Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2004, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.03.2004, Blaðsíða 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILSUHAGFRÆÐI Haustskýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla íslands Rekstrarvandi heilbrigðisþjónustunnar krufinn til mergjar Hagfræðistofnun Háskóla íslands gefur á hverju ári út rit sem nefnt er Haustskýrsla. Nú í febrúar kom fjórða haustskýrslan út og að þessu sinni fjallar hún um heilbrigðismál í ljósi hagfræðinnar. Heiti skýrsl- unnar er Fjármögnun og rekstur heilbrigðisþjónustu en höfundar hennar eru Axel Hall og Sólveig Fríða Jóhannsdóttir. Eins og heitið bendir til kemur skýrslan út á hár- réttum tíma því nú stendur yfir mikil umræða um kostnað samfélagsins við heilbrigðisþjónustuna. Skýrslan er reyndar gerð að tilhlutan forsætisráðu- neytisins sem styrkti gerð hennar. I henni er að finna fróðlegt yfirlit yfir þróun íslenska heilbrigðiskerfisins á undanförnum áratugum og einnig litið til útlanda eftir samanburði og nýjum leiðum sem hugsanlega mætti fara hér á landi. í lokakafla skýrslunnar er fjallað um mögulegar umbætur á rekstrarumhverfi heilbrigðisþjónustunn- ar og um reynslu annarra þjóða. Til dæmis er fróðleg úttekt á markaðsvæðingu breska heilbrigðiskerfisins sem skýrsluhöfundar segja að hafi ekki tekist sem skyldi. Vissulega hafi náðst fram vissar umbætur, svo sem aukið gegnsæi kostnaðar, bætt kostnaðarvitund, bætt staða heimilislækna og fækkun legudaga. A hinn bóginn hafi stjórnunarkostnaður hækkað veru- lega og samkeppnisstaða einstakra deilda og hópa í kerfi þar sem kaupendur og seljendur állu að semja um verð hafi verið afar misjöfn. Niðurstaða breyting- anna varð sú að vissulega tókst að halda kostnaði niðri en það varð á kostnað gæðanna sem Bretar kvarta sárlega undan. í Svíþjóð var gerð tilraun með heilbrigðislíkan í Stokkhólmi sem byggðist á aðskilnaði kaupenda og seljenda. Tilraunin hófst árið 1993 en þegar hún hafði staðið skamma hríð skall á efnahagskreppa í Svíþjóð og eftir það varð meginmarkmiðið að halda útgjöldum niðri en minna hugsað um gæði. Nú hefur glaðnað til og gæði þjónustunnar eru aftur komin á dagskrá. Hins vegar er niðurstaða tilraunarinnar óljós því það gleymdist að setja henni markmið í upphafi. Á Nýja-Sjálandi var komið á innri markaði með aðskilnaði kaupenda og seljenda líkt og í Bretlandi en sú tilraun steytti á sama skeri, sem sé því að staða seljenda var svo miklu sterkari en kaupenda að markaðirnir urðu aldrei virkir. Eftir sex ár var hætt við tilraunina og horfið til sama fyrirkomulags og verið hafði við lýði fyrir 1993. í Ijósi þessara tilrauna er því auðvelt að taka undir þau orð skýrsluhöfunda að einkavæðing í heilbrigðis- geiranum sé „miklum vandkvæðum bundin og getur reyndar valdið óskilvirkni fremur en dregið úr henni“. I skýrslunni er fjallað ítarlega um DRG-kostnað- argreininguna sem verið er að innleiða á Landspítala og henni hrósað nokkuð en einnig bent á að þótt hún auki skilvirkni og gegnsæi kostnaðar hafi hún þann galla að hún hamli ekki endilega gegn aukningu heil- brigðisútgjalda. Pannig sé reynsla Norðmanna og Svía af henni sú að útgjöldin snarhækkuðu. Sennilega sé því best að reyna að skraddarasauma einhveija lausn sem byggist á blöndu DRG og fastra fjárlaga. Athyglisverð er einnig tillaga skýrsluhöfunda um að sett verði á stofn sjálfstæð stofnun til að halda saman upplýsingum um heilbrigðisþjónustuna. Um núverandi ástand segir svo: Sumar fjárveitingar fara í gegnum ráðuneyti, aðrar greiðslur í gegnum Tryggingastofnun, endurskoðun heilbrigðisstofnana fellur undir Ríkisendurskoðun, fjárhagsupplýsingar er að finna hjá Hagstofu Islands og í ríkisreikningi og landlæknisembættið heldur sam- an læknisfræðilegum gögnum og vinnur að klínískum leiðbeiningum. Vandi þessa rekstrar felst oft í því að fáir aðilar hafa nægjanlega yfirsýn yfir gang og rekstur heilbrigðiskerfisins. Áhrif niðurskurðar á einum stað koma oft fram í útgjaldaaukningu annars staðar ... Lesendur blaðsins eru eindregnir hvattir til að kynna sér þessa fróðlegu skýrslu sem hægt er að panta hjá Háskólaútgáfunni. Haraldsson Þrjár megintillögur Lagt er til að komið verði á skýrri aðgreiningu kaupenda og seljenda heilbrigð- isþjónustu. Kaupendahlutverkið á að vera á einni hendi og skal því fylgja fullt umboð til samningsgerðar og útboða þar sem slíkt er mögulegt. Taka ætti upp kostnaðar-/virknigreiningar á öllum nýjum lyfjum, meðferðar- úrræðum og skimunarkostum svo auka megi möguleika á forgangsröðun í heil- brigðiskerfinu. Safna þarf upplýsingum um íslenska heilbrigðiskerfið. Til að ná þessu mark- miði er lagt til að sett verði á fót rannsóknarstofnun sem er óháð öðrum stofn- unum heilbrigðiskerfisins. Þannig er hægt að auka gagnsæi, skilvirkni, fram- leiðni og hvata þeirra sem nota sér heilbrigðisþjónustu og þeirra sem veita hana, auk þess sem hægt er að bera saman kostnað og árangur kerfisins. Læknablaðið 2004/90 247
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.