Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2004, Síða 71

Læknablaðið - 15.02.2004, Síða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ARFUR JÓNS STEFFENSEN ■ Kristinn heimur miðalda og Hrafn Sveínbjarnarson Norðurlandabúar höfðu átt langvinn og mikil samskipti við hinn kristna heim áður en þeir sneru endanlega baki við Óðni og Þór, Nirði og Frey. Þeir vissu að Frankar, Englendingar, Irar og íbúar í Býzans trúðu á Hvíta-Krist og það hafði heldur ekki farið fram hjá norrænum kaupmönnum að viðskiptamenn þeirra á Íberíuskaga og við Kaspíahaf aðhylltust eingyðistrú. Einn heimur - hinn kristni heimur í eftirmála að Öldinni þrettándu segir Óskar Guð- mundsson: A hámiðöldum voru þjóðir Norður- og Vestur-Evr- ópu svo nátengdar menningarlega að í vitundinni lifði eitt samfélag - hinn kristni heimur. Ein kirkja batt þessar þjóðir saman í einn sið. Líklega viður- kenndu kirkjunnar menn varla nokkur landamæri - og þeir töluðu meira að segja einni tungu, latínu. Svipað má segja um tungumálið sem notað var á því víðfeðma svæði um haf innan, löndum og eyjum við Atlantshaf, sem byggð voru norrænum mönnum. Þannig fóru saman sameiginlegar menntir og hug- sjónir. Við það bætist svo að þessi heimur var að hefja nýja byltingu í verslunar- og viðskiptaháttum. Samskipti þjóða á milli leiddu til nýrra bandalaga og verslunarmiðstöðva. Bandalög Hansaborga og fleiri slík leiddu til víðtækrar löggjafar og samninga þjóða á milli. Islendingar voru við hið stóra haf þar sem flestir töluðu sömu tungu, og játuðu sama sið, kristni. Samskipti á sviði menningar, verslunar og trúmála voru fjölbreytileg. íslendingar urðu fyrir margvís- legum menningaráhrifum - og það eru líkindi til að þeir hafi einnig haft töluverð áhrif í hinum norræna heimi. Nýr siður í Danaveldi ... Þegar Karla-Magnús færði endimörk ríkis síns til norðurs, komust Danir í nána snertingu við löndin í suðri. Þeim tókst að stöðva framrás Frankanna og árið 811 var gert samkomulag um það, að áin Eider (Ege- dorae fiuminis) skyldi marka landamæri Danaveldis til suðurs og hélzt sú skipan til 1864. Loðvík I. keisari hinn frómi, sonur Karla-Magnúsar, reyndi að kristna Dani og sendi í því skyni Ansgar munk til Heiðarbæj- ar árið 826. Ekki hafði hann erindi sem erfiði, en árið 831 stofnaði Loðvík erkibiskupsstól í Hamborg og skipaði Ansgar í embætti. Skyldi hann ráða fyrir kristnum á Norðurlöndum. I Heiðarbæ (nú Slésvík, Schleswig) innst í firðinum Slé (Schlei) reis mikilvæg miðstöð á verzlunarleið Frankanna til múslímsku ríkjanna í austri, um Eystra- saltið og rússnesku fljótin. Danir tóku virkan þátt í viðskiptunum í samvinnu við Frísa, sem bjuggu suð- vestan við þá, við Elbu og Rínarfljót. Frísar voru krist- in siglingaþjóð sem komst undir þýzk yfirráð árið 925. Þjóðverjar sóttu einnig á Dani og þeir urðu einnig að verjast Vindum, slavneskum þjóðflokki við vestanvert Eystrasalt (Vender á dönsku, Wenden á miðháþýzku). Þegar Haraldur blátönn konungur Dana, sonur Gorms hins gamla, tók skírn um miðja tíundu öldina og ákvað að þegnar hans skyldu kristnir verða, fól hann nýskipuðum biskupum á Jótlandi að stjórna trú- boðinu, en þeir heyrðu undir erkibiskupinn í Ham- borg. Hefir verið látið að því liggja að Haraldur Gormsson hafi gerzt kristinn til þess að geta bægt frá afskiptum þýzkra. Togstreitan við Eystrasaltið náði hámarki þegar Valdimar konungur I. var kominn til valda í Dan- mörku og í Suður-Svíþjóð og fóstbróðir hans og ráð- gjafi, Absalon biskup í Hróarskeldu, var orðinn erki- biskup í Lundi 1177. Með blessun erkibiskups hóf konungur krossferð gegn Vindum og öðrum baltnesk- um heiðingjum, enda ógnuðu þeir Eystrasaltsverzl- uninni. Absalon biskup hlaut menntun sína í París og er talinn fyrsti Daninn sem þar stundaði nám. ... og í Noregi í Noregi kostaði kristnitakan verulegar blóðsútheli- ingar. Þar fóru fremstir Olafur Tryggvason og Ólafur Haraldsson hinn digri, síðar nefndur hinn helgi. Báðir voru þeir afkomendur Haraldar hárfagra. Báðir höfðu á ferðum sínum snúizt til kristinnar trúar, báðir reyndu að snúa Norðmönnum til betri siðar og réðu til þess trúboða frá Englandi. Ólafur Tryggvason var skírður af Aelfeah erkibisk- upi af Kantaraborg árið 994. Ólafur var þá í herför á Englandi með Sveini konungi Dana, sem auknefndur var tjúguskegg. Ólafur tók við völdum í Noregi 995. Um hann segir í Noregskonungatali „er Sæmundur frodi orti“: 22. Misti litt su er laugum styrdi recka kind raad hins bezsta. þa er nordr i Noregi kristinn mann til konungs toku. 23. OkOlafr arfui Tryggua tok liddriugr lond ok þegna. hinn er fimm a faam vetrum lofda vinar lond kristnadi. Fyrir utan Noreg er hér átt við Orkneyjar, Færeyj- ar, Island og Grænland: Örn Bjarnason Pessi grein er fyrst í flokki fjögurra pistla sem byggðir eru á rannsóknum í safni Jóns Steffensen Höfundur var ritstjóri Lækna- blaðsins 1976-1993. Hann er að mestu hættur lækningum og vinnur nú að undirbúningi að útgáfu á norrænum lækninga- handritum frá miðöldum og skýringum á þeim. Læknablaðið 2004/90 167
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.