Læknablaðið - 15.02.2004, Síða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KJARAMÁL / VELFERÐ LÆKNA
50-70% ódýrari læknisverk
- Þurfið þið ekki að taka þessi mál fastari tökum?
„Jú, það er ljóst að ef við ætlum okkar að fylgja
málstað okkar eftir gagnvart stjómvöldum og al-
menningi verðum við að geta rökstutt hann. Við
höfðum ekki yngri tölur en frá 1998 og síðan hafa
orðið umtalsverðar breytingar á starfseminni. Nú
höfum við hrint af stað vinnu við að afla samanburð-
argagna frá Norðurlöndunum, Bretlandi og öðrum
Evrópulöndum. Við höfum í minna mæli sótt til
Bandaríkjanna enda er kerfið þar ekki það sem við
viljum miða okkur við. Ég vil geta þess að fyrstu tölur
sem við höfum fengið eru okkur mjög í hag og sýna
að við erum að vinna verkin fyrir 30-50% af því verði
sem algengast er í nágrannalöndum okkar. Það verð-
ur fróðlegt að sjá heildarniðurstöðuna þegar öll gögn
eru komin.
Þessi gagnasöfnun þarf að vera sjálfstæð og í okk-
ar höndum svo við séum ekki upp á viðsemjandann
komin með upplýsingar. Og þessi vinna þarf að vera
stöðugt í gangi. Við höfum rætt lengi um nauðsyn
þess að efla hagrænan þátt kjaramálanna og í því
sambandi hefur komið upp hugmynd um að stofna
Hagdeild lækna en af því hefur ekki orðið. Það má þó
segja að með þessum nýgerðu samningum séum við
að stíga fyrsta skrefið í þá átt. Þar á ég við að í
samningnum er ákvæði um að 0,4% af öllum tekjum
sem verða af samningnum skuli renna til vinnu við
samningsgerð framtíðarinnar, ekki síst til að efla
hagræna þáttinn á okkar forsendum. Þetta gerir okk-
ur kleift að kaupa okkur ráðgjöf sem er mikilvægt því
við verðum að vera virkari þátttakendur í umræðu
um þróun heilbrigðismála. Sú umræða er lykill að
framtíðinni," segir Óskar Einarsson formaður LR.
Umgjörð og heilsa í starfi lækna
Velferð lækna í lífi og starfi er mikilvæg forsenda
farsællar heilbrigðisþjónustu. Starfsaðstaða lækna,
líðan þeirra í starfi og áhrif þess á samskipti lækna og
sjúklinga eru í brennidepli verkefnis þess sem hér er
kynnt.
Stofnað hefur verið til verkefnisins Umgjörð og
heilsa í starfi lœkna í samstarfi Læknafélags íslands,
Félags kvenna í læknastétt á íslandi, Landspítala Há-
skólasjúkrahúss, Landlæknisembættisins og Rann-
sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla
íslands.
Markmið verkefnisins eru:
• Að rannsaka vinnutengda heilsu lækna, starfs-
umhverfi og stofnanamenningu fjögurra há-
skólasjúkrahúsa í fjórum löndum.
• Að vinna faraldsfræðilega rannsókn á heilsu og
lífsstíl íslenskra lækna.
Samstarfsverkefnið hefur fengið heitið Organisa-
tion and Health aniong university Hospital Physic-
ians in Four European Countries: Sweden, Norway,
Iceland and Italy. How do national framework, gen-
der, hospital structure and organisational culture im-
pact on physicians’ health? og eru erlendu samstarfs-
aðilarnir Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi, St.
Olav's Hospital í Þrándheimi og Azienda Ospedali-
era Universita í Padova, Ítalíu.
Öllum læknum á íslandi verður boðið að taka þátt
í rannsókninni. Notaðir verða prófaðir spurningalist-
ar á ensku og svörun spurninga verður rafrænt um
internet. Sameiginlegur gagnabanki verður staðsett-
ur við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og ekkert
unnið með gögn undir persónuauðkennum. Rann-
sóknartímabilið spannar fimm ár og verða spurninga-
listar lagðir fyrir tvisvar á tímabilinu. Spurningar um
lífsstíl og heilsu verða lagðar fyrir í fyrri umferð
spurninga. Við hönnun verkefnisins og val á spurn-
ingalistum hafa niðurstöður fyrri rannsókna verið
hafðar til hliðsjónar og reynsla hér á þessu sviði nýtt.
Stofnað var til rannsóknarhóps sem í sitja læknarnir
Kristinn Tómasson, Þorvaldur Ingvarsson, Guð-
mundur Sigurðsson, Jóhanna Jónasdóttir, Vilhelmína
Haraldsdóttir, Óskar Einarsson, Haukur Hjaltason,
Katrín Fjeldsted, Linn O. Getz, Ólöf Sigurðardóttir
og Matthías Halldórsson auk Guðbjargar Lindu
Rafnsdóttur félagsfræðings. Þorgerður Einarsdóttir
félags- og kynjafræðingur er fulltrúi íslenska hlutans í
vísindanefnd erlenda samstarfsverkefnisins og mun
leiðbeina nemum í mastersverkefnum hér á landi.
Lilja Sigrún Jónsdóttir læknir er verkefnisstjóri og er
skrifstofa verkefnisins hjá Landlæknisembættinu.
Farsæl framkvæmd verkefnisins er mjög háð
stuðningi lækna. Við hönnun er horft til þess að afla
mikilvægra upplýsinga fyrir stéttina. þegar að fram-
kvæmd kemur skiptir hins vegar góð þátttaka megin-
máli og er því vonast eftir góðum undirtektum. Verk-
efnið verður kynnt nánar í Læknablaðinu í mars.
Spurningalistar verða lagðir fyrir í lok mars næstkom-
andi og stefnt að því að kynna helstu innlendar niður-
stöður í upphafi árs 2005.
Lilja Sigrún
Jónsdóttir
Höfundur er læknir og
verkefnisstjóri hjá
Landlæknisembættinu.
Læknablaðið 2003/89 151