Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2004, Side 89

Læknablaðið - 15.02.2004, Side 89
Læknastofur til leigu í Vesturbænum Læknastofur eru til leigu í Læknastöð Vesturbæjar á Melhaga 20-22, en stöðin hefur verið starfrækt í 12 ár. Þar eru samtals 6 stofur og eru 3-4 þeirra nú lausar til leigu, annaðhvort að hluta eða að öllu leyti. Góð leigu- kjör eru í boði. Nánari upplýsingar í síma 562 8090 hjá Árna Tómasi Ragnarssyni eða Gunnlaugi Sigfússyni. fea Deildarlæknir á myndgrein- ingardeild Laus er til umsóknar staða deildarlæknis á mynd- greiningardeild. Staðan er veitt til 6 mánaða með möguleika á framlengingu. Staðan getur nýst til sér- fræðináms í myndgreiningu. Starfinu fylgir bak- vaktaskylda. Læknirinn fær í starfi sínu leiðsögn og kennslu hjá fjórum sérfræðingum deildarinnar og auk þess kost á að sækja fræðslufundi og námskeið á starfstímanum. Nánari upplýsingar veitir Halldór Benediktsson, for- stöðulæknir myndgreiningardeildar í síma 463 0100, halldorb@fsa.is Umsóknarfrestur er til 1. mars 2004. Staðan veitist frá 1. apríl 2004 eða eftir samkomu- lagi. Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta og samvinnu. Umsóknum skal skila á þartilgerðum eyðublöðum, sem fást hjá landlæknisembættinu, ásamt fylgiskjöl- um. Umsóknir skulu vera í tvíriti og berast til Þor- valdar Ingvarssonar, framkvæmdastjóra lækninga, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri, og veitir hann einnig nánari upplýsing- ar í síma 463 0109 eða í thi@fsa.is Öllum umsóknum um starfið verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri REYKJALUNDUR Yfirlæknir Auglýst er laus til umsóknar staða yfirlæknis á gigt- arsviði Reykjalundar. Viðkomandi þarf annaðhvort að vera sérfræðingur í endurhæfingarlækningum eða gigtlækningum. Reykjalundur, endurhæfingamiðstöð SÍBS, ereinka- stofnun rekin á þjónustusamningi við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Starfsemin fer fram á níu meðferðarsviðum. Meðferó er veitt á legudeild, dag- deild og göngudeild. 150 sjúklingar eru til meðferð- ar á hverjum tíma. 13 læknar starfa á Reykjalundi. Þverfagleg vinna fagfólks í endurhæfingu er undir- staða starfseminnar. Lögð er rík áhersla á góð mannleg samskipti. Staðan er laus frá 1. september næstkomandi. Upplýsingar veitir Hjördís Jónsdóttir lækningafor- stjóri í síma 5666200 eða hjordisj@reykjalundur.is Umsóknarfrestur er til 31. mars 2004. Lheilsugæslan SALAHVERFI Heilsugæslulæknar Tvær nýjar stöður heilsugæslulækna við Heilsu- gæsluna Salahverfi í Kópavogi eru lausar til um- sóknar. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í aðra stöðuna í apríl-maí næstkomandi en í hina næsta haust. Stöðurnar eru ætlaðar sérfræðingum í heimilislækn- ingum en einnig koma til greina læknar sem komnir eru langt í sérnámi í heimilislækningum. Hlutastörf koma til greina. Heilsugæslan Salahverfi er ný heilsugæslustöð sem einkum er ætlað að þjóna Linda-, Sala- og Vatns- endahverfi í Kópavogi. Um er að ræða spennandi möguleika fyrir heilsugæslulækna til að móta starf- semi heilsugæslunnar. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk. Umsóknir ósk- ast sendar á eyðublöðum sem fást hjá Landlækn- isembættinu, www.landlaeknir.is, Hauki Valdimars- syni, yfirlækni, Heilsugæslunni Salahverfi, Salavegi 2, 201 Kópavogi, sem einnig gefur nánari upplýsingar í síma Heilsugæslunnar, 590-3900. Salus ehf. Læknablaðið 2004/90 185

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.