Læknablaðið - 15.09.2004, Page 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS / BÓKARFRÉTT
Læknaþing
Læknafélag íslands í samvinnu við Læknafélag Reykjavíkur, læknaráð LSH og undirbúningsnefnd læknaráðs Heilsugæslunnar í Reykjavík
Efni: Sjúklingar og læknar í samfélaginu - staða þeirra og hlutskipti
Staður: Salurinn í Kópavogi 0
Tími: Föstudagur 1. október 2004, kl. 13-16
Þingforseti: Friðbjörn Sigurðsson, formaður Læknaráðs Landspítala o
Leiðarstef dagsins: Professionalism Jim Appleyard, forseti World Medical Association
Erindi: Hagur sjúklinga - skyldur lækna Elínborg Bárðardóttir, formaður Félags íslenskra heimilislækna djD
Hagur sjúklinga - skyldur lögfræðinga Dögg Pálsdóttir, lögmaður
Hagur sjúklinga - skyldur fréttamanna Robert Marshall, formaður Blaðamannafélags íslands
Hagur sjúklinga - trúnaðarsamband lækna og samfélags Óskar Einarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur
Umræður og fyrirspurnir til fyrirlesara Opið öllum læknum LANDSPÍTAU IIASkdl ASJtJKRAHÚS
Handbók í aðferðafræðí og rannsóknum
Háskólinn á Akureyri hefur gefið út Handbók í að-
ferðafræði og rannsóknuni í heilbrigðisvísinduni sem
er safn 26 ritgerða eftir jafnmarga höfunda. Ritstjór-
ar bókarinnar eru dr. Sigríður Halldórsdóttir og dr.
Kristján Kristjánsson prófessorar við Háskólann á
Akureyri.
Tæpast þarf að fjölyrða um þörfina á bók sem
þessari í þeirri gróskutíð sem nú ríkir í íslenskum
heilbrigðisvísindum. Eins og fram hefur komið hér í
blaðinu og víðar hafa fjölmörg fyrirtæki, stór og smá,
haslað sér völl í íslenskum lífvísindum og starfsfólki í
greininni fjölgað ört á síðustu árum.
í frétt um útgáfu bókarinnar segir meðal annars að
ritið innihaldi „ekki eingöngu lýsingar á helstu rann-
sóknaraðferðum sem notaðar eru í íslenskum heil-
brigðisvísindum ... heldur eru í ritinu einnig lýsingar
á mikilvægum undirbúningsskrefum sem lúta að gerð
rannsóknaráætlana, s.s. gagnasöfnun, úrtaksgerð, töl-
fræði og áreiðanleika mælitækja, ásamt köflum um
rannsóknarsiðfræði."
í fréttinni er vitnað til orða dr. Björns Guðbjörns-
sonar formanns Vísindasiðanefndar sem fagnar því
að út sé komin bók um þetta efni sem miðuð er við
íslenskar aðstæður að öllu leyti. „Pað er fagnaðar-
efni fyrir rannsóknarnema og kennara þeirra í heil-
brigðisvísindum að fá í hendurnar ýtarlega íslenska
kennslubók á þessu sviði sem mun auðvelda kennslu
og stuðla þannig að enn vandaðri rannsóknavinnu í
framtíðinni," segir Björn.
Bókin er gefin út í kiljuformi og er 481 bls. að
stærð. Háskólaútgáfan dreifir bókinni og er viðmið-
unarverð hennar 3500 krónur.
\m
Lu
HANDROK
1 á
®fl
1-1!
«|
Læknablaðið 2004/90 643