Læknablaðið - 15.03.2004, Blaðsíða 22
FRÆÐIGREINAR / ÖLDRUNARÞJÓNUSTA
Tafla I. Lýðfræðilegar og starfstengdar breytur hjá starfshópum kvenna í öldrunarþjónustunni (n= 1215). Staðalfrávik
í svigum.
Hjúkrunarfræöingar Sjúkraliöar Ófaglæröar Ræstitæknar Aörar
Lýöfræöilegar breytur
Meöalaldur** 46,7 (10,0) 45,6 (10,5) 43,0 (14,8) 46,3 (13,7) 46,6 (13,1)
Meðalhæð* 167,4 (6,1) 166,2 (5,8) 165,9 (6,0) 164,4 (7,2) 165,3 (6,6)
Meðallíkamsþyngd 72,4 (12,9) 71,3 (11,8) 70,0 (12,7) 71,1 (15,8) 71,0 (14,2)
Hlutfallstölur (%)
Skólamenntun Framhaldsmenntun í háskóla 14 1 1 0 2
Hjúskaparstaöa Gift 75,6 79,8 67,3 71,1 72,9
Einhleyp 8,1 9,2 19,5 15,5 14,3
Fráskilin 13,2 9,9 8,9 5,2 7,5
Ekkja 3,0 1,1 4,2 8,2 5,3
Vinnuumhverfi Þurrt loft** 29,5 19,6 22,5 25,0 37,0
Þungt loft** 24,0 16,0 22,0 19,7 35,1
Ólykt** 28,5 17,5 18,3 21,1 37,6
Þrengsli** 42,1 33,0 39,5 48,2 56,4
Lífshættir
Stunda ekki reglubundna Itkamsrækt*** 13,8 13,0 25,0 31,6 23,7
Reykja*** 23,2 31,1 42,6 31,5 28,5
Nevta áfengis** 79,9 74,4 76,4 59,3 71,0
*p<0,01 **p<0,001, ***p<0,0001.
ljós að vinnan var talin bæði andlega og líkamlega
erfið en samt sjálfstæð og gefandi (9). í þeirri rann-
sókn voru sjúkraliðar óánægðari í vinnunni en ófag-
lærðar konur í umönnun (9). Rannsókn á nýgengi
krabbameina hjá heilbrigðisstarfsmönnum í Finn-
landi sýndi á hinn bóginn að hjúkrunarfræðingar
voru í helmingi meiri hættu að fá brjóstakrabbamein
en sjúkraliðar en hvítblæði og krabbamein í eitlum og
lifur voru sjaldgæfari meðal sjúkraliða en hjúkrunar-
fræðinga (10). Tengsl þjóðfélagslegrar stöðu og heilsu-
fars eru því talsvert flókin.
Hjúkrunarstörf eru almennt talin andlega erfið.
Alþjóðavinnumálastofnunin hefur séð ástæðu til að
gefa út leiðbeiningar um það hvernig unnt sé að
draga úr streitu meðal hjúkrunarfræðinga (11). Vinnu-
tengd streita þeirra tengist hjúkrun dauðvona sjúk-
linga, samskiptum við annað starfsfólk, vanmætti að
taka á tilfinningalegum viðbrögðunt sjúklinga og fjöl-
skyldna þeirra, vinnuálags og fleira. Ætla má að álag
af þessu tagi sé ekki minna hjá sjúkraliðum og ófag-
lærðu fólki í umönnunarstörfum.
Heilbrigðisþjónustan er flókið félagslegt kerfi sem
er byggt upp eins og pýramídi þar sem starfsfólkið
stendur ólíkt að vígi að því er varðar völd, mannvirð-
ingar, laun og möguleika til að þroskast (12). Eftir því
sem neðar dregur í pýramídanum lækka launin, virð-
ingin og sjálfræðið. í öldrunarþjónustu í Svíþjóð
reyndi hver starfshópur að afmarka sitt svæði og var
annt um að sanna gildi sitt (12). Karasek og Theorell
eru meðal þeirra sem hafa haldið því fram að álag í
vinnu, sem stafar af togstreitu milli þess að gerðar séu
miklar andlegar kröfur og að viðkomandi hafi lítið
sjálfræði í vinnunni, leiði til andlegrar og líkamlegrar
vanlíðanar (13). Samkvæmt þessu má búast við því
að ólíkir starfshópar búi við mismunandi heilsu.
í ljósi þessarar vitneskju var ákveðið að rannsaka
mögulegt ójafnræði í vinnuálagi og líðan kvenna í
öldrunarþjónustu og hvort einhverjir starfshópar
gætu sérstaklega þurft á heilsuvernd að halda.
Efniviður og aðferðir
Við notuðum efnivið frá könnun á heilsufari, líðan og
vinnuumhverfi starfsfólks í öldrunarþjónustu (14).
Könnunin fór fram frá morgni 1. nóvember til morg-
uns 2. nóvember 2000. Allir starfsmenn á öldrunar-
deildum og öldrunarstofnunum á landinu, þar sem
starfsmenn voru 10 eða fleiri, fengu spurningalista sem
þeir voru beðnir að svara. Dreift var 1886 spurninga-
listum með 84 spurningum. Vinnustaðirnir reyndust
62. Far sern rnargir útlendingar starfa í öldrunarþjón-
ustu var spurningalistinn bæði á íslensku og ensku.
Spurt var um lýðfræðileg atriði, líkamlegt álag og
líkamsbeitingu, óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfi,
andlegt og félagslegt álag, lífshætti og heilsufar.
Spurningarnar um líkamlegt álag og líkamsbeitingu
byggðust á norrænum spurningalista (15) en spurn-
ingarnar um andlegt og félagslegt álag voru sóttar í
norræna spurningalistann um sálfélagslegt álag í
vinnu (16). Aðrar spurningar voru fengnar úr ýmsunt
spurningalistum en listinn í heild var í megindráttum
sá sami og lagður hafði verið fyrir hjá starfsmönnum
leikskóla í Reykjavík (17). Sérstökum starfmönnum
á hverjum vinnustað var falið að dreifa spurningalist-
218 Læknablaðið 2004/90