Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2004, Blaðsíða 65

Læknablaðið - 15.03.2004, Blaðsíða 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 164 Exposure (framhald) Orðabók Araar og Örlygs birtir nokkur íslensk nafnorð sem eiga að samsvara exposure: 1. skjólleysi, varnarleysi; 2. afhjúpun; 3. horf; 4. lýsing Ijósmyndar; 5. lýsingartími (filmu); lýsingarmagn; 6. einstök mynd eða myndflötur (á filmu); 7. útburður (barns); 8. (íjarð- frœði) opna. Iðorðasafn lækna gefur þrjú orð: 1. af- hjúpun, opnun. 2. berskjöldun. 3. geislaskammtur. Læknisfræðiorðabók Dorlands tekur á málinu á svipaðan hátt: 1. sú athöfn að opna, s.s. við skurð- aðgerð; 2. sú staða að verða fyrir einhverju (sýklum, veðri, geislun) sem getur haft skaðleg áhrif. 3. (í geislafrœði) mœlikvarði geislunar; 4. (í geislafrœði) margfeldi geislastyrks og tímalengdar. Leitað var í nokkrum erlendum orðabókunt til viðbótar, en ekki bættist margt við. Algengustu lýs- ingarnar á merkingu exposure má draga saman þannig: sá verknaður að láta einhvern verðafyrir ein- hverju eða sú staða að verða fyrir einhverju. Fjöl- breytt notkun nafnorðsins exposure kemur vel fram í ljósmyndafræði. Þar er það notað um 1. myndsvæði á filmu sem hafa orðið fyrir eða eiga eftir að verða fyrir ljósgeislun; 2. tímann sem filrnan var látin verða fyrir ljósgeisluninni; 3. þann verknað að láta filmu verða fyrir Ijósgeislun. Orðaleit Undirritaður gerði tölvuleit í gagnasafni Medline og skoðaði fyrirsagnir og útdrætti fræðigreina til að fá tilfinningu fyrir því hvernig nafnorðið exposure væri notað. I flestum tilvikum kom notkunin ekki á óvart. Menn, tilraunadýr eða frumur voru í þeirri stöðu að þau höfðu eða gátu hafa orðið fyrir áhættuþætti eða beinum skaðvaldi. Algengust var samsetningin ex- posure to (drugs, radiation, bacteria, viruses, chemi- cals), en í suntum tilvikum birtisl nafnorðið exposure á eftir lýsingarorði (bacterial, clinical) eða öðru nafn- orði (drug, radiation, rodent). í fyrirsögnunt sást til- hneiging til að raða saman orðum (chronic prenatal ethanol exposure) og sleppa samtengingum. Sam- setningarnar birtust því oft aðeins í fullri lengd í með- fylgjandi útdrætti: exposure of (mice, medical students, general practitioners) to (radiation, primary care, continuing education). Almenn leit á netinu leiddi í ljós að nafnorðið exposure kemur einnig fyrir í íþróttafræði, listfræði, ljósfræði, raftæknifræði, tölvufræði og viðskipta- fræði, en ekki var gerð tilraun til að elta það allt uppi. Notkunardæmi I langflestum greinunum var notkun nafnorðsins exposure eins og að ofan er lýst, hefðbundin og nokkuð skilmerkileg. Eitt notkunardæmið vakti sér- staka athygli undirritaðs: Patients with recent expo- sure to antidepressants were excluded. Hvað voru greinarhöfundar að reyna að segja? Útilokuðu þeir ekki aðeins þá sjúklinga sem vitað var að hefðu tekið geðdeyfðarlyf, heldur einnig þá sem gætu hafa tekið slík lyf? Ekki varð ráðið í það af samhenginu hvemig þýða ætti setninguna á íslensku til að skila merking- unni af fullri nákvæmni. I grein um útbreiðslu tiltekinnar sýkingar á sjúkra- húsi kom fyrir setningin: The patients were notified about potential exposure and were offered free testing. Auðvelt er að þýða þessa setningu þannig að nafn- orðið exposure sé ekki þýtt sérstaklega: „Sjúklingun- um var tilkynnt um mögulega smithættu og boðin ókeypis prófun." í dýratilraun voru skoðuð áhrif tiltekinna lyfja á ofvirkar mýs. í frásögninni kom fyrir setningin: This activity was exacerbated by exposure to a novel environment. Hana má þýða á nokkra vegu. Einfald- ast er: „Þessi (of)virkni jókst í nýju (nýstárlegu) um- hverfi.“ Nákvæmara er ef til vill: „Þessi virkni var aukin þegar þeim (músunum) var komið fyrir í nýju umhverfi.“ Stirðlegast er svo: „Þessi virkni var aukin þegar mýsnar urðu fyrir nýju umhverfi." Að iesand- anum laumast sá grunur að notkun orðsins exposure í þessum texta sé dæmi um óhæfilega formfestu og svonefnda stofnanamállýsku. Úr lyfjafræöi Jóhann Lenharðsson, lyfjafræðingur, var svo vinsam- legur að senda í tölvupósti nokkur dæmi um notkun heitisins exposure í lyfjatextum. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að heitið væri „í tísku“, og þó að sú tíska myndi væntanlega renna sitt skeið eins og fleira, yrði varla hjá því komist að leita hentugra leiða til þýðinga. Data on limited number of exposed pregnancies are available. Hér kemur upp nokkur vandi ef setn- ingin er þýdd beint og án samhengis: Upplýsingar (gögn) eru til reiðu um takmarkaðan fjölda þungana sem urðu fyrir (einhverju). Umræðan snýst þó um lyf og af samhenginu má gera ráð fyrir að upplýsingar séu til um þungun hjá þeim takmarkaða íjölda kvenna sem lyfið tóku (notuðu). Aftur er freistandi að spyrja: Hvað er átt við? Hvers vegna er ekki sagt ótvírætt að um sé að ræða þunganir hjá konum sem „notuðu“ lyfið? Er verið að vísa í þunganir kvenna sem á ein- hvern annan hátt „urðu fyrir“ lyfinu? Low systemic exposure to the product was demon- strated. I þessu tilviki er verið að fjalla urn lyf sem er notað staðbundið, en dreifist einnig í litlum mæli um líkamann. Segja má: Sýnt var fram á litla almenna dreifingu efnisins. Framhald í næsta blaði. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Jóhann Heiöar er meina- fræöingur á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2004/90 261
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.