Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 72

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 72
ÞING XVI. þing Félags íslenskra lyflækna Þing Félags íslenskra lyflækna, hið XVI. í röðinni, verður haldið á Sauðárkróki dagana 4.-6. júní næstkomandi. Á þinginu gefst þátttakendum að venju kostur á að kynna rannsóknir sínar og styðjast þá annaðhvort við skyggn- ur eða veggspjald. Lögð verður meiri áhersla en áður á notkun veggspjalda við kynningu. Leiðbeiningar fyrir ágrip erinda og veggspjalda * Skilafrestur er TIL 15. APRÍL. * Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar án nafna höfunda og stofnana. * Ágrip skulu skrifuð á íslensku. * Eftirtalin atriði komi fram í ágripi í þessari röð: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað, vinnustaðir með til- vísun til höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, helstu niðurstöður og ályktanir. Semja þarf sérstaklega um birtingu átöflum og myndum. * Höfundar taki fram hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald. * Ágrip skal senda í tölvupósti sem viðhengi á netfang: birna@birna.is. * Notaður verður tölvuskjávarpi við flutning erinda. * Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar. Stjórn Félags íslenskra lyflækna mun meta hvort ágrip verði kynnt með erindi eða veggspjaldi. Skráning: Þátttökutilkynningar á veffangi: www.birna.is. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig tímanlega. Þátttökugjald: Fullt gjald er 12.000 kr., 9.000 kr. fyrir unglækna, frítt fyrir læknanema. Gjaldið greiðist við skrán- ingu á þingstað. Innifalin eru þinggögn, kaffi á þingstað, boð í hádegisverð á laugardag og kvöldverðir á föstu- dags- og laugardagskvöldi. Gisting: Gist verður á Fosshóteli Áningu, Hótel Tindastóli, Gistiheimilinu Koti og Gistiheimilinu 550. Pantanir: www.birna.is. Ekki er unnt að staðfesta pöntun á gistingu nema kortanúmer sé uppgefið. Kort: Tekið við greiðslu með VISA/Eurocard/MasterCard. Skipuleggjandi: Menningarfylgd Birnu ehf- Birna Þórðardóttir - Veffang: www.birna.is - Netfang: birna@birna.is - S.: 862 8031 Stjórn Félags íslenskra lyflækna: Davíð O. Arnar, ritari Hlíf Steingrímsdóttir Rafn Benediktsson Runólfur Pálsson, formaður Sigurður Guðmundsson, landlæknir Sigurður Ólafsson, gjaldkeri AstraZeneca dagur 6. mars 2004 Árlegur fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna haldinn á Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars. Öldr- unarlæknar einnig hjartanlega velkomnir. Dagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og AstraZeneca. Dagskráin hefst kl. 9:00 með tveggja klukkustunda almennum fundi. Að því loknu verður tvíþætt samhliða dagskrá fram að almennum fundi milli kl. 16:00 og 17:00. Nánari dagskrá mun verða send læknum sérstaklega. Fræðslunefnd FÍH AstraZeneca 268 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.