Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 20
FRÆÐIGREINAR / ORÐSKILNINGUR Rétt svör % 100 | Grunnskólapróf Bak- Lungna- Sterar Ein Auka- Berkju- Hvít Sökk Sykur- Lungna- flæði þemba tafla verk- bólga blóð- sýki teþþa tvisvar anir korn Mynd 5. Áhrif menntunar. * táknar marktœkan mun. Rétt svör % Bak- Lungna- Sterar Ein Auka- Berkju- Hvít Sökk Sykur- Lungna- flæöi þemba tafla verk- bólga blóö- sýki teþþa tvisvar anir korn Mynd 6. Áhrif tekna. * táknar marktœkan mun. Rétt svör % 100-1 Læknir segir... Bak- Lungna- Sterar Ein Auka- Berkju- Hvlt Sökk Sykur- Sýkla- Lungna- flæöi þemba tafla verk- bólga blóö- sýki lyf teppa tvisvar anir korn Mynd 7. Áhrif orðalags. svara í fjórum spurningum en munur var marktækur í aðeins einni. Háskólamenntað fólk var með hæst hlutfall réttra svara í öllum spurningunum tíu. Lakast hlutfall réttra svara var í tekjuhópnum undir 250 þúsund á mánuði í sex spurningum en marktækur munur kom aðeins fram í einni (mynd 6). Ein spurning til viðbótar reyndist með marktækan mun er laut að tekjum, þar kom fram lægst hlutfall réttra svara í tekjuhópnum 250-399 þúsund. Þá var tekjuhæsti hópurinn með flest rétt svör í níu af spurn- ingunum líu. Stutt skólaganga og lágar fjölskyldutekjur tengd- ust greinilega lakari þekkingu á þeim hugtökum sem spurt var um í könnuninni. Fólk með grunnskólapróf og grunnskólapróf með nokkru viðbótarnámi var til dæmis með lægst hlutfall réttra svara í öllum spurn- ingum. Lágar fjölskyldutekjur höfðu ekki eins af- dráttarlaus tengsl við lakari þekkingu en tekjulægsti hópurinn rak þó lestina í sex spurningum af tíu. Nið- urstöðurnar benda til þess að langskólagengnir og tekjuháir leiti ef til vill frekar skýringa á því sem þeir ekki skilja. Hugsanlega hafa þessir hópar einnig betri aðgang að fróðleik. Waitzkin (3) sýndi að læknar höfðu tilhneigingu til að vanmeta hversu miklar upp- lýsingar fólk í lægri þjóðfélagsstigum vildi fá. I ljós kom að enginn munur var eftir stöðu og efnahag á því hversu miklum upplýsingum sjúklingar sóttust eftir. Lágstéttafólk hafði hins vegar tilhneigingu til að spyrja færri spurninga sem læknar túlkuðu sem svo að upplýsinga væri ekki óskað. Læknar vörðu einnig meiri tíma til að útskýra fyrir langskólagengnu fólki (3). Hérlendis hefur Hjartavernd kannað tengsl milli menntunar og heilbrigðis. í ljós kom að langlífi tengdist langri skólagöngu (10) og mætti því álykta sem svo að tengsl væru milli menntunar og heilbrigð- is. Niðurstöður okkar gætu bent til þess að skilningur á læknisfræðilegum orðum og hugtökum skýri þessi tengsl að hluta. Orðalag Tíu spumingar vom lagðar fyrir með tvenns konar orðalagi og réð tilviljun hvora tegund spurningar þátt- takandi fékk. Annars vegar var spurt með orðalaginu Lœknirsegir... enhinsvegarvarspurtbeintHvaðer... I flestum spurningum breytti orðalag litlu um svör (mynd 7). I sjö spurningum var minni en fimm pró- sentustiga munur milli þess hversu margir svöruðu rétt. Athygli vekur að spurningunni hvað eru sterar svöruðu 63,5% rétt ef spurt var með orðalagi læknis en aðeins 39,7% ef spurt var beint (23,8 prósentu- stiga munur). Spurningunni hvað er berkjubólga svöruðu 80,9% rétt ef spurt var með orðalagi læknis en 68,1% ef spurt var beint (12,8 prósentustiga mun- ur). Spurningunni hvað eru hvít blóðkorn svöruðu 62,9% rétt ef spurt var með orðalagi læknis en 56,1 % ef spurt var beint (6,8% munur). Fjölbreytugreining réttra svara Meðalfjöldi réttra svara var þrjú svör af fimm mögu- legum (staðalfrávik 1,3). Menntun skýrði tölfræði- lega mest af þekkingu fólks, þannig að þeir sem hafa gengið í grunnskóla eða skemur höfðu 2,7 rétt svör að meðaltali, en háskólagengnir 3,6 rétt svör. Meðal háskólagenginna var marktækur munur á þekkingu karla og kvenna, karlar höfðu 3,4 rétt svör að meðal- 116 Læknablaðið 2004/90 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.