Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2003, Side 55

Læknablaðið - 15.12.2003, Side 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ORLOFSMÁL Ll reisir orlofshús að Húsafelli Snemma í nóvember var tekin fyrsta skóflustunga að nýju orlofshúsi sem Læknafélag Islands hyggst reisa í landi Húsafells, nánar tiltekið að Kiðárskógum 5. Formaður og framkvæmdastjóri LÍ brugðu sér upp í Borgarfjörð og skrifuðu undir verksamning í umboði orlofsnefndar áður en sá fyrrnefndi mundaði skófluna. Samningurinn er gerður við Eirík Jón Ingólfsson verktaka og hljóðar upp á smíði 70,8 m2 húss. Það verður einlyft timburhús á steyptum sökkli með þremur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúskróki, rúmgóðri stofu og geymslu. Umhverfis allt húsið verður pallur sem samtals er 155 m2 að flatarmáli og að sjálfsögðu er heitur pottur greyptur ofan í hann. Hægt er að ganga út á pall úr baðherbergi beint í pottinn. Húsið verður hið vandaðasta að allri gerð, botn- plata steypt og gifsplötur í öllum veggjum sem vita að svefnherbergjum til hljóðeinangrunar. Flísar verða á forstofugólfi sem og veggjum og gólfi á baðherbergi og verða þessi gólf ásamt hluta af stofugólfi upphituð. Sérstaklega verður hugað að aðgengi fatlaðra og var húsið lengt um 30 sentimetra frá upphaflegri teikn- ingu til þess að unnt væri að hafa allar hurðir 80 sm breiðar. Gert verður ráð fyrir þráðlausri tölvuteng- ingu í húsinu þannig að það getur orðið „fræðasetur“ lækna vetur sem sumar. Húsið á að kosta 15 milljónir króna fullbúið en án húsgagna. Smíði þess á að ljúka um miðjan maí þann- ig að unnt verði að taka það í gagnið eigi síðar en 1. júní næsta sumar. Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ tekur fyrstu skóflustunguna að nýju orlofshúsi félags- ins í landi Húsafells. Grunnmynd bústaðarins en í honum verða þrjú svefn- herbergi, eidhús, bað og stofa með borðkrók. Skyggða svceðið umhverfis húsið er sólpailur og að sjálfsögðu verður þar hinn ómissandi heiti pottur. Læknablaðið 2003/89 971

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.