Læknablaðið - 15.09.2004, Page 29
FRÆÐIGREINAR / SYKURSÝKI TEGUND 2
Tafla II. Meðalgildi sjúklinga árin 2001 og 2002.
ísland 2001 - GSS LSH ísland 2002 - GSS LSH
Meðalgildi (95% Cl) n Meöalgildi (95% Cl) n
BMI kg/m2 29,8 (29,42-30,18) 900 29,7 (29,09-30,11) 501
HbAjC (%) 7,02 (6,94-7,10) 884 6,94 (6,82-7,06) 496
Kólesteról (mmól/L) 5,44 (5,36-5,52) 770 5,27 (5,17-5,37) 453
HDL-kól (mmól/L) 1,17 (1,14-1,20) 767 1,22 (1,18-1,26) 448
LDL-kól (mmól/L) 3,34 (3,27-3,41) 725 3,17 (3,08-3,26) 430
Blóðfitulækkandi iyf (%) 24 (18,7-30,4) 906 27 (23,1-31,1) 501
Reykingar (%) 13 (10,2-16,2) 501
sýki og heimilislæknar skráð sykurstjórnun, meðferð, Tafla III. Hlutfall sjúkitnga sem ná alþjóðlegum viðmiöunarmarkmiöum.
fylgikvilla og áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma að Hlutfall (%) ísland 2001 ísland 2002
minnsta kosti einu inni á ári fyrir hvern sjúkling. Um (95% Cl) GSS LSH GSS LSH p-gildi
90% göngudeilda sjúkrahúsa og 40% heilsugæslu- HbAlc < 7% 57 (53,4-60,1) 41,7 (37,7-46,6) 0,00
stöðva taka þátt í skráningunni. Þetta er einn stærsti BMI kg/m2 < 24 konur 11 (7,9-14,7) 10,7 (6,8-15,8) NS
sykursýkisgagnagrunnu í heimi og árið 2002 voru nær BMI kg/m2 < 25 karlar 17 (14,0-20,4) 23,1 (16,8-26,4) NS
75.000 sjúklingar með sykursýki skráðir í grunnnn. Þar er sykursýki skilgreind sem tegnd 2 ef fólk er >30 Blóðþrýstingur < 140/80 mmHg 55 (51,8-58,4) 61 (56,6-65,3) 0,03
ára við greiningu. Kól < 5,0 mmól/L 46 (35,1-42,1) 42,8 (35,2-44,0) NS
HDL-kól > 1,2 mmól/L 37 (33,9-40,8) 43,5 (38,9-48,3) 0,03
Niðurstöður LDL-kól < 3,0 mmól/L 38 (34,4-41,6) 44,7 (39,9-49,5) 0,024
Tafla I sýnir kynja- og aldursskiptingu milli ára og
landa, ásamt aldri við greiningu. Karlar eru alls stað-
ar í meirihluta.
Helmingur sjúklinganna greindist með sjúkdóm-
inn á síðastliðnum átta árum eða á tímabilinu 1994-
2002 en greiningartímabilið náði frá árinu 1960.
Tafla II sýnir niðurstöður hjá sjúklingum með teg-
und 2 sykursýki í Göngudeild sykursjúkra árin 2001
og 2002 og í töflu III eru niðurstöðurnar settar upp
sem hlutfall þeirra sem ná alþjóðlegum markmiðum.
Framfarir urðu á milli ára hvað varðar blóðþrýsting,
HDL- og LDL-kólesteról. Meðalgildi HbAlc var
7,02% fyrra árið en 6,94% seinna árið. Samt sem
áður náðu hlutfallslega færri alþjóðlegum markmið-
um hvað blóðsykurstjórnun varðar seinna árið.
Af hópnum í eftirliti á Göngudeild sykursjúkra
árið 2002 voru 329 (66%) sjúklingar á blóðþrýst-
ingslækkandi lyfjum, 41,9% voru á einu lyfi, 37,1% á
tveimur og 21 % á þremur eða fleiri lyfjum.
Eins og sést í töflu IV voru 65-66,5% af sjúklingum í
eftirliti á GSS LSH meðhöndlaðir með blóðsykurlækk-
andi töflum einungis en af þeim voru 63,5% á einu lyfi,
29,5% á tveimur lyfjum og 7% á þremur lyfjum. Mun
færri voru á insúlínmeðferð hér en í Svíþjóð.
Af íslensku sjúklingunum árið 2002 voru 17,1%
með augnbotnabreytingar.
Umræða
Sykursýki er langvarandi sjúkdómur, oft erfiður í með-
höndlun og kostnaðarsamur. Því hafa margar þjóðir
sett fram klínískar leiðbeiningar varðandi meðhöndl-
un á sykursýki. Slíkar leiðbeiningar byggðar á alþjóð-
legum viðmiðum voru gefnar út á vegum starfshóps
Landlæknisembættisins árið 2002 (13). Mikilvægt er
að sjá hversu vel tekst að ná meðhöndlunarmarkmið-
um, fylgjast með breytingum milli ára, sjá hvað betur
má gera og setja mælanleg markmið. Ekki síður er
áhugavert að bera saman árangur okkar við önnur
lönd. Sá samanburður er erfiður þar sem sjúklinga-
hópar eru mismunandi hvað varðar stig sjúkdómsins,
skilgreiningu á sjúkdómnum og mismunandi aðferðir
við rannsóknir og skráningu.
Á Göngudeild sykursjúkra á LSH Hringbraut
koma í reglulegt eftirlit sjúklingar af Stór-Reykjavík-
ursvæðinu ásamt sjúklingum utan af landi sem eru allt
frá því að vera meðhöndlaðir með fæðismeðferð ein-
göngu til daglegrar insúlíngjafar.
í Svíþjóð er meiri skipting milli sjúklinga sem eru
í reglubundnu eftirliti á heilsugæslustöð eða á göngu-
deildum sykursjúkra. í síðarnefnda sjúklingahópnum
eru fyrst og fremst þeir sem illa hefur gengið að með-
höndla á heilsugæslunni og/eða eru komnir með fylgi-
kvilla sykursýkinnar.
Tafla IV. Meðferðarform.
Meöferóarform (%) ísland 2001 GSS LSH Island 2002 GSS LSH Svíþjóð 2002 Heilsugæsla Svíþjóö 2002 Göngudeild
Fæði 17,4 15,2 28,1 3,4
Töflur 65,1 66,5 41,7 12,3
Töflur og insúlín 12 12,8 14,3 23,8
Insúlín 5,4 5,6 15,9 60,5
Læknablaðið 2004/90 625