Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2004, Síða 68

Læknablaðið - 15.02.2004, Síða 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SÁTTMÁLI UM FAGMENNSKU ir grunnþættir sem rnynda undirstöðu þessa sátlmála í formi þriggja grundvallarreglna og nokkurra afdrátt- arlausra atriða sem varða faglega ábyrgð. Grundvallarreglur Regla um að velferð sjúklinga hafi forgang Þessi regla byggir á skuldbindingu til að þjóna hags- munurn sjúklinga. Umhyggja fyrir hag annarra stuðl- ar að trausti sem er þungamiðjan í sambandi læknis og sjúklings. Markaðsöfl, samfélagsþrýstingur og knýjandi stjórnunarleg vandamál mega ekki draga úr gildi þessarar reglu. Regla um sjálfsforrœði sjúklinga Læknar verða að bera virðingu fyrir sjálfsforræði sjúklinga. Læknar verða að vera heiðarlegir við sjúk- linga og gera þeim kleift að taka upplýstar ákvarðan- ir um læknisfræðilega meðferð sína. Akvarðanir sjúklinga um læknisfræðilega meðferð verður að virða svo fremi að slíkar ákvarðanir séu í samræmi við siðferðilega starfshætti og leiði ekki til kröfu um óviðeigandi þjónustu. Regla um samfélagslegt réttlœti Læknastéttin verður að stuðla að réttlæti innan heil- brigðiskerfisins, þar á meðal sanngjarnri dreifingu þeirra úrræða sem völ er á í heilbrigðisþjónustunni. Læknar ættu að vinna að því að útrýma mismunun í heilbrigðisþjónustu, hvort sem hún er vegna kynþátt- ar, kynferðis, félagslegrar stöðu, þjóðernis, trúar- bragða eða annarra félagslegra þátta. Faglegir ábyrgöarþættir Skuldbinding gagnvart faglegri hœfni Læknar verða að skuldbinda sig til ævilangrar þekk- ingaröflunar og til að bera ábyrgð á að viðhalda þeirri læknisfræðilegu þekkingu, klínísku færni og hæfni til að starfa með öðrum, sem er nauðsynleg til þess að geta veitt sem besta þjónustu. í víðari skilningi þarf læknastéttin sem heild að keppa að því að allir lækn- ar séu hæfir og hún verður að tryggja að þeir eigi völ á viðeigandi leiðum til að ná þessu takmarki. Skuldbinding til heiðarleika gagnvart sjúklingum Læknar verða að tryggja að sjúklingar séu upplýstir að fullu og á heiðarlegan hátt áður en þeir samþykkja læknisfræðilega meðferð og eftir að hún hefur verið veitt. Þessi kvöð þýðir þó ekki að sjúklingar eigi að taka þátt í öllum minniháttar ákvörðunum unt læknisþjón- ustu; öllu heldur verður að gera þeim kleift að ákvarða meðferðarleið. Læknar ættu einnig að viðurkenna að í heilbrigðisþjónustu verða stundum mistök sem skaða sjúklinga. Ávallt er sjúklingur verður fyrir skaða af völdurn læknisþjónuslu ætti að upplýsa hann tafarlaust því ef það bregst rýrir það alvarlega traust sjúklinga og samfélagsins til lækna. Tilkynning og rannsókn á lækn- isfræðilegum mistökum mynda grundvöll viðeigandi forvarna og aðgerða til úrbóta og eru forsenda þess að sá sem fyrir mistökum verður fái bætur. Skuldbinding til að standa vörð um trúnað við sjúk- linga Að vinna traust og trúnað sjúklinga krefst þess að gál sé höfð þegar gefnar eru upplýsingar um mál er þá varða. Þetta á einnig við um viðtöl við fulltrúa þeirra sjúklinga sem geta ekki sjálfir veitt samþykki fýrir meðferð. Að halda trúnað við sjúklinga er mikilvæg- ara nú en nokkru sinni fyrr vegna útbreiddrar notkun- ar á rafrænum upplýsingakerfum þar sem safnað er saman upplýsingum um sjúklinga og vegna aukins aðgengis að erfðafræðilegum upplýsingum. Læknar gera sér þó grein fyrir að stundum verður trúnaður að víkja fyrir mikilvægum málum sem varða almannaheill (til dæmis þegar öðrum stafar hætta af sjúklingum). Skuldbinding til að viðhalda eðlilegu sambandi við sjúklinga Þar sem sjúklingar eru í eðli sínu berskjaldaðir og háð- ir lækni sínum verður að forðast tiltekin samskipti læknis og sjúklings. Sérstaklega ættu læknar aldrei að stofna til kynferðislegs sambands við sjúklinga sína eða notfæra sér tengsl sín við sjúklinga til fjárhagslegs ávinnings eða á annan hátt í þágu eigin hagsmuna. Skuldbinding til að bœta gœði þjónustunnar Læknar verða stöðugt að helga sig umbótum á gæð- urn heilbrigðisþjónustunnar. Þessi helgun snýst ekki aðeins um að viðhalda klínískri fæmi, heldur einnig um samvinnu við aðra fagaðila í því skyni að fækka læknisfræðilegum mistökum, auka öryggi sjúklinga, minnka misnotkun heilbrigðiskerfisins eins og unnt er og bæta árangur heilbrigðisþjónustunnar. Læknar verða að taka virkan þátt í að þróa betri mælikvarða á gæði þjónustunnar og þróa gæðastaðla sem nota má til að meta reglulega frammistöðu allra einstaklinga, stofnana og verkferla innan heilbrigðisþjónustunnar. Það er hlutverk lækna, bæði sem einstaklinga og fag- hóps, að skapa og hrinda í framkvæmd nýjum aðferð- um til að auka stöðugt gæði þjónustunnar. Skuldbinding til að bœta aðgengi að þjónustu Fagmennska í læknisfræði krefst þess að markmið allra heilbrigðiskerfa sé að tryggja samræmda og viðunandi þjónustu. Læknar verða, sem einstaklingar og hópur, að leggja sig fram um að draga úr hindrunum að jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Læknar ættu hvar- vetna að vinna að því að afnema aðgengishindranir sem tengjast menntun, lögum, fjárhag, búsetu og fé- lagslegri mismunun. Að stefna að jöfnuði felur í sér að auka veg lýðheilsu og fyrirbyggjandi læknisfræði, sem og opinbera ráðgjöf frá sérhverjum lækni án tillits til eiginhagsmuna læknisins eða stéttar hans. 164 Læknablaðið 2004/90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.