
um landið. Kennslan fer nefnilega ekki einungis fram
á höfuðborgarsvæðinu heldur í heilsugæslunni víða
um land. Elínborg sagði að þetta væri fyrsti fundur-
inn af þessari tegund en þeir eru algengir erlendis og
nefnast „faculty development“ á ensku. Þar var ætl-
unin að ræða ýmsar hliðar námsins, svo sem skipulag
námsins í læknadeild, framhaldsnámið og nám í
dreifbýli. Hlutverk leiðbeinandans í starfsþjálfun
lækna, hvernig best væri að meta nemendur, balint-
fundi sem eru eins konar sjálfshjálparfundir og í
hverju fagmennska væri fólgin.
- Það er greinilegt að heilsugæslan verður í vax-
andi mæli vettvangur kennslu.
„Já, það varð veruleg breyting fyrir nokkrum ár-
um þegar sett var í reglugerð að læknar á kandídats-
ári skyldu verja að minnsta kosti þremur mánuðum í
heilsugæslunni. Þetta setur okkur í meira kennara-
hlutverk og veitir okkur tækifæri til að kynnast unga
fólkinu sem er að koma inn í stéttina og því að kynn-
ast okkur. Ég held að óhætt sé að slá því föstu að
þetta hafi aukið áhuga unga fólksins á heimilislækn-
ingum.
Annað sem töluvert hefur verið á dagskrá félags-
ins eru gæðamál. Félagið hefur raunar unnið mikið
að þeim í gegnum tíðina. í því sambandi hefur verið
rætt að hafa sérstakan gæðadag á vegum félagsins,
jafnvel í samvinnu við Heilsugæsluna í Reykjavík
sem hefur haft gæðamál á stefnuskrá sinni án þess að
mikið hafi gerst. Við viljum gjarnan ýta á eftir því að
gæðamálum verði gert hærra undir höfði.
Reyndar hafa ýmis gæðaverkefni verið í gangi,
bæði hér hjá okkur, í Kópavogi, og víðar. Það sem
vantar er að við tölum meira saman um gæðamál,
skiptumst á þekkingu og reynslu, segjum hvert öðru
hvað við erum að gera og hvað virkar. Sem betur fer
hefur orðið breyting á vinnuskipulagi okkar þannig
að við höfum meiri tíma til að sinna gæðaþróun.“
Breyttar áherslur
„Fræðslumál heimilislækna hafa að nokkru leyti ver-
ið í skugga kjaramálanna síðustu árin. Við þurfum að
sinna betur innri líðan heimilislækna og í því sam-
bandi hefur verið ákveðið að fræðslunefnd standi
fyrir málstofum um efni eins og ímynd heimilislækn-
isins, öryggi hans, samskipti og verkaskiptingu milli
j