Læknablaðið - 15.03.2004, Blaðsíða 72
ÞING
XVI. þing Félags íslenskra lyflækna
Þing Félags íslenskra lyflækna, hið XVI. í röðinni, verður haldið á Sauðárkróki dagana 4.-6. júní næstkomandi.
Á þinginu gefst þátttakendum að venju kostur á að kynna rannsóknir sínar og styðjast þá annaðhvort við skyggn-
ur eða veggspjald. Lögð verður meiri áhersla en áður á notkun veggspjalda við kynningu.
Leiðbeiningar fyrir ágrip erinda og veggspjalda
* Skilafrestur er TIL 15. APRÍL.
* Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar án nafna höfunda og stofnana.
* Ágrip skulu skrifuð á íslensku.
* Eftirtalin atriði komi fram í ágripi í þessari röð: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað, vinnustaðir með til-
vísun til höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, helstu niðurstöður og ályktanir. Semja þarf sérstaklega um
birtingu átöflum og myndum.
* Höfundar taki fram hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald.
* Ágrip skal senda í tölvupósti sem viðhengi á netfang: birna@birna.is.
* Notaður verður tölvuskjávarpi við flutning erinda.
* Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Stjórn Félags íslenskra lyflækna mun meta hvort ágrip verði kynnt með erindi eða veggspjaldi.
Skráning: Þátttökutilkynningar á veffangi: www.birna.is. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig tímanlega.
Þátttökugjald: Fullt gjald er 12.000 kr., 9.000 kr. fyrir unglækna, frítt fyrir læknanema. Gjaldið greiðist við skrán-
ingu á þingstað. Innifalin eru þinggögn, kaffi á þingstað, boð í hádegisverð á laugardag og kvöldverðir á föstu-
dags- og laugardagskvöldi.
Gisting: Gist verður á Fosshóteli Áningu, Hótel Tindastóli, Gistiheimilinu Koti og Gistiheimilinu 550. Pantanir:
www.birna.is. Ekki er unnt að staðfesta pöntun á gistingu nema kortanúmer sé uppgefið.
Kort: Tekið við greiðslu með VISA/Eurocard/MasterCard.
Skipuleggjandi: Menningarfylgd Birnu ehf- Birna Þórðardóttir -
Veffang: www.birna.is - Netfang: birna@birna.is - S.: 862 8031
Stjórn Félags íslenskra lyflækna:
Davíð O. Arnar, ritari
Hlíf Steingrímsdóttir
Rafn Benediktsson
Runólfur Pálsson, formaður
Sigurður Guðmundsson, landlæknir
Sigurður Ólafsson, gjaldkeri
AstraZeneca dagur
6. mars 2004
Árlegur fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna haldinn á Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars. Öldr-
unarlæknar einnig hjartanlega velkomnir.
Dagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og AstraZeneca.
Dagskráin hefst kl. 9:00 með tveggja klukkustunda almennum fundi. Að því loknu verður tvíþætt samhliða
dagskrá fram að almennum fundi milli kl. 16:00 og 17:00.
Nánari dagskrá mun verða send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH AstraZeneca
268 Læknablaðið 2004/90