Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2004, Side 47

Læknablaðið - 15.02.2004, Side 47
FRÆÐIGREINAR / STARFSREGLUR LEITARSTÖÐVAR 6. Eftirlit vegna condylomata Vegna tengsla condylomata og forstigsbreytinga þykir rétt að benda á eftirfarandi atriði. Tekið skal frumustrok frá leghálsi við greiningu. Ef það er án forstigsbreytinga skal konu ráðlagt að mæta reglulega í eftirlit með frumu- stroki á tveggja ára fresti. Athuga ber að þessar konur eru ekki í sérstakri endurinnköllun á Leitarstöð nema að jafnframt hafi greinst hjá þeim forstigsbreyting. Þeim lœknum er hafa konur í meðferð vegna condylomata ber að upplýsa þœr um tengsl HPV-veiru og forstigsbreytinga og eftirlitshlutverk Leitarstöðvar. 7. HPV-prófun við leghálsspeglanir, eftir keilu- skurð og condylomata (mynd 2) 7.1. HPV-prófun við leghálsspeglun. Samhliða leghálsspeglun vegna forstigsbreytinga í frumustrokum (sjá lið 2) er tekið strok til HPV-grein- ingar. Konur með sterkar vefjabreytingar fara í keiluskurð án HPV-greiningar. HPV-próf er eingöngu framkvæmt hjá konum er hafa eðlileg vefjasyni eða vægar vefjabreyt- ingar: 7.1.1. HPV-neikvœðar konur: Eftirlit: Tvö strok með árs milli- bili, síðan á tveggja ára fresti. - £/eitt endurtekið strok er með dysplasiu 2 eða hærri breytingu eða tvisvar væg breyting: Leghálsspeglun tvö (sjá 7.2.). 7.1.2. HPV-jákvœðar konur: Eftirlit: Tvö strok með sex mán- aða millibili og síðan eftir eitt ár. - Ef öll strok eðlileg er HPV-greining endurtekin að tveimur árum liðnum. - £/endurtekið finnst sterk forstigsbreyting: Endanleg meðferð. - £/ endurtekið strok er með dysplasiu 2 eða tvisvar væg breyting: Leghálsspeglun tvö (sjá 7.2.). 7.2. HPV-prófun við aðra leghálsspeglun. Samhliða leghálsspeglun tvö er tekið strok til HPV- greiningar. Konur með sterkar veljabreytingar fara í keiluskurð án HPV-greiningar. HPV-próf er eingöngu framkvæmt hjá konum er hafa eðlileg vefjasýni eða vægar vefjabreytingar: 7.2.1. HPV-neikvœðar konur: Eftirlit: Tvö strok með árs milli- bili síðan á tveggja ára fresti: - £/ eitt endurtekið strok með dysplasiu 2 eða hærri breytingu eða tvisvar væg breyting: Leghálsspeglun þrjú eða endanleg meðferð ef 36 mánuðir eru liðnir frá index-stroki (fyrsta afbrigðilega strok). 7.2.2. HPV-jákvœðar kotiur: Eldri konur: Endanleg meðferð ef HPV-próf eru jákvæð með 18-24 mánaða millibili. Yngri konur: Eftirlit: Þrjú strok með sex mánaða milli- bili og síðan tvö með árs millibili. - £/ endurtekið afbrigðilegt frumustrok: Endanleg meðferð 36 mánuðum frá index-stroki. 7.3. HPV-prófun eftir keiluskurð. Eftir keiluskurð er tekið frumustrok og strok til HPV- greiningar sex mánuðum eftir non-radikal aðgerð en 12 mánuðum eftir radikal aðgerð. HPV-greining er fram- kvœmd óháð niðurstöðu frumustroks. Konur með breyt- ingu í efri skurðbrún keilu (non-radikal endocervical) fara jafnframt í leghálsspeglun. 7.3.1. £/ HPV-greining er neikvœð og frumustrok eðlilegt eða með vægum breytingum er mælt með tveimur frumu- strokum á ársfresti og síðan á tveggja ára fresti. 7.3.2. Ef HPV-greining er neikvœð og frumustrok með meðal- sterkum eða miklum breytingum skal konu vísað til leghálsspeglunar og frekara eftirlit í samræmi við lið 7.2. 7.3.3. £/ HPV-greining er jákvœð: - Eldri konur: Endurtekin endanleg meðferð. - Yngri konur: Eftirlit með þremur strokum með sex mánaða millibili, síðan tvisvar með árs millibili. 7.3.4. £/ endurtekið afbrigðilegt strok: Endurtekin legháls- speglun og HPV-greining (sjá 7.2.). 7.4. HPV-prófun eftir condylomata smit. Ekki er mælt með HPV-prófun meðal þessara kvenna nema saga sé jafnframt um forstigsbreytingar og er þá mælt með HPV-greiningu samhliða speglun (sjá lið 7.1.). 8. HPV-prófun í hefðbundinni leit Við 35-40 ára aldur er tekið frumustrok og strok til HPV-greiningar óháð fyrri sögu konunnar. - £/bæði próf eru neikvæð og konan er ekki á eftirlits- skrá Leitarstöðvar skal hún framvegis boðuð á fjög- urra ára fresti til leitar upp að 69 ára aldri. - £/HPV-prófun er jákvæð skal það endurtekið að ári liðnu og konu vísað til leghálsspeglunar ef bæði próf eru jákvæð. Frekara eftirlit í samræmi við lið 7.1. (HPV-jákvæðar konur). Læknablaðið 2004/90 143

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.