Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2004, Síða 55

Læknablaðið - 15.02.2004, Síða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KJARAMÁL / VELFERÐ LÆKNA 50-70% ódýrari læknisverk - Þurfið þið ekki að taka þessi mál fastari tökum? „Jú, það er ljóst að ef við ætlum okkar að fylgja málstað okkar eftir gagnvart stjómvöldum og al- menningi verðum við að geta rökstutt hann. Við höfðum ekki yngri tölur en frá 1998 og síðan hafa orðið umtalsverðar breytingar á starfseminni. Nú höfum við hrint af stað vinnu við að afla samanburð- argagna frá Norðurlöndunum, Bretlandi og öðrum Evrópulöndum. Við höfum í minna mæli sótt til Bandaríkjanna enda er kerfið þar ekki það sem við viljum miða okkur við. Ég vil geta þess að fyrstu tölur sem við höfum fengið eru okkur mjög í hag og sýna að við erum að vinna verkin fyrir 30-50% af því verði sem algengast er í nágrannalöndum okkar. Það verð- ur fróðlegt að sjá heildarniðurstöðuna þegar öll gögn eru komin. Þessi gagnasöfnun þarf að vera sjálfstæð og í okk- ar höndum svo við séum ekki upp á viðsemjandann komin með upplýsingar. Og þessi vinna þarf að vera stöðugt í gangi. Við höfum rætt lengi um nauðsyn þess að efla hagrænan þátt kjaramálanna og í því sambandi hefur komið upp hugmynd um að stofna Hagdeild lækna en af því hefur ekki orðið. Það má þó segja að með þessum nýgerðu samningum séum við að stíga fyrsta skrefið í þá átt. Þar á ég við að í samningnum er ákvæði um að 0,4% af öllum tekjum sem verða af samningnum skuli renna til vinnu við samningsgerð framtíðarinnar, ekki síst til að efla hagræna þáttinn á okkar forsendum. Þetta gerir okk- ur kleift að kaupa okkur ráðgjöf sem er mikilvægt því við verðum að vera virkari þátttakendur í umræðu um þróun heilbrigðismála. Sú umræða er lykill að framtíðinni," segir Óskar Einarsson formaður LR. Umgjörð og heilsa í starfi lækna Velferð lækna í lífi og starfi er mikilvæg forsenda farsællar heilbrigðisþjónustu. Starfsaðstaða lækna, líðan þeirra í starfi og áhrif þess á samskipti lækna og sjúklinga eru í brennidepli verkefnis þess sem hér er kynnt. Stofnað hefur verið til verkefnisins Umgjörð og heilsa í starfi lœkna í samstarfi Læknafélags íslands, Félags kvenna í læknastétt á íslandi, Landspítala Há- skólasjúkrahúss, Landlæknisembættisins og Rann- sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla íslands. Markmið verkefnisins eru: • Að rannsaka vinnutengda heilsu lækna, starfs- umhverfi og stofnanamenningu fjögurra há- skólasjúkrahúsa í fjórum löndum. • Að vinna faraldsfræðilega rannsókn á heilsu og lífsstíl íslenskra lækna. Samstarfsverkefnið hefur fengið heitið Organisa- tion and Health aniong university Hospital Physic- ians in Four European Countries: Sweden, Norway, Iceland and Italy. How do national framework, gen- der, hospital structure and organisational culture im- pact on physicians’ health? og eru erlendu samstarfs- aðilarnir Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi, St. Olav's Hospital í Þrándheimi og Azienda Ospedali- era Universita í Padova, Ítalíu. Öllum læknum á íslandi verður boðið að taka þátt í rannsókninni. Notaðir verða prófaðir spurningalist- ar á ensku og svörun spurninga verður rafrænt um internet. Sameiginlegur gagnabanki verður staðsett- ur við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og ekkert unnið með gögn undir persónuauðkennum. Rann- sóknartímabilið spannar fimm ár og verða spurninga- listar lagðir fyrir tvisvar á tímabilinu. Spurningar um lífsstíl og heilsu verða lagðar fyrir í fyrri umferð spurninga. Við hönnun verkefnisins og val á spurn- ingalistum hafa niðurstöður fyrri rannsókna verið hafðar til hliðsjónar og reynsla hér á þessu sviði nýtt. Stofnað var til rannsóknarhóps sem í sitja læknarnir Kristinn Tómasson, Þorvaldur Ingvarsson, Guð- mundur Sigurðsson, Jóhanna Jónasdóttir, Vilhelmína Haraldsdóttir, Óskar Einarsson, Haukur Hjaltason, Katrín Fjeldsted, Linn O. Getz, Ólöf Sigurðardóttir og Matthías Halldórsson auk Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur félagsfræðings. Þorgerður Einarsdóttir félags- og kynjafræðingur er fulltrúi íslenska hlutans í vísindanefnd erlenda samstarfsverkefnisins og mun leiðbeina nemum í mastersverkefnum hér á landi. Lilja Sigrún Jónsdóttir læknir er verkefnisstjóri og er skrifstofa verkefnisins hjá Landlæknisembættinu. Farsæl framkvæmd verkefnisins er mjög háð stuðningi lækna. Við hönnun er horft til þess að afla mikilvægra upplýsinga fyrir stéttina. þegar að fram- kvæmd kemur skiptir hins vegar góð þátttaka megin- máli og er því vonast eftir góðum undirtektum. Verk- efnið verður kynnt nánar í Læknablaðinu í mars. Spurningalistar verða lagðir fyrir í lok mars næstkom- andi og stefnt að því að kynna helstu innlendar niður- stöður í upphafi árs 2005. Lilja Sigrún Jónsdóttir Höfundur er læknir og verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu. Læknablaðið 2003/89 151
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.